Frjáls verslun - 01.08.1990, Page 58
VINNUSTAÐURINN
algengum atvinnusjúkdómum, notk-
un hlífðarfatnaðar o.fl. Þá fer ýmis
önnur upplýsingastarfsemi fram, svo
sem fyrirlestrar, útgáfa bæklinga,
námskeið eru haldin og frá deildinni
koma greinaskrif í blöð og tímarit.
Loks má nefna ráðgjöf varðandi
vinnutækni með það fyrir augum að
draga úr óeðlilegu álagi á líkamann.
„Við höfum reynt að bjóða upp á
hópskoðanir í auknum mæli og
skemmst er að minnast athugunar
sem við gerðum á trésmiðum. Ann-
ars vegar var öllum trésmiðum á okk-
ar svæði boðið að koma hingað og
gangast undir almenna læknisskoðun
en hins vegar fengum við á 2. hundrað
smiða í sérstaka rannsókn á sk. tenn-
isolnboga. í ljós kom að þessi starfs-
stétt virðist vera með 2-3 sinnum
hærri tíðni þessa sjúkdóms en al-
mennt gerist og er sökudólgurinn
sennilega algengustu handverkfærin,
hamarinn og sögin.
Einnig höfum við gert rannsókn í
einstökum fyrirtækjum eða stofnun-
um. Síðasta vetur komu upp veikindi
hjá stórum hluta nemenda í fram-
haldsskóla í borginni og í ljós kom að
þau stöfuðu af hættulegum efnum
sem þar voru notuð við ófullnægjandi
loftræstingu".
Helgi sagði ljóst að starfsumhverfi
manna færi stöðugt batnandi hér á
Aðstaða á vinnustöðum byggingar-
manna er víða hörmuleg þótt sum
stærri fyrirtæki hafi bætt úr á síð-
ustu árum.
landi en einkum væru það minni
vinnustaðir sem enn byggju við slæm
skilyrði. Þróun til réttrar áttar stafaði
m.a. af auknu vinnuverndarstarfí með
tilkomu laga um aðbúnað og hollustu-
hætti á vinnustöðum frá árinu 1980 og
stofnun Vinnueftirlitsins en einnig
tengdist þetta auknum áhuga almenn-
ings fyrir hvers konar heilsuvernd og
aukinni meðvitund manna um eigin
líkama.
„Vinnustaðir eins og skrifstofur
hafa gjörbreyst til hins betra á síðustu
árum og kemur þar margt til. Tölvu-
búnaður léttir störfin, mun betra
framboð er af stólum og innréttingum
en áður var, lýsing er tæknilega út-
færð af sérfræðingum í mörgum til-
vikum og nú opna menn ekki nýtt
skrifstofuhúsnæði öðruvísi en hafa
komið fyrir fullkomnu loftræstikerfi.
Allt stuðlar þetta að þægilegra um-
hverfi til að starfa í og kemur í veg
fyrir ýmsa þá atvinnusjúkdóma sem
við höfum lengi átt við að stríða.
Öðru máli gegnir um starfsmanna-
aðstöðu hjá t.d. fólki í byggingariðn-
aði. Þar ríkir víða algjör miðalda-
menning og hreint ótrúlegt hvað
starfsmönnum er boðið upp á í þeim
efnum. Ástæðan er einföld: Víða eru
smærri byggingaverktakar eða
vinnuflokkar að verki með 2-3 menn í
vinnu og ekki talið taka því að koma
upp sérstakri aðstöðu til að matast í
eða ganga örna sinna. Ymsum hefur
dottið í hug hvort Reykjavíkurborg
gæti ekki komið upp aðstöðu af þessu
tagi í nýjum hverfum og leigt svo
byggingaraðilum aðgang. Það gæti
breytt miklu hvað þetta ástand varðar
í borginni."
MARGIR ÁHÆTTUHÓPAR
„Á íslenskum vinnumarkaði starfa
tugþúsundir manna við margvísleg og
afar misjöfn störf. Á hverju ári koma
upp margvíslegir sjúkdómar sem
tengjast atvinnunni og flesta þeirra
mætti koma í veg fyrir ef rétt væri á
málum haldið. Þessir sjúkdómar
valda einstaklingunum ómældum
sársauka og þjóðfélaginu í heild gífur-
legu tjóni.
Það er mín skoðun að sérstakri at-
hygli ætti að beina að áhættuhópun-
um, þ.e. starfsfólki sem við vitum að
býr við mesta hættu í starfi. SMka
hópa ætti að skoða reglulega og grípa
til aðgerða gegn fyrirsjáanlegum sjúk-
dómum áður en skaðinn er orðinn
mikill. Um leið þarf að stórauka allt
fræðslustarf til almennings og gera
fólk meðvitaðra um þær hættur sem
alls staðar Ieynast. Við hjá atvinnu-
sjúkdómadeildinni höfum gert ítar-
lega athugun á heilsufari brunavarða
og kafara og vel þyrfti að fylgjast með
starfsfólki í efnaiðnaði, svo dæmi sé
tekið“, sagði Helgi Guðbergsson yfir-
læknir að síðustu.
ARCHE PRO'FILE 386-33
Gæði framar öllu
TH. VILHELMSSON
Tölvudeild. Reykjavíkurvegi 62
Sími 91-650141, fax 91-653241
®EE
lc
iij m i Jy ] j ,J i
wnuvmtT
58