Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1990, Page 44

Frjáls verslun - 01.08.1990, Page 44
UTLOND Margar fjármálastofnanir eiga í erfiðleikum út af sparisjóðahneykslinu. VANDINN FALINN A áttunda og níunda áratugnum fóru nokkrir tugir sparisjóða víðs veg- ar um land á hausinn en umfangið var ekki slíkt að ástæða þætti til að hafa áhyggjur af því. Litið var á þetta sem eðlilegan hlut í viðskiptalífmu og að FSLIC myndi taka við skakkaföllun- um sem sparifjáreigendur yrðu fyrir af þessum sökum. Það er hins vegar um miðjan níunda áratuginn sem ljóst verður að ekki er allt með felldu. Sérstaklega varð ástandið alvarlegt í Texas þar sem staðbundin kreppa þrengdi að fast- eignamarkaði og peningamarkaði. En á fáeinum mánuðum kom í ljós að vandinn var alvarlegur um allt land og alls ekki bundinn við sparisjóði í Tex- as eingöngu. Yfirstofnun FSLIC og sú, sem hafði eftirlit með sparisjóðum, varð Federal Home Loan Bank Board. Yfirmaður hennar, Danny Wall, var pólitískt skipaður og þegar ljóst var að ekki var allt með felldu í rekstri margra sparisjóða var komið nálægt forsetakosningum 1988. Mikið kapp var lagt á að sannfæra almenning og menn í viðskiptalífinu um að þessi vandi væri tiltölulega smár og auð- leysanlegur og Wall lýsti því yfir að ekki þyrfti nema um tuttugu milljarða dala til að koma málum í samt lag. Ekki var minnst á sparisjóðamálið í kosningabaráttunni, enda þögðu þeir „í ÁRSLOK1988 VAR KOSTNAÐUR VIÐ FYRIRSJÁANLEGT UPPGJÖR SPARISJÓÐA, METINN100 MILUARÐAR DALA, ÞAR AF 30- 50 MILUARÐAR VEGNA SPARISJÓÐA í TEXAS. ÞETTA VAR FYRIR UTAN 40 MILUARDANA SEM FSLIC HAFÐIGEFIÐ ÚTÍ SKULDABRÉFUM, SEMÞAÐGAT ALDREIGREITT AF.“ fáu stjómmálamenn, sem ljóst var hversu alvarlegt ástandið var þunnu hljóði. FSLIC hafði orðið fyrir verulegum búsifjum af gjaldþrotum sparisjóða og um mitt ár 1988 skuldaði stofnunin 70 milljarða dala og hafði veðsett ið- gjaldatekjur sínar mörg ár fram í tím- ann. FSLIC var því í raun sjálft komið í greiðsluþrot, en hafði þó ekki tekið á nema litlum hluta vandans. Þá tók Danny Wall og Federal Home Loan Bank Board upp á því að láta FSLIC gefa út skuldabréf til sparisjóða til að halda þeim á floti. Sjóðimir tóku við bréfunum og gátu talið þau til lausafjár þótt FSLIC gæti í raun hvorki greitt vexti né höfuðstól af þeim. Skulda- bréf af þessu tagi voru gefin út til 220 sparisjóða fyrir tæpa 40 milljarða dala árið 1988, þótt þingið hefði aldrei veitt heimild til þess né heldur væri ráð fyrir því gert á fjárlögum. í Texas réðist FSLIC í sérstaka björgunaraðgerð árið 1988 sem kölluð var Southwest Plan. Þar voru gjald- þrota sparisjóðir sameinaðir og reynt að selja þá. Þessi aðgerð hefur sætt mjög harkalegri gagnrýni og það ekki að ástæðulausu. FSLIC varð að gera kaupendum óvenjuleg gylliboð til að þeir fengjust til að leggja fé í gjald- þrota sparisjóði. Reyndar urðu kaup- endur einungis að leggja fram nýtt fé sem nam 1.5-3% af heildareignum sjóðanna, t.d. 15 milljónir í eins millj- arðs sjóð. í staðinn bauðst FSLIC til þess að tryggja greiðslur á útistand- andi lánum sem sparisjóðimir ættu, bæði vexti og höfuðstól, ef skuldarar greiddu þau ekki. Þetta var í raun óútfylltur tékki því enginn vissi hversu mörg lán myndu lenda í van- skilum. Það losaði líka kaupendur við alla áhættu þegar tekjur af vafasöm- um útlánum voru tryggðar, enda biðu kaupendur í löngum röðum eftir að komast yfir sparisjóði. Flestir kaup- endur voru fjársterkir einstaklingar og fyrirtæki, sem högnuðust vel á fjárfestingunni á skömmum tíma, þó ekki væri nema vegna skattfrádráttar sem þau gátu nýtt sér. „Salan“ á þessum sparisjóðum laut að auki sjaldnast viðskiptalögmálum heldur höfðu kunningsskapur og pólitísk tengsl áhrif á það hverjir hrepptu hnossið. 44

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.