Frjáls verslun - 01.08.1990, Side 13
FRÉTTIR
Félagið hefur fest kaup á
nýjum og glæsilegum
flugflota, sem brýnt er að
nýta sem allra best. Um
er að ræða gífurlega fjár-
festingu á íslenskan
mælikvarða og miklar
fjárskuldbindingar. Svo
mikil sala hlutabréfa
mundi hafa veruleg áhrif
á eiginfjárstöðu fyrirtæk-
isins og minnka skuldir
vegna þessara nýju fjár-
festinga. Auk þess má
fullvíst telja að aukið
samstarf við svo öflugan
aðila sem SAS, þar sem
hagsmunir þeirra væru
einnig í húfi, mundi hafa
mikla hagræðingu í för
með sér.
Vangaveltur um sam-
starf þessara aðila hafa
lengi verið á döfinni,
enda virðist samstarf
þeirra vera rökrétt miðað
við aðstæður og alþjóð-
lega þróun. Þannig sagði
Sigurður Helgason,
stjórnarformaður Flug-
leiða hf., í ávarpi í síðustu
ársskýrslu félagsins orð-
rétt:
„í alþjóðlegum flug-
rekstri stendur hæst sú
mikla sameiningar- og
samvinnualda sem nú
setur svip sinn mjög á
rekstur og fyrirkomulag
hinna ýmsu flugfélaga
vestanhafs og austan.“
Einnig sagði hann:„Þeg-
ar litið er fram á við er
líklegt að ekki verði hjá
því komist fyrir þetta litla
félag að laga sig að þeirri
breyttu skipan flugmála
sein nú á sér stað. Ein-
hvers konar samvinna og/
eða tenging við stærri
samstæður er þar efst á
baugi. Harðnandi sam-
keppni samfara veikari
stöðu minni flugfélaga
mun leiða þetta af sér.“
Sl. vor svaraði Sigurð-
ur Helgason, forstjóri
Flugleiða hf., spurningu
Frjálsrar verslunar þann-
ig þegar hann var spurð-
ur, hvort til greina kæmi
að selja erlendum flugfé-
lögum hlutabréf í Flug-
leiðum hf.:
„Ég tel fýllilega koma
til greina að tengja Flug-
leiðir erlendum flugfélög-
um með þessum hætti.
Þar yrði þó um að ræða
minnihluta hlutabréfa og
slík sala væri því meira
táknræn yfirlýsing um
samstarfsvilja. Flugfélög
um allan heim leita nú
nánara samstarfs. Þetta á
einkum og sér í lagi við
um Evrópuflugfélög.“
I sama tölublaði
Frjálsrar verslunar var
forstjóri SAS, Jan
Carlzon, spurður að því
hvort til greina kæmi að
SAS keypti hlut í Flug-
leiðum hf. I svari sínu
lagði hann áherslu á að
hlutir, sem þannig væru
keyptir, þyrftu að vera
svo smáir að þeir gætu
ekki haft skaðvænleg
áhrif á flugréttindi við-
komandi flugfélaga og
samkvæmt því sagði
hann að SAS mundi aldrei
hafa áhuga á að eignast
meirihluta í Flugleiðum
hf. En svo sagði hann:
„Það er hins vegar full-
komlega rökrétt að flug-
félögin á Norðurlöndum
hafi samstarf sín á milli.
Með takmörkuðum
heimamörkuðum í út-
jaðri Evrópu sé ég ekki
hvers vegna við skyldum
ekki taka hönduin saman
um að auka hlut okkar
allra á alþjóðlegum
flugmarkaði og ná þeim
farþegafjölda sem þarf til
að halda uppi samkeppn-
ishæfu flugi sem teygir
anga sína um allan hnött-
inn. Það er eina leiðin,
sem ég sé, til þess að
Norðurlandaflugfélögin
eigi möguleika á að keppa
á árangursríkan hátt við
vel rekin og umsvifamikil
flugfélög í Bandaríkjun-
um og Asíu.“
Sameining Granda og Hraðfrystistöðvar Reykjavík-
ur handsöluð af Brynjólfi Bjarnasyni og Sigurði Ein-
arssyni.
GRANDABREF HÆKKA
VID SAMEININGU
Sameining Granda hf.
og Hraðfrystistöðvar
Reykjavíkur hf., sem
ákveðin var og tilkynnt í
júlí, hefur haft góð áhrif á
skráð gengi hlutabréfa
Granda hf.
Á rúmum mánuði
hækkaði sölugengi bréf-
anna um 7% sem bendir
til þess að kaupendur hafi
trú á að sameining þess-
ara fyrirtækja muni skila
góðum árangri þegar
sameiningunni verður
hrundið í framkvæmd nú
á haustdögum.
Á meðfylgjandi mynd
handsala þeir Brynjólfur
Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Granda hf., og
Ágúst Einarsson, aðal-
eigandi Hraðfrystistöðv-
ar Reykjavíkur hf., sam-
ÍSLENDINGAR DUGLEGIR MEÐ KORTIN
f ársskýrslu Evrópu-
svæðis VISA kemur m.a.
fram að íslendingar séu
allra þjóða duglegastir að
nota greiðslukort og þeir
haldi stöðugt áfram að slá
öll met á því sviði.
Fjöldi korthafa í heim-
inum er nú kominn í 412
milljónir manna og eykst
stöðugt ár frá ári. Kort-
hafar VISA eru 220 mill-
jónir, 151 milljón manna
hefur Master Card/Euro,
34 milljónir eru með
American Express og
tæpar 7 milljónir nota
Diners Card o.fl.
13