Frjáls verslun - 01.04.1979, Side 41
Stolichnaya er eina rússneska
vodkað sem nú er á Bandaríkja-
markaðnum. Innflutningur þess
byrjaöi árið 1972, en þá tók
bandaríska fyrirtækiö ,,Pepsico
lnc.“ að sér dreifingu þess þar
vestra.
Auglýsing er afl...
Pepsico setti markiö hátt. Þeir
ákváðu að verja rúmlega einni
milljón dollara á ári í auglýsinga-
og kynningarstarfsemi á Stolich-
naya. Árangurinn varð sá, að
fyrsta árið seldi Pepsico 18 þús-
und kassa af Stolichnaya en eftir 5
ára auglýsingaáætlun var salan
komin upp í 200 þúsund kassa. Nú
er svo komið að Stolichnaya
vodka er um 60% af öllu vodka
sem selt er á Bandaríkjamarkaði.
Það er dálítið athyglisvert að
skoða þau markaðstæknilegu
vandamál sem Pepsico átti við að
etja, en samkvæmt upplýsingum
frá markaðsráðgjöfum fyrirtækis-
ins voru þessi vandamál tvenns
konar:
I fyrsta lagi stóðu flestir Banda-
ríkjamenn í þeirri trú að allt vodka
sem væri á boðstólum væri flutt
inn frá Rússlandi. Heiti þessarar
vöru og merking hennar var
þannig úr garði gert, að allt benti til
þess að hún væri frá Rússlandi.
Staðreyndin var sú að þetta voru
eftirlíkingar af rússnesku vodka
framleiddar í Bandaríkjunum.
I öðru lagi hafði almenningi í
Bandaríkjunum verið talin trú um
að allt vodka væri nákvæmlega
eins, þ.e. bragðlaust, lyktarlaust
og litlaust. Þessi útbreiddi mis-
skilningur gerði það að verkum, að
næstum því ómögulegt var aö
benda á einstaka kosti einnar teg-
undar, t.d. bragð eða önnur gæði,
þar sem enginn tók mark á slíku.
Ekki bætti það úr skák, að mest
af vodka var drukkið í blönduðum
drykkjum, eins og t.d. „Bloody
Mary" með tómatsafa og „Screw-
driver" með appelsínusafa.
Dæminu snúið við
Til þess að vinna bug á þessum
meinlokum notaði Pepsico
ákveðna höfuðsétningu í öllum
sínum auglýsingum: STOLICH-
NAYA ER EINA VODKATEGUND-
IN SEM ER FLUTT INN FRÁ
RÚSSLANDI.
Að sögn hins bandaríska blaðs
er engum blöðum um það að
fletta, að Stolichnaya vodka er
bragðbetra en allar aðrar vodka-
tegundir á Bandaríkjamarkaði. En
vegna þess að bandarísk lög leyfa
ekki fullyrðingar um bragð, var
valin sú leiðin aö leggja áherzlu á
það í auglýsingunum að Stolich-
naya vodka ætti fyrst og fremst að
neyta án íblöndunar annarra
drykkja. Á þennan hátt tókst að
vinna þessari vodkategund vin-
sældir, fólk var furðu fljótt að finna
muninn. Áður en langt var um liðið
var Stolichnaya orðið viðurkennt
sem leiðandi merki á þessu sviði.
Nú er Stolichnaya selt í 50 fylkj-
um Bandaríkjanna og í 70% þeirra
253 þúsunda vínverzlana sem þar
starfa, en innifalið í þeirri tölu eru
vínveitingahús og hótel. Það munu
vera yfir 2 þúsund vínmerki á
Bandaríkjamarkaði. Aöeins 60
þeirra seljast í meira magni á ári en
500 þúsund kassar og það hefur
tekið dreifingaraðilana 15—20 ár
að ná því magni. Pepsico gerir ráð
fyrir því að Stolichnaya muni fara
yfir sölumörkin 500 þúsund kassar
strax árið 1981.
Sagan
Aö baki Stolichnaya vodka og
vinsældum þess liggur aldagömul
reynsla og rússnesk hefð. Vodka
hefur verið bruggað og brennt í
Rússlandi allar götur síðan á 10.
öld. Rússneskir annálar greina frá
byggingu vodka-brugghúss á 12.
öld.
í ferðasögum frá fyrri öldum
geta sögumenn oft um rússneskt
brennivín sem taki öllu öðru fram
um bragðgæði og er ekki neinum
blöðum um það að fletta, að þar
eiga þeir við vodka. Það sem
einkum veldur bragögæðum
Stolichnaya vodka er að það er sí-
að bæði í gegnum kvartz og viðar-
kol.
Á Islandi
Stolichnaya vodka hefur veriö á
islenzkum markaði um árabil og
átt sívaxandi vinsældum að fagna.
Auk þess hefur verið flutt inn Ara-
rat koniak frá Rússlandi, en það er
þruggað í Armeníu við rætur
fjallsins Ararats, en á tindi þess er
sagt að örkin hans Nóa hafi
strandað á sínum tíma. Þá er
væntanlegt á markaðinn rúss-
neskt rauðvín, en það kallast
„Rubin Krima" og þykir með
afbrigðum gott.
Vínsælir drykkir
Til eru margir vinsælir drykkir
blandaðir Stolichnaya vodka.
Hér verða tekin nokkur dæmi:
Creamy Screwdriver
Tvöfaldur Stolichnaya vodka, ein
lítil eggjarauða, 6 hl. appelsínu-
safi, % bolli fínmulinn ís og ein te-
skeið af sykri. Þetta er sett í
blandara og blandað í 20 sekúnd-
ur og síðan hellt í stórt glas með
2—3 ísmolum og glasið síðan fyllt
með því að bæta í það ísmolum.
Simon’s Hot Pants
2/6 Stolishnaya vodka, 2/6 Coin-
treau, 1/6 Royal Mint, 3/6 sít-
rónusafi og kirsuber. Þetta er hrist
saman. Höfundur er Símon Sigur-
jónsson barþjónn á Nausti.
Maxi
3/6 Stolichnaya vodka, 3/6 Dom
Benedictine, sítrónusafi, Seven
Up og Grape, ein sítrónusneiö og
kirsuber. Þetta er hrært og borið
fram með strái. Höfundur er
Sigurður Haraldsson barþjónn.
Vodka Grand Mariner
1,5 Stolichnaya vodka, 1 /2 Grand $•
Mariner, 1 /2 lime-safi og ein
appelsínusneið. Þessu er hrært ;•:•
saman við ís og hellt yfiur klaka í
glasi. •:•: