Frjáls verslun - 01.08.1990, Síða 40
TOLVUR
s.k. kassakerfi frá IBM (4684) þannig
að uppgjör á kassa í verslun geti farið
sjálfkrafa inn í bókhaldsvinnslu. Um
það kerfi frá Hugbúnaði og fleirum
mun verða flallað síðar í F.V. LMJ.
ELFA
herbergisviftur - gróðurskála-
viftur - röraviftur - iðnaðarviftur
fjósviftur
Hagstætt verð.
Einar Farestveft&Co.hf
BORGJUtTÚNI 28, SÍMI622901
wsniuniL
\
TÆKITIL KERFISÞRÓUNAR
Tölvuþjónustan í Reykjavík (TÍR)
er um þessar mundir að kynna nýj-
ungar í hugbúnaði fyrir kerfisþróun
frá breska hugbúnaðarfyrirtækinu
LBMS í London. LBMS er einn af
frumkvöðlum á sviði aðferðafræði við
kerfissetningu og eru þróunarkerfi
þess notuð af mörgum stærstu fyrir-
tækjum hérlendis. LBMS þróaði á
sínum tíma þá stöðluðu kerfisfræði
sem notuð er af stærstu tölvunotend-
um í Bretlandi og víðar. Sá staðall
nefnist SSADM og var þróaður í sam-
vinnu LBMS og tölvuinnkaupastofn-
unar breska ríkisins (CCTA).
Tölvuþjónustan kynnir nú þróunar-
kerfi frá LBMS sem teljast til 2. kyn-
slóðar og eru viðameiri og fullkomnari
en eldri kynslóð LBMS-kerfanna.
Þau nýju geta gengið inn í umhverfi
þeirra eldri án þess að það takmarki
frekari þróun þess hugbúnaðar sem
fyrir liggur. Ríkisspítalamir eru með-
al þeirra sem tekið hafa 2. kynslóðina
í notkun.
Stöðluð aðferðafræði við kerfis-
þróun hefur marga augljósa kosti í för
með sér. Sá augljósasti er ef til vill að
slík keríi er hægt að gera þannig úr
garði að flytja megi þau á milli mis-
munandi tegunda tölva og stýrikerfa.
Stöðlunin gerir einnig kleift að beita
s.k. einingaforritun sem síðan leiðir
til þess að draga má úr tvíverknaði
þar sem sömu einingar koma iðulega
fyrir í mörgum mismunandi kerfum
og þarf þá ekki að skrifa kerfiskóðann
upp á nýtt. Hjá stærri notendum og
þeim sem hanna og framleiða hugbún-
að þýðir stöðluð aðferðafræði mögu-
leika á vandaðri framleiðslu bæði
varðandi galla í forritum og bættum
notendaleiðbeiningum. Þessi tækni
hefur verið notuð hérlendis frá því um
1981 og sem staðall frá 1984. Brautr-
yðjandi á þessu sviði eru Skýrsluvélar
ríkisins og Reykjavíkurborgar og á
meðal annarra notenda eru Flugleið-
ir, bankamir, Reiknistofa bankanna,
ísal, Kerfi hf, Hugur hf, o.fl.
Stöðluð aðferðafræði leggur
gmndvöll að þróun ýmiss konar tækni
sem flýtir fyrir og auðveldar gerð
hugbúnaðar. Forsenda slíkrar tækni
er sú að allir viðkomandi aðilar viður-
kenni stöðluðu aðferðafræðina. Það
gerði IBM ekki, a.m.k. ekki á nægi-
lega afgerandi hátt, fyrr en um þetta
leyti í fyrra þegar það kynnti stefnu
sína í þróun notendabúnaðar fyrir
SAA-umhverfið (AS400). Þar með
má segja að s.k. „CASE“-þróun hafi
loks fengið þann byr sem þurfti og nú
verði skammt stórra högga á milli.
HVAÐ ER „CA$E“?
CASE er skammstöfun á Comput-
er aided system engineering. Það
mætti þýða sem tölvustutt kerfisþró-
un. Á sama hátt og tæknimenn geta
nú notað tölvu til að auðvelda hönnun
(CAD-kerfi) geta þeir sem vinna við
þróun og kerfissetningu notað tölvu-
tæknina til að vinna ýmsa verkþætti á
sjálfvirkan hátt.
Stöðluð aðferðafræði við kerfis-
setningu skapar gmndvöll fyrir CA-
SE-tæknina. Þegar ólíkir aðilar beita
sömu grundvallaraðferð skapast
möguleiki á því að þróa verkfæri og
áhöld sem allir aðilar geta nýtt. En
40