Frjáls verslun - 01.04.1979, Blaðsíða 9
Guðrún Jónsdóttir, arkitekt, tók 1. apríl s.l.
við starfi forstöðumanns Þróunarstofnunar
Reykjavíkurborgar, en hún var stofnuð árið
1972 og helsta verkefni stofnunarinnar hefur
verið að vinna að endurskoðun aðalskipulags
höfuðborgarinnar frá 1967.
— Forstöðumaður hefur umsjón með end-
urskoðun á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar
og hefur frumkvæði að og umsjón með gerð
deiliskipulags nýrra hverfa í höfuöborginni
sagði Guðrún, og einnig að annast, eftir því
sem síöar kann að vera ákveðið, samskipti við
skipulagsstofnun höfuðborgarsvæðisins ef
hún verður stofnsett. Hjá Þróunarstofnun
Reykjavíkurborgar starfa nú auk forstööu-
manns sjö manns.
Guðrún Jónsdóttir er fædd 20. mars 1935 á
Blönduósi. Hún varð stúdent frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1955. Að því loknu las hún
jarðfræði í eitt ár við háskólann í Kaupmanna-
höfn, en sneri sér síðan að almennu námi í
arkitektúr við Listaháskólann í Kaupmanna-
höfn.
Lauk hún námi 1963 og starfaði á arkitekta-
stofu í Kaupmannahöfn til 1967, er hún fluttist
heim til íslands. Hóf Guðrún þá rekstur arki-
tektastofu ásamt Knúti Jeppesen arkitekt og
síðar einnig í samvinnu við Stefán Jónsson
arkitekt og hafa þau verið með rekstur arki-
tektastofunnar Höfða síðan 1970.
Eitt aðalstarf Guðrúnar hjá Höföa hefur verið
skipulagning Seljahverfis í Breiðholti II í
Reykjavík, en teiknistofan hefur unnið aö
margvíslegum verkefnum fyrir Reykjavíkur-
borg. Hættir Guðrún nú aðild sinni að teikni-
stofunni Höfða.
Einar Birnir, framkvæmdastjóri G. Ólafsson
hf. var kjörinn formaður Félags íslenskra stór-
kaupmanna á aðalfundi félagsins í mars s.l.
Fráfarandi formaður, Jón Magnússon, hafði
gegnt starfinu í tvö kjörtímabil, en í lögum fé-
lagsins segir, að sami maður skuli ekki gegna
formannsstöðunni lengur en í tvö kjörtímabil,
fjögur ár.
Félagar í Félagi íslenskra stórkaupmanna
eru um 200. í stjórn félagsins sitja sjö manns.
Það er m.a. hlutverk formanns, að boða til og
halda stjórnarfundi, fylgjast með daglegum
rekstri skrifstofu félagsins, koma fram fyrir fé-
lagið út á við m.a. á opinberum vettvangi svo
eitthvað sé nefnt.
Einar Birnir er fæddur 30. september 1930 í
Mosfellssveit. Hann varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1950. Hann hefur
gegnt ýmsum störfum m.a. hjá Samvinnubank-
anum og Samvinnutryggingum. Frá 1966 hefur
hann verið framkvæmdastjóri G. Ólafsson hf.
heildverslun, en það fyrirtæki annast einkum
lyfjainnflutning.
Hinn nýkjörni formaður Félags íslenskra
stórkaupmanna sagði, að þau mál sem væru
efst á baugi hjá félaginu væru verðlags- og
tollamálin. Innan félagsins starfa einnig ýmsar
fastanefndir s.s. hagræðingarnefnd og út-
breiðslunefnd, en töluvert er unnið innan fé-
lagsins að útbreiðslu- og kynningarstarfi. í fé-
laginu eru starfandi ýmsir áhugamannahópar
m.a. á sviði snyrtivara, vefnaðarvara, lyfjavara
og matvara svo dæmi séu tekin. Félag íslenskra
stórkaupmanna hefur einnig haft góða sam-
vinnu viö félög stórkaupmanna á hinum Norð-
urlöndunum.