Frjáls verslun - 01.08.1990, Síða 79
VINNUSTAÐURINN
Á efstu hæð Sambandshússins er m.a. rúmgóður og bjartur matsalur starfs-
manna.
an sá sömuleiðis um smíði allra útihurða
og hurðasamstæðna að stigahúsum, en
þeir hlutir eru allir gerðir af áli.
Eins og áður sagði eru gólf efstu
hæðar hússins klædd parketi en aðrir
gólffletir eru með dúk eða korkflísum,
nema stigagangar, sem eru klæddir
marmara.
Sérstakar loftakiæðningar voru
keyptar frá íslenska verslunarfélaginu,
en ofan við þær er rými notað til að
koma fyrir loftræstistokkum, raflögnum
og öðru sem nauðsynlegt getur talist í
góðri skrifstofuaðstöðu.
Tölvukaplar í Sambandshúsinu eru
um 25 km að lengd og þeim er komið
fyrir í sérstökum stokkum undir glugg-
um hússins. Tengi fyrir rafmagn, tölvur
og síma eru með 2.5 metra millibili og
því auðvelt að færa til skilrúm án þess að
tengsl með þessum fjarskiptum rofni.
VÍÐfl GÓÐ AÐSTAÐA
Þeir Erling og Barði voru sammála
um að öll starfsmannaaðstaða í Sam-
bandshúsinu væri til fyrirmyndar. Aðst-
aða til að hita kaffi og smyrja brauð er á
öllum hæðum hússins, auk stóra eld-
hússins á efstu hæð. Þá eru auðvitað
snyrtingar og böð fyrir bæði kynin á
öllum hæðum og hvarvetna er þess
gætt við hönnun hússins, að fatlaðir geti
komist um það án hindrana. Fundasalir
eru í öllum deildum og þar hefur verið
komið fyrir hjálpartækjum eins og
myndvörpum, teiknitöflum, myndban-
dstækjum o.fl.
Að sögn Erlings Aspelund starfs-
mannastjóra eru tæplega 200 manns við
störf í Sambandshúsinu. Hann sagðist
ekki hafa orðið var við kvartanir vegna
slæmrar aðstöðu eða vegna galla á loft-
ræstikerfum eða öðru sem gerir lífið
bærilegra á vinnustaðnum.
Eins og sagði í upphafi þessarar
greinar, hafa mörg fyrirtæki hér á landi
ráðist í byggingar eða endumýjun á að-
stöðu fyrir starfsmenn sína. Þetta hefur
gerst víða í atvinnulífinu og nægir í
þessu sambandi að nefna glæsilega að-
stöðu fyrir starfsmenn og viðskiptavini
fyrirtækja eins og Sjóvá-Almennra, Öl-
gerðar Egils Skallagrímssonar, Hamp-
iðjunnar, Ríkisútvarpsins, Borgarleik-
hússins, Verðbréfamarkaðar íslands-
banka, Húsnæðisstofnunar, Granda hf.,
Plastprents, Ingvars Helgasonar hf.,
Úrvals-Útsýnar og Dagblaðsins-Vísis,
svo fáeins dæmi séu nefnd.
Þeir sem ganga um þessa vinnustaði
geta svo borið þá saman við aðstöðu
starfsmanna og viðskiptavina í öðmm
greinum atvinnulífsins. Nægir í því sam-
bandi að nefna sum bifvélaverkstæði,
byggingarvinnustaði og bflskúrsfyrir-
tækin sem virðast þrífast um land allt á
einhverju öðru en tillitssemi við starfs-
menn eða viðskiptavini.
Hurðirnar
sem allir
þekkja
GLÓFAXIHF
ARMÚO 42 108 REYKJAVlK SlMAR 34236 & 35336
TELEX 3071 ZIMSEN IS NNR. 2712-2043
79