Frjáls verslun - 01.08.1990, Blaðsíða 34
AUGLYSINGAR
ástæður þess að þetta frumvarp er
samið nú segir hann ennfremur: „Það
var enginn hagsmunaaðili sem kallaði
á þetta frumvarp. Hér eru á ferðinni
ímyndaðir neytendahagsmunir um
auglýsingalöggjöf. “
„Megintilgangur þessa frumvarps
er sá að það er verið að víkka út
siðareglur um auglýsingar til allra
miðla,“ segir Sólveig Ólafsdóttir, lög-
fræðingur og framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra auglýsingastofa.
Eins og málum sé nú háttað séu það
einungis þær auglýsingastofur, sem
tilheyra SÍA, sem þurfi að hlíta úr-
skurði siðanefndar félagsins. „Lang
æskilegast væri að allir aðilar gætu
komið sér saman af fúsum og frjálsum
vilja, “ segir Sólveig. Vandamálið sé
hinsvegar það að í dag séu engin
heildarsamtök fjölmiðla til staðar til að
hlýða reglugerð. Því sé þetta frum-
varp m.a. tilkomið.
„Tilgangurinn er sá að reyna að fá
menn til að halda sig innan siðferðis-
legra marka,“ segir Sólveig. Hún
segir jafnframt að frumvarpið sé að
það miklu leyti byggt á siðareglunum
sjálfum og núverandi lögum að hér sé
„ÓNEITANLEGA VELTA MENN
ÞVÍNÚ FYRIRSÉR HVERNIG
ÞETTA FRUMVARP KOMITIL
MEÐ AÐ VIRKA í FRAMKVÆMD.
ER VERIÐ AÐ ÞRENGJA STAKK
AUGLÝSENDA MEÐ NÝJUM
ÁKVÆÐUM OG KEMUR
AUGLÝSINGANEFNDIN TIL MEÐ
AÐ HAFA ALRÆÐISVALD YFIR
ÞVÍ HVAÐA AUGLÝSINGAR
MEGI BIRTA?“
ekkert sérstakt nýnæmi á ferðinni.
Efnislega breyti frumvarpið sáralitlu
fyrir auglýsingastofumar. „Menn eru
vanir því að hreyfa sig innan ramma
og eru ekkert hræddir við þennan
ramma frekar en þá fyrri,“ segir hún.
Sólveig telur jafnframt að þær deilur,
sem fram hafa komið um frumvarpið,
einkennist af dálítilli móðursýki. Hún
bendir á það að ef breska auglýsinga-
samþykktin, sem þarlendir aðilar fari
eftir, væri lögð til grundvallar þyrftu
menn t.d. að skila inn handriti að sjón-
varpsauglýsingum til umsagnar aug-
lýsinganefndar áður en birta mætti
auglýsinguna. í þessu frumvarpi væri
ekkert slíkt á ferðinni.
NEYTENDASAMTÖKIN VIUA GANGA
LENGRA
Neytendasamtökin hafa lýst yfir
stuðningi við frumvarpið og telja það
stórt skref fram á við í þágu neyt-
endavemdar. Jóhannes Gunnarsson,
SKILTAGERÐ
Ármúla 7 Tel. 354-1-685513
108 Reykjavík Fax 354-1-680017
HEKIA
Nýjung í Ijósaskíltum og kappalýsingu
in ár hefur Chanlight sýnt yfirburði um allan heim yfir
eldri ljósakerfum, í verulegum sparnaði í viðhaldi. Chain-
light ljosakerfið er aðeins 22 volt og auðvelt í uppsetn-
ingu. Líftími hverrar peru er ábyrgður í 16.000 klst.
Perurnar eru framleiddar og prófaðar af Philips
g bjóða auðveldlega uppá að tengja dimm-
ir og blikkara við þær. Chainlight Ijósa-
kerfin eru smíðuð úr riðfríum efnum
og eru sérstaklega þolin gagnvart
miklum hitabreytingum sem henta ís-
lenskum aðstæðum sérlega vel. Skiltin
eru framleidd eftir teikningu. Láttu hug-
myndir þínar í ljós utan- sem innan dyra.
TH MAGNÚSSON