Frjáls verslun - 01.04.1979, Blaðsíða 76
... en katflð í bolla tæknimannsins var í veikara lagl þennan morgunlnn.
röðum og kaffikrúsirnar ásamt
með ýmsum skjölum og blöðum.
Til gamans má geta, að útlagður
kostnaður Ríkisútvarpsins í fjórum
vikum marsmánaðar við morgun-
kaffi í Morgunpóstinn var kr. 7.045.
Undirbúningi lýkur
rétt fyrir útsendingu.
Þann dag er F.V. var í heimsókn í
Morgunpóstinum var byrjað á því
að panta símtal og taka upp efni
frá Svíþjóð, en Morgunpósturinn
hefur nokkurs konar fréttaritara í
hinum ýmsu löndum, er flytja ým-
islegt efni í þættina, oft fréttatengt
efni. Auk Svíþjóðar eru slíkir
fréttaritarar í Danmörku, Englandi,
írlandi, Frakklandi, Þýskalandi og
Bandaríkjunum.
Því næst þarf að skrifa upp dag-
skrárkynninguna, hvað hvor á aö
segja og, hve langan tíma einstakir
liðir taka, en tímasetning þarf aö
vera mjög nákvæm, þar sem fréttir
eru kl. 8.00 í útvarpinu. Oftast eru
sex til átta dagskrárliðir í Morgun-
póstinum, og tvö viðtöl sem send
eru út öeint. Annað efni, en það
sem er beint, hefur verið tekið upp
daginn áður eða fyrr.
Síðan er gluggað í dagblöðin og
ýmis tímarit, en jafnan er drepið á
það helsta sem í fréttum er í blöð-
unum. Nauðsynlegum undirbún-
ingi undir þættina lýkur oft ekki
fyrr en nokkrum mínútum fyrir út-
sendingu.
Hugmyndin að Morgunpóstin-
um er sótt í erlendar fyrirmyndir,
og er t.d. í breska útvarpinu BBC
svipaöur þáttur sem heitir ,,To
day". Svipaðir þættir eru einnig í
sænska, norska og þýska útvarp-
inu.
Kostnaður útvarpsins
2,3 milljónir í mars.
í fjórum vikum marsmánaðar var
kostnaöur Ríkisútvarpsins við
Morgunpóstinn rúmar2,3 milljónir
króna. Inni í þeirri tölu eru dag-
skrárgreiðslur, laun umsjónar-
manna og tæknimanna, síma-
kostnaður, erlendur kostnaður,
morgunkaffi og dvalarkostnaður á
Akureyri. Kostnaður pr. mínútu
sem útvarpað var í mars var kr.
2.562.
Á þessum tíma, sem þeir Páll
Heiðar og Sigmar hafa veriö með
Morgunpóstinn hafa þeir lent í
ýmsum skemmtilegum atvikum.
Sigmar segir frá: — Páll var veð-
urtepptur einu sinni á Akureyri og
Akureyringurinn, sem hann ætlaði
að ræða við í þættinum var hins
vegar veðurtepptur í Reykjavík,
þannig að Páll tók viðtalið frá
Akureyri við viðmælandann sem
var í stúdíóinu í Reykjavík. Annaö
skipti var viðmælandi okkar, sem
koma átti í beina útsendingu ekki
mættur. Við vissum ekki, hvað
gera skyldi en fórum að lesa
kynninguna, að til okkar væri
kominn . . . og við ætluðum að
ræða við hann um . . . , og viti
menn gengur þá ekki viðmælandi
okkar rétt í því inn i stúdíóið,
þannig að þarna var málunum
borgið á seinustu stundu.
— Ég ætlaði eitt skiptið að taka
viðtal um borö í skipi, sem lá fyrir
utan Keflavík. Þetta var við erfiöar
aðstæður, því að ég þurfti, þegar
76