Frjáls verslun - 01.04.1979, Blaðsíða 63
„Hafnfirskir unglingar eru
til fyrirmyndar,,
Vínveltlngar í Flrðinum draga úr lerðum lólks á skemmtistaðl í Reykjavík og án eta
elnnig hættunni á ölvunarakstri.
— segja hjónin Birgir
og Eygló en þau reka
skemmtistað og mat-
sölustað í Hafnarfirði
og bjóða m.a. upp á
vínlaus böli fyrir ung-
linga
Undanfarin 4 ár hafa hjónin
Birgir Pálsson og Eygló Sigur-
liðadóttir rekið veitingahúsið
Snekkjuna og matsölustaðinn
Skútuna í Hafnarfirði, en þessi
staður nefndist áður Skiphóll.
Birgir Pálsson, sem F.V. ræddi við
á dögunum, sagði að þau hefðu
nýlega lokið við endurbyggingu
veitingahússins, en öllum innrétt-
ingum hefur verið gjörbreytt
þannig að Snekkjan er nú með
vistlegustu vínveitingahúsum
hérlendis.
Starfsemi hússins er margþætt
og er hún orðin umfangsmikill lið-
ur í bæjarlífi Hafnfirðinga. Mark-
miðið meö breytingunum á húsinu
sagði Birgir að hefði verið að auka
nýtingu þess í rekstri og hefði það
þegar sýnt sig í mun betri afkomu.
Allflestir klúbbar sem starfa í
Hafnarfirði nota húsið að staö-
aldri. Reglulegir dansleikir eru
haldnir þar sem boðið er uppá all-
ar veitingar og mat. Auk þess er
,,diskoteque“ á hverju fimmtu-
dags- og föstudagskvöldi fyrir
yngra fólk auk þess sem haldin eru
vínlaus böll fyrir táninga.
Birgir sagði að þau hefðu mjög
góða reynslu af unglingunum í
Hafnarfirði. Þótt oft væri um þaö
rætt að unglingar væru vandamál í
rekstri dansstaða vaeri því ekki
fyrir aö fara í Hafnarfirði. Unga
fólkið væri til fyrirmyndar í alla
staði og sagði Birgir að það væri
mjög ánægjulegt aö starfa með
þeim.
Vínveitingagrýla
Veitingahúsið Snekkjan, sem
áður hét Skiphóll hefur haft vín-
veitingaleyfi í 10 ár. Birgir Pálsson
sagði að vínveitingarekstur krefð-
ist mikils aðhalds og að settum
reglum hússins yrði að framfylgja
mjög ákveðið. Væri það gert
sköpuöust ekki þau vandamál,
sem stundum vilja fylgja slíkum
rekstri og vínveitingum væri kennt
um að ósekju. Staðreyndin væri
sú, að það væri algjörlega undir
vínveitingaaðilanum sjálfum kom-
ið hvaða orð slíkur staður fengi á
sig. Fólk vill skemmta sér í fallegu
umhverfi, þaö krefst vandaðra
veitinga í mat og drykk og góðrar
þjónustu. Þegar slíkt væri fyrir
hendi og alúð lögð í að gera fólki til
geðs, þá kynni það vel að meta
það og framkoma og umgengni
yrði að sama skapi betri.
— Fáir trúa því, sagði Birgir, —
að vínneyzla Hafnfirðinga minnk-
aði við það að slík veitingastarf-
semi yrði lögö niður, fólk myndi þá
einungis sækja slíkar skemmtanir
til Reykjavíkur en það hefði í för
með sér aukin óþægindi fyrir það,
meiri kostnað og, án efa, meiri
hættu á ölvunarakstri í því leigu-
bílahallæri sem ríkir á þeim tímum
sem dansleikjum lýkur í Reykjavík.
Hinsvegar væri rétt að benda á
þá staðreynd að auki, að vínveit-
ingar tryggðu rekstrargrundvöll
veitingahússins og gerðu því um
leið kleift að halda uppi mun betri
þjónustu við bæjarbúa.
Stórbætt aðstaða
Snekkjan rúmar 150—190
manns í mat. Salarkynni eru mjög
skemmtilega innréttuð.
Dansgólf er afmarkað frá borð-
um sem eru hólfuð niður þannig
að hvert borð er sem mest útaf fyrir
sig. Barirnir eru tveir, einn á neðri
hæð og annar uppi beint á móti
veitingasal.
Snekkjan sér einnig um veizlu-
mat fyrir ýmsa aðila og sér um að
koma honum á staðinn. Starfsfólk
Snekkjunnar er um 30 manns, þar
af starfa 25 fastráðnir. Þau Birgir
og Eygló hafa rekið staðinn í 4 ár
nú í júní nk.
63