Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1990, Side 30

Frjáls verslun - 01.08.1990, Side 30
AUGLYSINGAR LAGAFRUMVARP UM AUGLÝSINGAR: VERÐUR ÞVÍ VÍSAÐ Á DYR? - SKIPTAR SKOÐANIR UM ÁGÆTIHEILDARLÖGGJAFAR UM AUGLÝSINGAR fmmvarp um breytingu á lögum um verðlag, samkeppnishömlur og órétt- mæta viðskiptahætti. Þetta frumvarp tekur sérstaklega til auglýsinga og er í raun viðbót við gildandi lög. Tilgang- ur frumvarpsins er að koma á ákveðnari leikreglum innan auglýs- ingaheimsins en hingað til hafa verið. Einnig er ætlunin að skipa nefnd sem fylgst getur með því að allir hlutaðeig- andi aðilar hagi sér samkvæmt sett- um reglum. Lagt er til að stofnuð verði sérstök auglýsinganefad skipuð falltrúum helstu hagsmunaaðila auk lögfróðra manna. Nefadin fær vald til að banna auglýsingar og sé um brot á banni að ræða, hefur nefadin leyfi til Hröð þróun fjölmiðlaheimsins hérlendis á undanförnum árum hefur tæpast farið framhjá nokkrum manni. íslendingar eru líklega komnir eins langt á þeirri framfarabraut nú og hugs- ast getur, með tvær sjónvarps- stöðvar og eina á leiðinni, fjölda útvarpsstöðva og ótal dagblöð og tímarit. Auglýsingar eru óhjákvæmilegur fylgifiskur fjölmiðlaheimsins og það er með ólíkindum hve mikill vöxtur hef- ur orðið á auglýsingamarkaðn- um, þar sem sífellt stærri og fullkomnari auglýsingastofur hleypa af stokkunum æ nýstár- legri auglýsingaherferðum. Al- menningur lætur þetta gott heita og virðist ekki mislíka þær auglýsingar sem ber fyrir augu og eyru alla daga vikunnar, nema þá helst að þær séu í of stórum skömmtum. Á undanfömum árum hafa þær raddir samt sem áður orðið æ hávær- ari, sem segja að auglýsingar geti verið stórvarasamar; þær blekki oft neytandann, hagræði sannleikanum og gangi jafavel út yfir öll siðferðisleg mörk. Sagt hefur verið, að eftir því sem samkeppnin harðni freistist fleiri auglýsingastofur og umbjóðendur þeirra til að ganga sífellt lengra í bar- áttunni um óskerta athygli neytand- ans. LAGAFRUMVARP í haust verður lagt fram á Alþingi TEXTI: ÞORSTEINN HÖGNIGUNNARSSON MYNDIR: GRÍMUR BJARNASON O.FL. að beita fjársektum sem getur numið allt að einni milljón króna. Aðdragandinn að auglýsingafrum- varpinu var alllangur. Steingrímur J. Sigfússon flutti þingsályktunartillögu á Alþingi árið 1986, þar sem lagt er til að ríkisstjórnin skipi nefad til að und- irbúa heildarlöggjöf um auglýsingar. í umræðum á Alþingi um þetta mál sagði Steingrímur að nefadin skyldi „hafa það sérstaklega að leiðarljósi að tryggja sem best gæði auglýsinga og eðlilega og nauðsynlega neytenda- vernd, þar með talið að vernda börn og unglinga fyrir innrætandi auglýs- ingum.“ Meðal þeirra dæma, sem Steingrímur tók fyrir um auglýsingar sem hann taldi alveg á mörkum þess að vera eðlilegar og réttmætar var auglýsing, sem hann sá á ferð sinni um Suðurland skömmu áður: „Þar ók ég framhjá söluturni þar sem auglýst var á spjaldi með stórum stöfum ein ákveðin vörutegund með því að skrifa orðið „NAMMI“. Þama er höfðað beint til bamanna og þeir foreldrar, sem standa í því að reyna að vernda tennur bama sinna og gefa þeim ekki sælgæti í óhófi, geta borið um það hversu óþægilegt það sé að auglýs- ingum sé stillt upp með þessum hætti.“ VAFASAMAR AUGLÝSINGAR Steingrímur nefair fleiri dæmi um vafasamar auglýsingar sem gefa neytendum villandi upplýsingar. Hann nefnir einkum auglýsingar um vörukaup með afborgunarskilmálum 30

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.