Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1990, Side 45

Frjáls verslun - 01.08.1990, Side 45
Með blekkingum á borð við þessar var vandanum velt áfram án þess að nokkur vandi væri í raun leystur. Þessar „björgunaraðgerðir" voru til einskis annars en að auka kostnaðinn við endanlegt uppgjör um 40-50% fyrir hvern sjóð sem „seldur“ var á þennan hátt. í árslok 1988 var kostnaður við fyrirsjáanlegt uppgjör sparisjóða met- inn 100 milljarðar dala, þar af 30-50 milljarðar vegna sparisjóða í Texas. Þetta var fyrir utan 40 milljarðana sem FSLIC hafði gefið út í skulda- bréfum sem það gat aldrei greitt af. AÐGERÐIR AÐ L0KNUM K0SNINGUM Strax eftir forsetakosningar í nóv- ember 1988 gerði hin nýja ríkisstjórn Georges Bush sér grein fyrir að sparisjóðamálið væri hugsanlega af- drifaríkasta innanríkismálið sem hún þyrfti að fást við. Strax var hafist handa við að undirbúa uppgjör spari- sjóða sem ýmist voru gjaldþrota eða í greiðsluþroti. Um fimm hundruð sjóðir þörfnuðust umsvifalaust að- gerða og reikningurinn hljóðaði upp á eitt hundrað milljarða dala. FSLIC var í raun orðið gjaldþrota og ljóst að afla þyrfti fjár sérstaklega til þessara aðgerða. Fjárhagshalli hef- ur hins vegar verið mikill í Banda- ríkjunum og lög í gildi sem segja til um hversu mikill halli megi vera á íjár- lagaáætlunum. Bush-stjómin lagði fram tillögur um að FDIC yfirtæki starfsemi FSLIC og þar með eftirlit með spari- sjóðunum og að ný stofnun í Fjármála- ráðuneytinu, Office of Thrift Superv- ision, fengi þau völd sem Federal Home Loan Bank Board fór áður með. Sett var á fót sérstök tímabund- in stofnun, Resolution Trust Cor- poration (RTC), til að sjá um uppgjör- ið og skyldi hún fá fimm ár til verks- ins. RTC fengi hins vegar fé frá enn einni nýrri stofnun, Resolution Fund- ing Corporation, sem myndi afla fjár með útgáfu skuldabréfa, utan fjárlaga vitanlega. Allt varð þetta að veruleika og í ágúst á síðasta ári tóku gildi lög þar að lútandi. Sparisjóðir hafa alltaf haft sterk áhrif á Bandaríkjaþingi og miklar deil- ur stóðu um kröfur um lausafjárstöðu þeirra í nýju lögunum. Bush-stjórnin vildi að þær yrðu 6% af eignum árið 1991, sem eru sömu kröfur og gerðar eru til banka sem FDIC tryggir. Þing- ið lagði hins vegar til 3% lausafjár- kröfur sem tækju gildi 1995. Niður- staðan varð sú að frá og með 1991 verða sparisjóðir að ráða yfir lausafé sem nemur 3% af eignum. Þetta mun reynast mörgum sjóðum erfitt, enda er áætlað að 400 sjóðir nái ekki þessu marki og aðrir níu hundruð hafi lausa- fé sem nemur milli 3% og 6%. Hér er átt við þá sjóði, sem ekki eru þegar komnir í gjörgæslu, og einnig er í þessum tölum gert ráð fyrir að heimilt sé að reikna viðskiptavild, „goodwill“, sem lausafé. Samkvæmt lögunum frá í ágúst voru fimmtíu milljarðar teknir að láni til að bjarga 350 sparisjóðum og bæt- ist það við 40 milljarðana sem gefnir voru út í heimildarlausum skuldabréf- um handa 220 sjóðum árið 1988. For- maðurstjórnarFDIC, William Seidm- an, sagði nýlega á Bandaríkjaþingi að það þyrfti 100 milljarða til viðbótar á næsta ári til að ráða bót á vandanum og fáum kæmi á óvart þótt enn ætti eftir að bætast við þessar tölur. Heildarkostnaðurinn, að meðtöldum framreiknuðum vöxtum af fé sem tekið er að láni nú, er áætlaður þrjú til íjögur hundruð milljarðar og hærri tölur eru reyndar oft nefndar. Einn af hverjum fjórum sparisjóð- um í landinu er enn að tapa fé, sjóðirn- ir sem heild eru reknir með tapi (og eru þá undanskildir þeir sem eru í vörslu ríkisins), verðfall á fasteigna- mörkuðum getur haft veruleg áhrif til hins verra og vaxtahækkanir geta EKKERT HÚS ÁN ELDVARNA ENGIN FYRIRHÖFN - ÞÚ HRINGIR - VIÐ KOMUM ELDVARNAPJONUSTAN ÞJÓNUSTA í ÞJÓÐARÞÁGU ÞJÓÐBRAUT 1 - AKRANESI - SÍMI 93-1 32 44

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.