Frjáls verslun - 01.10.1986, Blaðsíða 20
100 stærstu
Skýringar á hugtökum
Eins og áður hefur komið
fram, þá er ekki ofsögum sagt,
að bylting er orðin á listanum,
sem hingað til hefur verið kall-
aður 100 STÆRSTU FYRIR-
TÆKI. Dálkar á aðallista, sem
voru 10 áður fyrir hvert fyrir-
tæki eru nú 23. Hér á eftir fara
skýringar á þessum upplýs-
ingaliðum. Sumir liðanna skýra
sig sjálfir eins og Nafn fyrir-
tækis, röð 85, röð 84.
Velta í millj. króna
Eins og áður er fyrirtækjunum
raðað á svokallaðan aðallista, eftir
veltu þeirra. Er velta þá talin sama
og brúttótekjur fyrirtækja áður en
nokkur kostnaður eða umboðslaun
eru dregin frá. Að sjálfsögðu er
þama um að ræða misjafnar stofn-
tölur, allt eftir því hvers eðlis rekstur-
inn er.
Varðandi venjuleg verslunar- og
iðnfyrritæki er málið tiltölulega
einfalt, brúttótekjur þeirra em ljósar.
Þó skal tekið fram að söluskattur er
innifalinn í veltunni.
Kaupfélögin fylla í rauninni
sama flokk og önnur verslunarfyrir-
tæki. þau em þó einnig, sérstaklega
þau stæmi með margháttaðan at-
vinnurekstur, sem leggst ofan á veltu
þeima. Má þar nefna útgerð, fisk-
vinnslu, iðnrekstur og sláturhúsa-
rekstur. Skýringar á þessum liðum
koma hér á eftir.
Útgerðarfyrirtæki og félög,
sem stunda fiskvinnslu em oft
með blandaðan rekstur. Sum fyrir-
tækin standa bæði í útgerð og fisk-
vinnslu. I þeim tilvikum er aflaverð-
mæti skipanna lagt við framleiðslu-
verðmæti afurðanna í fiskvinnslunni.
Velta banka og sparisjóða er
að þessu sinni taldar brúttó rekstrar-
tekjur þeima. Áður var velta þeima
talin brúttó vaxtatekjur að viðbætt-
um verðbótum. Sú veltuskilgreining
varð til, þegar reikningar peninga-
stofnana vom ekki eins sambærileg-
ir eins og nú er orðið. Við samanburð
við fyma ár hefur verið tekið tillit til
þessarar breytingar þannig að hlut-
fallsleg veltubreyting á milli áranna
1984 og 1985 er rétt.
Tryggingafélög eru talin hafa
veltu, sem er samtala reikningslið-
anna „iðgjöld ársins“ og „fjármuna-
tekjur“. Fram til þessa vom iðgjöld
ársins ein talin velta tryggingarfélag-
anna. Vegna staðlaðra ársreikninga
þeima er sá kostur tekinn að bæta
fjármuntekjum við og er það talið
réttara.
Fyrritæki, sem stunda útflutning
em talin hafa þá veltu, sem nemur
útflutningsverðmæti þeirra afurða,
sem þau hafa flutt út á vegum um-
bjóðenda sinna.
Breyting í % f.f.á. Þessi liður,
sem þarfnast ekki nánari skýringa,
kemur öðm hvom fyrir á hinum
ýmsu listum og á þá við hlutfallsleg-
ar breytingar frá fyrra ári. Er þá átt
við næsta dálk fyrir framan í hverju
tilviki.
Veltubreyting að frá-
dregnum verðbreytingum
I þessum lið er reynt að draga frá
veltubreytingar sem orðið hafa
vegna verðlagsbreytinga. Tekinn var
sá kostur að miða við breytingar á
vísitölu vöm og þjónustu frá upphafi
til loka ársins 1985. Sú breyting er
32,5%. Til samanburðar má nefna að
sambærileg hækkun framfærsluvísi-
tölu varð 33,7% og byggingarvísitölu
34,7%. Rétt er að benda á, að ekki er
endilega víst að vísitala vöm og
þjónustu gefi í öllum tilvikum rétta
mynd af þeim áhrifum, sem verðlags-
breytingar hafa á veltu einstakra fyr-
irtækja. Hér er þó ekki kostur á að
taka tillit til slíks.
Hagnaður í milljónum
króna
Hér er gefinn upp hagnaður eftir
skatta. Hagnaður fyrir skatta, er ekki
síður áhugaverð stærð og þegar er
ákveðið, að sú stærð verði birt á list-
anum næsta ár. Sama gildir um
hagnað áður en fjármagnsgjöld, og
afskriftir hafa verið dregin frá. Fyrir-
hugað er að birta upplýsingar um
rekstrarárangur fyrirtækjanna frá
þeim sjónarhóli.
Breyting hagnaðar í krónum
frá fyrra ári. þessi liður, sem á við
hagnaðinn er talinn i krónum. Þykir
það gefa betri upplýsingar heldur en
breyting hagnaðar milli ára í %.
Hagnaður í % af veltu
Þetta hlutfall, hefur ef til vill mest
sér til ágætis að vera auðvelt í út-
reikningi. Hagnaður fyrir frádrátt
skatta, afskrifta og vaxtagjalda væri
heppilegur gmnnur þessa hlutfalls.
Ekki er þó ástæða til að draga úr
gildi þess, einkum ef það er notað til
samanburðar frá ári til árs.
Hagnaður í % af eigin fé
Þetta hlutfall gefur til kynna
arðsemi eiginfjármagns í fyrirtæk-
inu. Eigið fé er hér talið hlutafé, vara-
sjóðir og annað sem telst til eiginfjár
fyrirtækis. Af þessu hlutfalli má
draga nokkrar ályktanir um hugsan-
lega arðgreiðslu til hluthafa, þó svo
hún geti oft á tíðum farið eftir allt
öðmm forsendum. Rétt er að benda
á að hér er um að ræða svo nefnda
einkaarðsemi sem er arðsemi eigin
fjár fyrirtækis, eins og áður sagði.
Annað hugtak, heildararðsemi, er
ekki síður áhugavert. Það hlutfall
gefur til kynna arðsemi alls þess fjár-
magns sem notað er í viðkomandi
fyrirtæki. Er þá bæði átt við eigið
fjármagn og lánsfjármagn. Með sam-
anburði á heildararðsemi fyrirtækja
má sjá hvert þeirra hefur verið best
rekið án tillits til þess, hvort lánsfjár-
magn er mikill eða lítill hluti heildar-
fjármagns þeirra.
Eigið fé í millj. króna
Hér er átt við þann hluta fjár-
magns fyrirtækis, sem ekki er talinn
til langtímaskulda eða skammtíma-
skulda. En fjármagnshlið, passiva,
hægri hlið efnahagsreikninga bygg-
ist á þessum þrem liðum.
20