Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1979, Page 78

Frjáls verslun - 01.04.1979, Page 78
■ -• <--í Halldór Á árlegu kútmagakvöldi Lions- klúbbsins Ægis, sem haldið var fyrir nokkru á Hótel Sögu af mikl- um myndarskap með langborðum hlöðnum alls kyns góðgæti úr ríki sjávarguðsine, flutti Halldór E. Sigurðsson, alþingismaöur og fyrrverandi ráðherra, ræðu kvöldsins. Halldór talaði ekki í predikunartón heldur sló á léttari strengi og sagði ýmsar bráð- skemmtilegar sögur frá Alþingi fyrr og nú og af framboðsfundum. Hlaut hann góðar undirtektir við- E. segir smellnar framboðstundum staddra. Þar sem þetta var sann- kallað herrakvöld, flugu þarna líka margir góðir brandararnir, sem sjentilmanni eins og Halldóri E. hefðu sennilega þótt í hæpnara lagi í viðurvist kvenna. Féllu þeir ekki síður í kramið hjá þessum glaðværa hóp en þingsögurnar. Okkur datt í hug, að skemmti- legt yrði að fá Halldór til að rifja eitthvað upp af sögum sínum fyrir lesendur Frjálsrar verzlunar og varð hann góðfúslega við þeirri beiðni okkar. Við fórum til fundar við Halidór, þegar hann gat tekið sér frí frá þingstörfum smástund og fara sögurnar hans hér á eftir. „Eitt af því, sem mér hefur fundizt á skorta í sambandi við Al- 78

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.