Frjáls verslun - 01.08.1990, Side 60
VINNUSTAÐURINN
HÁVAÐIÁ VINNUSTÖÐUM
ALVARLEGASTA
VANDAMÁLIB
300-400 TILKYNNINGAR UM HEYRNARTJÓN AF VÖLDUM HÁVflÐfl BERAST Á
ÁRIHVERJU. PETTA ER EINN ALVARLEGASTIATVINNUSJÚKDÓMUR í LANDINU
0G ÁHRIFIN ERU LANGVINN ÞVÍ HEYRNARTJÓN ER ÓLÆKNANDI.
Flest bendir til að hávaði sé
almennasta og alvarlegasta
vandamálið sem við er að glíma
á vinnustöðum hér á landi. Mæl-
ingar á vegum Vinnueftirlitsins
benda til að um 30% starfs-
manna í iðnaði séu að jafnaði í of
miklum hávaða. Einnig hefur
komið í ljós að 50-80% starfs-
manna í málm- og byggingariðn-
aði og svipað hlutfall hjá fisk-
vinnslu- og iðnverkafólki, telur
hávaða einkenna vinnustað
sinn um of.
Hljóðstyrkur sem nemur 85 dB og
þar yfir, getur verið skaðleg-jr heym-
artauginni og orsakað heymartjón
smám saman. Hátíðnisviðið hverfur
fyrst og eftir nokkurra ára viðveru í of
miklum hávaða verður vart við veru-
lega skerðingu á tónsviði venjulegs
samtals. Auðvitað er einstaklings-
bundið hvernig menn þola hávaða en
hann hefur þó ávallt eitthvert og oft-
ast varanlegt tjón í för með sér. Og
það sem verra er: Heyrnartjón er
ekki hægt að bæta með lækningu.
En hávaði veldur ekki aðeins
heyrnartjóni því hann orsakar truflan-
ir á líkamsstarfseminni. Menn verða
fyrr þreyttir, andlegar truflanir fylgja
oft í kjölfar mikils hávaða, streitan
heltekur menn og einbeitnin minnkar.
Sennilega er tjón af völdum hávaða
svo mikið sem raun ber vitni vegna
TEXTI: VALÞÓR HLÖÐVERSS0N
þess að fólk í daglegu lífi áttar sig ekki
á afleiðingunum fyrr en það er um
seinan. Fólk fer í stígvél og regnkápu
þegar það fer út í ausandi rigningu
vegna þess að annars blotnar það inn
að skinni. En poppari eða plötusmiður
lætur sig hafa það að vinna klukkutím-
um saman á degi hverjum án heymar-
hlífa í yfir 100 dB hávaða. í fyrra tilvik-
inu er „tjónið“ blaut skyrta eða sokk-
C^\Hljóðfrá bota ____ Hljóðstig
ur en í því síðara varanleg skemmd á
einu mikilvægasta skilningarviti
mannsins.
HVAÐ ER TIL RÁÐfl?
Það er með þennan atvinnusjúk-
dóm eins og aðra: Honum valda
margvíslegar ástæður og hann þrífst
best þegar lítið er gert til að verjast
honum og skeytingarleysi ríkir hjá
þolandanum um afleiðingar hans.
Vinnueftirlit ríkisins hefur á undan-
fömum ámm haldið uppi þróttmiklu
starfi til að leiðbeina starfsfólki um
notkun heymarhlífa og rekið áróður í
fyrirtækjum varðandi aukna vöm
gegn hávaða. í því sambandi er mikil-
vægast að ráðast gegn þessum vá-
gesti við upptök hans og koma í veg
fyrir að hann breiðist út. Við skulum
grípa niður í fræðslu- og leiðbeining-
arrit Vinnueftirlitsins nr. 6 frá árinu
1986, þar sem fjallað er um vamir
gegn hávaða.
„Það er gagnlegt að nota heymar-
hlífar svo langt sem það nær. Þær
leysa bara ekki sjálfan vandann. Og
því ætti að skoða þær sem eins konar
bráðabirgðalausn, en gera allt sem
unnt er til að dempa hávaða við upp-
tök hans - og koma sem best í veg
fyrir að hávaði, sem myndast, breið-
ist út.
Starfsmenn geta sjálfir lagt sig
fram um að dempa hávaða við upptök
hans með því að: Meðhöndla áhöld og
60