Frjáls verslun - 01.10.1986, Side 9
Fréttir
Nýir eigendur að Casa
Staðgreiðsla skatta:
Verður atvinnureksturinn með?
Starfshópur vinnur nú
að álitsgerð um stað-
greiðslu skatta fyrir fjár-
málaráðuneytið vegna
fyrirheita stjómvalda við
síðustu kjarasamninga
um að staðgreiðslukerfi
skatta yrði tekið upp,
líklega í ársbyrjun 1988
og skattkerfið einfaldað.
Margir hafa skilið það svo
að staðgreiðslukerfið, ef
því yrði komið á, næði til
allra tekjuskattsgreið-
enda. Það er þó ekki
öruggt að fyrirtæki verði
innan þessa kerfis enda er
hvorttveggja til í þeim
löndum sem tekið hafa
upp staðgreiðslukerfið að
staðgreiðslan nái aðeins
til launþega eða bæði
launþega og fyrirtækja.
Engin ákvörðun hefur
verið tekin um það hvor
leiðin verður farin hér og
eru báðir möguleikar til
skoðunar enn sem komið
er, þótt megináherslan sé
lögð á að koma kerfinu á
gagnvart launþegum.
Minnstar líkur eru taldar
á að félög verði í stað-
greiðslukerfinu en hugs-
anlegt er að einstaklingar
með sjálfstæðan atvinnu-
rekstur falli þar undir.
Það þykir til dæmis
kostur að fá einstaklinga
með sjálfstæðan atvinnu-
rekstur inn í staðgreiðslu-
kerfið þar sem það er ein-
faldara og auðveldara að
hafa eftirlit með hugsan-
legum undandrætti á tekj-
um til skatts.
Hvort fyrirtæki og ein-
staklingar með sjálfstæð-
an atvinnurekstur lendi í
staðgreiðslukerfinu eða
ekki skiptir í raun ekki
svo miklu máli að öðru
leyti en því að eins og hjá
launþegum mynduðu
tekjur ársins 1987 ekki
skattstofn. Hugsanleg
tekjuaukning ársins
kæmi því ekki til skatts.
Þó er vert að benda á að
þegar staðgreiðslukerfi
var tekið upp i Danmörku
voru sett þau mörk að
tekjuaukning umfram
Gunnar Ólafsson einn
af Miðnesbræðrum frá
Sandgerði hefur selt hlut
sinn í Andra hf. en hann
átti rúmlega þriðjung í
fyrirtækinu. Kaupandi er
Haraldur Haraldsson
framkvæmdastjóri Andra
og er hann nú aðaleigandi
20% kom til skatts.
Reikna má með þvi að
einhver mörk verði sett
hér einnig.
Hver sem niðurstaðan
verður ættu málin að fara
að skýrast í lok janúar því
ef á að taka upp stað-
greiðsluna á annað borð
þyrfti Alþingi að fá málið
til umfjöllunar í byrjun
febrúar.
þess. Andri er með stærri
útf 1 utningsf yrirtækj um
hér á landi og hefur
aðallega verið í útflutn-
ingi fiskimjöls. Fyrirtæk-
ið var stofnað 1967 og
var Gunnar orðinn einn
eftir af upphaflegum
stofnendum.
Selur hlut sinn í Andra
Eigendaskipti urðu á
versluninni Casa í Borg-
artúni í byrjun desember
sl. Nýtt hlutafélag, Rann-
ur hf., var stofnað um
kaupin en eigendur þess
eru Skafti Jónsson, fyrr-
verandi blaðamaður og
systkini hans, Einar
Magnússon tannlæknir í
Keflavík og Epal hf.
(Eyjólfur Pálsson). Casa
var áður i eigu Sigurvíkur
hf. en aðalhluthafar þar
voru Lúðvík Bjarnason og
Einar Magnússon sem
einnig er hluthafi í hinu
nýja félagi. Skafti Jóns-
son og systkini hans eiga
51% hlutafjár en stærstu
einstöku hluthafar eru
Skafti og Einar Magnús-
son. Casa er þekkt fyrir
djarfan stíl og vandaða
hönnun en reksturinn
hafði gengið erfiðlega
vegna slæmrar lausafjár-
Skafti Jónsson ásamt tveimur starfsmönnum Casa, Hafliða Kristjánssyni og Hrafnhildi
Valbjörnsdóttur.
stöðu. Fyrsta verkefni
nýrra eigenda er að bæta
lausafjárstöðuna en fyrir
dyrum standa breytingar
á versluninni sem vænt-
anlega verður lokið á 10
ára afmæli Casa nú í vor.
Framkvæmdastjóri Casa
er Skafti Jónsson.
k.
9