Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1990, Síða 76

Frjáls verslun - 01.08.1990, Síða 76
VINNUSTAÐURINN GLÆSILEGUR VINNUSTAÐUR: SAMBANDSHÚSIÐ SKOÐAÐ NOKKRIR GLÆSILEGIR VINNUSTAÐIR HAFA VERIÐ TEKNIR í NOTKUN Á SÍÐUSTU ÁRUM HÉR Á LANDIOG TEUAST í RÖÐ ÞEIRRA FREMSTU í HEIMINUM. SAMBANDSHÚSIÐ VIÐ KIRKJUSAND ER í ÞEIM HÓPI. Sambandið hefur átt í tals- verðum rekstrarörðugleikum á síðustu árum og mikið verið um það fjallað í ræðu og riti. Hitt hefur ekki vakið eins mikla at- hygli, að ekki alls fyrir löngu var stór hluti starfsemi þessa stærsta fyirtækis landsins, fluttur undir eitt þak og hlýtur nýja Sambandshúsið við Kirkju- sand að teljast eitt glæsilegasta skrifstofuhúsnæði landsins - og þótt víðar væri leitað. Sambandið hafði um hartnær sjö ára- tuga skeið verið til húsa við Sölvhóls- götu í miðbæ Reykjavíkur. Fyrir mörg- um árum hófust umræður um nauðsyn þess að komast í hentugt húsnæði með viðamikla starfsemi fyrirtækisins, en lít- ið aðhafst. Snemma árs 1988, hófust hins vegar framkvæmdir við breytingar á gömlu frystihúsi út við Laugarnes og er skemmst frá því að segja að á undra- skömmum tíma breyttist gamli hús- skrokkurinn í glæsilega byggingu, þar sem þörfum starfsmanna og viðskipta- vina er fullnægt eftir bestu getu. Við slógumst í för með Erling Aspe- lund starfsmannastjóra Sambandsins og Barða Theódórssyni húsverði í Sam- bandshúsinu, með það fyrir augum að lýsa fyrir lesendum Frjálsrar verslunar, því sem fyrir augu bar. ALLTRIFIÐINNAN ÚR Að sögn þeirra félaga var byrjað á því að rífa allt innan úr frystihúsinu og þegar uppbygging núverandi húss hófst, var ekkert eftir af því gamla nema steyptar plötur á súlum og tvö stigahús. Hafist var handa um endumýjun allra glugga, útveggir voru einangraðir utan sem inn- an, allar pípur hússins endurnýjaðar, ein TEXTI: VALÞÓR HLÖÐVERSSON. MYNDIR: GRÍ 76 hæð byggð ofan á gamla hússkrokkinn og húsið klætt að utanverðu með álk- Iæðningum. Tvö hús sem tengdust Sambandshúsinu voru rifin, en sam- tengdar frystigeymslur vestan hússins, fengu að standa áfram. Sambandshúsið við Kirkjusand er tæplega 7000 fermetrar að stærð. Á efstu hæðinni er forstjóraskrifstofa og öll sú starfsemi sem henni tengist, stór og rúmgóður matsalur svo og fundasalir og eldhús fyrir mötuneyti starfsmanna. Öll gólf efstu hæðar eru klædd niður- límdu parketi en inniveggir þar, sem og annars staðar, eru fluttir inn frá Bret- landi. Að sögn Gunnars Þorsteinsson- ar, sem hafði umsjón með byggingunni, bárust ein 12-14 tilboð í inniveggi húss- ins, en ákveðið var að taka tilboði frá innflutningsaðilanum Barr hf. Veggimir eru hannaðir með það fyrir augum að með auðveldum hætti sé hægt að IR BJARNASON breyta uppröðun þeirra án mikillar fyrir- hafnar. Hurðir innandyra eru íslensk smíð frá Tré-X í Keflavík. VIÐHALD í LÁGMARKI Hönnun Sambandshússins var í höndum Ormars Þórs Guðmundssonar arkitekts og var hún m.a. miðuð við að viðhald hússins yrði í lágmarki. Þess vegna var ákveðið að kaupa ALUCUBOND-álklæðningar frá inn- flutningsfyrirtækinu Júpíter í Garðabæ, en þær hafa reynst afar vel við erfiðar aðstæður hér á landi og erlendis um langt skeið. Klæðningar á þak hússins eru hins vegar frá Vímeti hf. í Borgar- nesi. Gluggar Sambandshússins eru allir úr tré, smíðaðir hjá Gluggasmiðjunni hf. í Reykjavík. Þeir eru klæddir álþynnum utanvert og þarf ekki að mála þá eða hafa áhyggjur af viðhaldi. Gluggasmiðj- Sambandshúsið við Kirkjusand er án efa ein glæsilegasta skrifstofubygging landsins og á sér fáar líkar í Evrópu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.