Frjáls verslun - 01.08.1990, Qupperneq 39
TOLVUR
DC/4 FRÁ DATACON:
■ ■ W
SVEIGJANLEGRA TOLVUBOKHALD
Hugbúnaður hf í Kópavogi er þekkt
fyrirtæki í sinni grein, m.a. fyrir keríi
á sviði verkfræði og gagnasamskipta.
Fyrr á þessu ári hófst samvinna Hug-
búnaðar og danska fyrirtækisins
DataCon um sölu á bókhaldskerfmu
DC/4. í Danmörku hefur DC/4 vakið
sérstaka athygli en það er notað af um
50 fyrirtækjum þarlendis. Hugbúnað-
ur hf. hefur þýtt kerfið og lagað að
íslenskum viðskiptahætti. Þar sem
DC/4 er hannað með alþjóðamarkað í
huga er auðvelt að aðlaga kerfið að
mismunandi starfsháttum, t.d. er
sérstaklega auðvelt að breyta skjá-
myndum og uppsetningu skráa.
Eigi í sem stystu máli að lýsa helstu
kostum DC/4 má segja að þeir séu
fólgnir í því að kerfið er hannað, þróað
og framleitt fyrir þá nýju kynslóð
tölva sem er margfalt afkastameiri en
tíðkaðist fyrir fáum árum. DC/4 nýtir
til fulls eiginleika og afköst nýrra tölva
en slíkt er ýmsum erfiðleikum háð
þegar eldri, jafnvel áratugs gömul
kerfi, eru endurbætt og uppfærð fyrir
nýjar gerðir tölva. Margendurbætt
kerfi geta verið ósveigjanleg, óþægi-
leg og bindandi og geta þannig dregið
úr eðlilegri framleiðni og því hagræði
sem hafa má af afkastamiklum tölv-
um.
Að sögn þeirra hjá Hugbúnaði er
eiginleiki kerfisins til að nýta afkasta-
getu nýrri gjörva jafnframt lykillinn að
sveigjanleika þess.
DÆMIUM SVEIGJANLEIKA
í DC/4 er hægt að ákveða fjölda
bókhaldstímabila ársins. Valmyndir
og skjái er hægt að hafa mismunandi
fyrir hvem notanda sé það talið æski-
legt. Viðskiptavini er hægt að flokka á
margskonarhátt, t.d. getur hann haft
ákveðinn afslátt á ákveðnum vöru-
flokkum, meiri eða minni afslátt á öðr-
um, hámarksúttektarheimild o.s.frv.
Með sérstakri tækni þjappar kerfið
skrám saman á diskum þannig að nýt-
TEXTI: LEÓ M. JÓNSSON
Yfirlit yfir einingar bókhaldskerfisins
ing þeirra er sem næst hámarki
hverju sinni. Engan aukabúnað þarf
að kaupa til þess að keyra DC/4.
BYGGT Á EININGUM
DC/4 er byggt upp með einingum
sem raða má saman eftir þörfum. Til
þess að nota kerfið þarf þó að kaupa
ákveðnar grunneiningar sem mynda
kerfiskjarna þar sem ákveðin eining
er forsenda amiarrar. Þannig byggja
allar einingarnar á íjárhag.
Kerfið getur tekið við bókhalds-
færslum úr öðrum kerfum sem ekki
eru hluti af DC/4. Þetta er gert kleift
með því að flestar einingar DC/4 kerf-
isins skila sjálfkrafa fjárhagsfærslum
inn í biðskrá sem síðan er færð sér-
staklega inn í ijárhagsbókhaldið.
Þessi aðferð hefur einnig aðra kosti
í för með sér svo sem í sambandi við
afstemmingar en þá er hægt að leið-
DC/4 frá Hugbúnaði hf.
rétta færslur áður en þær eru bókað-
ar.
REKSTRARSTÝRITÆKI
Einn liður í uppbyggingu DC/4 eru
þeir þættir þess sem notaðir eru til
upplýsingamiðlunar við stjómun
fyrirtækis. Auk áætlanakerfis em
ótal möguleikar á tölfræðilegum sam-
anburði, vísi- og kennitölum sem
nauðsynlegt er að hafa við stjórnun.
Einn þáttur kerfisins er sérstaklega
ætlaður markaðsöflun en með því má
vinna ítarlegt söluskipulag og m.a. fá
fram mælikvarða á árangur sölu-
mennsku.
í DC/4 er að finna einingar fyrir alla
bókhalds- og rekstrarþætti fyrirtæk-
is. Notandinn getur tekið kerfið í
notkun í ákveðnum þrepum, þ.e.
bætt við einingum eftir því sem óskað
er. DC/4 bókhaldskerfið getur tengst
39