Frjáls verslun - 01.08.1990, Síða 36
AUGLÝSINGAR
sætta sig ekki við úrskurð nefndar-
innar,“ segir Sólveig.
VALD TIL AÐ BANNA
Formaður auglýsinganefndar hefur
vald til að banna auglýsingar umsvifa-
laust í allt að eina viku eða þar til
nefndin hefur komið saman til að
úrskurða í málinu. Ef enginn úrskurð-
ur fæst að viku lokinni fellur bannið
niður. „Það skiptir miklu máli fjár-
hagslega fyrir auglýsanda ef auglýs-
ing er bönnuð og því er allt gert til að
hraða úrskurði nefndarinnar,“ segir
Sólveig.
Hingað til hafa menn undantekn-
ingarlaust hlýtt því banni sem siða-
nefnd SÍA hefur kveðið upp og eftir
því sem næst verður komist hefur
aldrei komið til þess, að Verðlags-
stofnun hafi þurft að sekta menn fyrir
brot á núverandi löggjöf. í ljósi þess-
arar staðreyndar vaknar sú spuming
hvort milljón krónu sektarheimild sé
ekki hálf tilgangslaus. Sólveig bendir
á að ef einungis væri um að ræða
hverfandi lága upphæð sem sektar-
heimild gæti það hreinlega borgað sig
fyrir ósvífna aðila að birta ólöglega
auglýsingu því sektin myndi aldrei
vera nema brot af þeim hagnaði sem
„ÞEGAR ÖLL KURL ERU KOMIN
TIL GRAFAR, KEMUR SVO í
UÓSAÐ
AUGLÝSINGAFRUMVARPIÐ Á
LÍKLEGA ENN DÁGÓÐA
EYÐIMERKURGÖNGU FYRIR
HÖNDUM INNAN VEGGJA
ALÞINGIS, ÞVÍ GILDISTAKA
FRUMVARPSINS1. OKTÓBER Á
ÞESSU ÁRI MIÐAST VIÐ AÐ
ÞAÐ YRÐISAMÞYKKT Á
SÍÐASTA ÞINGI. ÞAÐ LIGGUR
ÞVÍ UÓST FYRIR AÐ
ATKVÆÐAGREIDSLA GÆTI
DREGIST VEL FRAM Á NÆSTA
ÁROG GILDISTAKAN ENN
LENGUR."
fýlgdi hugsanlegri söluaukningu í kjöl-
far slíkrar auglýsingar.
Það er Ijóst að endalaust má deila
um gildi auglýsingafrumvarpsins.
Hinsvegar liggur það ljóst fyrir að
upphaflegur tilgangur stjómmála-
manna með því að setja „heildarlög-
gjöf um auglýsingar“, hefur ekki náð
fram að ganga. Engin afdráttarlaus
ákvæði eru t.d. um þau dæmi sem
Steingrímur J. Sigfússon og Eiður
Guðnason nefndu á sínum tíma og
segja má að nánast öll ákvæði frum-
varpsins megi túlka fremur frjálslega.
Það á því eftir að koma í ljós hvort
frumvarpið leiði til þeirra heilbrigðu
starfshátta, sem að var stefnt í upp-
hafi, þ.e. fyrir hartnær fjórum ámm.
Flest rök benda til þess að sjálfvirkt
eftirlit auglýsingastofanna, samfara
eftirliti siðanefndar SÍA og Verðlags-
ráðs, hafi tryggt hagsmuni allra við-
komandi aðila hingað til.
Þegar öll kurl eru komin til grafar
kemur svo í ljós, að auglýsingafrum-
varpið á líklega enn dágóða eyðimerk-
urgöngu fyrir höndum innan veggja
Alþingis því gildistaka frumvarpsins
1. október á þessu ári miðaðist við að
það yrði samþykkt á síðasta þingi.
Það liggur því ljóst fyrir að atkvæða-
greiðsla gæti dregist vel fram á næsta
ár og gildistakan enn lengur. Og aug-
lýsendur munu áfram bregða á leik á
meðan auglýsingafrumvarpið berst
við að „láta ekki vísa sér á dyr.“
Hótel Flúðir
FUNDA' OG RÁÐSTEFNUSALIR.
Sérbyggð gistiaðstaða í tengslum
við Skjólborg, opið allt árið.
Hverju herbergi fylgir sér bað og útisetlaug.
Verið velkomin
Hótel Flúðir
Hrunamannahreppi
(20 mín. keyrsla frá Selfossi)
sími: 98-66630