Frjáls verslun - 01.08.1990, Page 5
RITSTJÓRNARGREIN
FEILNÓTA í TEKJUKERFINU
Frjáls verslun gerir að þessu sinni úttekt á tekjum 17 hópa
í þjóðfélaginu sem ætla má að komist sæmilega af miðað við
það sem gengur og gerist hér á landi. Hér er um sambæri-
lega athugun að ræða og blaðið gerði fyrir einu ári, nema nú
er hún ítarlegri. Byggt er á upplýsingum sem lesa má úr
skattskrám sem lagðar eru fram einu sinni á ári og eru
opinber gögn.
Aflað er upplýsinga um heildartekjur 276 einstaklinga á
árinu 1989, meðalmánaðartekjur þeirra reiknaðar og þær
færðar til verðlags í ágúst 1990 miðað við launavísitölu. Ut úr
þessari athugun má lesa ýmsar vísbendingar en varast ber
að draga of víðtækar ályktanir. Sitthvað athyglisvert kemur
þó fram - sumt raunar stórfurðulegt og enn annað sem hlýtur
að vera mikið umhugsunarefni.
Ekki verður annað séð en að einhver mjög falskur tónn sé
í tekjukerfínu. Það vekur furðu hversu gífurlega háum tekj-
um vissum hópum tekst að ná til sín og ekki er það síður
undrunarefni hversu illa launaðir aðrir eru.
Það stendur m.a. upp úr, nú eins og fyrir einu ári þegar
blaðið skoðaði þessi mál, að alþingismenn og ráðherrar eru
mjög illa launaðir miðað við ábyrgð og þær kröfur sem
óhjákvæmilegt er að gera til þeirra. Þessu fólki er ætlað að
setja þjóðinni lög og stjóma landinu. Seta á Alþingi er talin
fullt starf og fyrir það hafa menn innan við 200 þúsund krónur
í tekjur á mánuði á núverandi verðlagi. Ráðherralaun eru um
300 þúsund krónur, nema hjá forsætisráðherra sem hefur
aðeins meira. Stefán Valgeirsson, guðfaðir þessarar ríkis-
stjórnar, var hins vegar nógu séður til að þiggja ekki ráð-
herradóm í ríkisstjórninni, hann valdi sjóðakerfið og hafði
fyrir bragðið um þriðjungi hærri tekjur en forsætisráðherr-
ann á síðasta ári.
Ýmsir embættismenn í þjónustu ríkisins bera meira úr
býtum en ráðherrar - sem þó eru yfirmenn þeirra. Þá er ekki
verið að tala um fógeta og sýslumenn sem sumir hverjir hafa
á aðra milljón í tekjur á mánuði. Það er auðvitað með ólíkind-
um að endaleysa af þessu tagi skuli viðgangast.
Það vekur einnig athygli að ýmsum hópum virðist hafa
tekist að auka tekjur sínar á síðasta ári umfram almenna
launaþróun í landinu. Þegar samanburður er gerður milli ára
í hópum sérfræðinga, kemur á daginn að í vissum tilvikum
er um tekjusamdrátt að ræða, aðrir standa í stað en tveir
hópar bæta stöðu sína til muna. Lögfræðingar, sem bomir
voru saman, höfðu hækkað umfram launaþróun um 20% frá
árinu 1988 og lyfjafræðingar höfðu bætt sig um 18%. Þessi
vísbending um tekjur manna hlýtur að vera mikið umhugs-
unarefni, ekki síst í ljósi þess að tekjur þessara aðila hafa
ekki verið neitt slakar. Þannig er tekjuhæsti lyfsalinn með á
þriðju miiljón króna í mánaðartekjur og hæst launaði lög-
fræðingurinn hefur 1.5 milljón króna í mánaðartekjur sam-
kvæmt yfirliti okkar.
Sjaldan hefur verið rætt meira um kjör fólks hér á landi en
einmitt nú, mitt í þjóðarsáttinni. Þess vegna gæti saman-
burðurafþvítagi, semhérumræðir, orðiðgagnlegtframlag
til þeirrar umræðu og auðveldað mönnum að átta sig á því
gagnvart hvaða hópum manna í landinu þjóðarsáttum verði
viðkomið.
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Helgi Magnússon — RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Valþór Hlöðversson —
AUGLÝ SIN GASTJ ÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristrín Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Grímur Bjamason, Gunnar
Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Fróði hf. — Tímaritið er gefið út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum —
SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, sími 82300, Auglýsingasími 31661 - RITSTJÓRN: Bfldshöfði 18, sími 685380 -
STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson - AÐALRITSTJÓRI: Steinar J. Lúðvíksson - FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra
Viktorsdóttir - ÁSKRIFTARVERÐ: 2.280 kr. (380 kr. á eintak) - LAUSASÖLUVERÐ: 469 kr. - SETNING, TÖLVUUMBROT,
PRENTUN OG BÓKBAND: G. Ben. prentstofa lif. — LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf.
ÖU réttindi áskilin varðandi efni og myndir
5