Frjáls verslun - 01.08.1990, Qupperneq 62
VINNUSTAÐURINN
eða á vöggustofu. En íþessum athug-
unum hefur komið í ljós að mun oftar
en ekki hefur hávaði verið yfir 85 dB,
en það eru þau hávaðamörk sem sett
hafa verið í reglum um hávaðavamir á
vinnustöðum.
Svokallaðar skammtamælingar eru
notaðar til að finna meðalhávaða sem
starfsmaður er í yfir átta stunda
vinnudag. í yfirliti yfir slíkar mælingar
á tímabilinu 1981-89 kemur í ljós að í
yfir níu starfsgreinum reyndust meira
en 80% starfsmanna vera í hávaða
yfir hættumörkum. Greinamar em:
Kaðla-, neta- og nótagerð, innrétt-
ingasmíði, hjólbarðaviðgerðir, efna-
iðnaður, málmsmíði, málmvöragerð
og vélaviðgerðir, skipasmíði og
skipaviðgerðir, öl- og gosdrykkja-
framleiðsla, prjónavöruframleiðsla,
sútun og verkun skinna. Einnig má
nefna vinnustaði eins og danshús, í
plastvörugerð er hávaði við hættu-
mörk og verulegur hávaði mælist í
hraðfrystihúsum.
í Fréttabréfi um vinnuvernd segir
að þeir sem starfi við hávaðamæling-
ar á vegum Vinnueftirlitsins, telji að
‘'Wlningur á fyrirbyggiandi aðgerðum
gegn hávaöa sé heldur að aukast en
sjáist ekki nægilega í verki. Hins veg-
ar hafi notkun persónuhlífa aukist
mikið.
Sérstök ástæða er til að hvetja
starfsmenn og forráðamenn fyrir-
tækja til að láta mæla hávaða á vinnu-
stöðum, ef gmnur leikur á að hann sé
yfir mörkum. Vinnueftirlitið annast
slíkar mælingar og gefur góð ráð til
úrbóta. í flestum tilvikum er hægt að
verjast hávaða með tiltölulega kostn-
aðarlitlu móti. Meginatriðið er að
koma í veg fyrir útbreiðslu hans og í
þeim efnum eru ýmis tiltæk ráð. Dugi
það ekki til fullnustu er hægt að grípa
til heyrnarhlífa af ýmsu tagi og saman-
lagt koma í veg fyrir að hávaðinn valdi
varanlegu tjóni á heilsu manna.
SKÝR ÁKVÆÐI í LÖGUM
í lögum um aðbúnað, hollustuhætti
og öryggi á vinnustöðum frá árinu
1980, eru skýr ákvæði um skyldur og
réttindi starfsmanna og atvinnurek-
enda. Sérstök ákvæði em einnig í
reglugerð um húsnæði vinnustaða frá
árinu 1975. Og enn skýrari ákvæði er
að finna í reglum um hávaðavarnir á
vinnustöðum og heymareftirlit
starfsmanna sem gilda frá 1. maí
1986.
í þessum reglum er kveðið á um
það að í nýjum fyrirtækjum skuli háv-
aði ekki vera meiri en 85 dB, miðað
við 8 stunda vinnudag. Skýrt er tekið
fram að fari hávaði yfir þessi mörk,
skuli starfsmenn bera heymarhlífar
sem atvinnurekandi lætur í té. At-
vinnurekanda er einnig gert skylt að
sjá um skipulagningu og framkvæmd
heymareftirlits, hávaðamælinga og
aðgerða til að draga úr hávaða.
í fyrrgreindum bæklingi frá Vinnu-
eftirlitinu um hávaða á vinnustað seg-
ir í lokin: „Allir, sem láta sig þessi mál
varða, ættu að kynna sér vel þessar
reglur, ekki síst ákvæðin um skyldur
starfsmanna, atvinnurekanda og
þeirra sem hanna, framleiða og setja
upp vélar og annan búnað“.
Við gerum þessi lokaorð að okkar
um leið og við hvetjum alla til að gæta
vel að heyminni og loka ekki þessu
mikilvæga skilningarviti vegna slóða-
háttar og skeytingarleysis um eigin
heilsu og annarra.