Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1990, Page 81

Frjáls verslun - 01.08.1990, Page 81
verslun að hönnuðir lýsingar á vinnu- stöðum yrðu fyrst og fremst að hafa mismunandi aðstæður í huga. Það gæfi auga leið að annarrar lýsingar væri þörf á bifvélaverkstæði en á skrifstofu. Meginatriðið væri hins vegar að hafa næga lýsingu án þess að hún blindaði þann sem væri við störf. Of mikil lýsing væri oft á tíðum jafn- slæm og of lítil birta. Eins og áður sagði verður að miða lýsingu við aðstæður. Hún verður að vera þægileg en ofbirtu verður að forðast. Talið er heppilegt að lýsing við grófa vinnu þurfi að vera 200 lúx, við skrifstofuvinnu 500-750 lúx, við rannsóknarstörf 1000 lúx og við úr- smíði 2000 lúx. í fræðsluritum segir að best séu skilyrðin þegar mismunur ljósra flata og dökkra sé sem minnst- ur. LÍTIL NEYTENDAVERND Eins og allir vita sér Rafmagnseft- irlit ríkisins til þess að lampar sem hér eru á markaði uppfylli skilyrði um vamir gegn útleiðslu eða ofhitnun. Neytandinn er sumsé verndaður fyrir gallaðri vöru hvað slíka þætti snertir. En hvað með vöm gegn slæmum lömpum út frá ljóstæknilegum sjónar- miðum. Egill Skúli Ingibergsson for- maður Ljóstæknifélagsins svarar því: „Því miður hefur víða verið pottur brotinn í þessum efnum og sannleik- urinn er sá að almenningur hefur litla möguleika á að meta hvaða lampar í verslunum eru gæðagripir og hverjir ekki. Vissulega eru margar verslanir með gæðavöru á boðstólum og vel menntað starfsfólk til að leiðbeina viðskiptavinum, en hinu er ekki að neita að stundum freistast kaupmenn til að kaupa lélega lampa þar sem þeir k'ta alveg eins út og aðrir sem eru mun vandaðri. Dæmi eru þess að verðmis- munur sé margfaldur við innkaup enda þótt um sé að ræða nær eins útlítandi vöru. Munurinn liggur í ljós- tæknilegum gæðum sem ekki birtast fyrr en við notkun tækisins". Egill Skúli sagði að nú væri verið að þróa nýjan Evrópustaðal og væru margir framleiðendur þegar búnir að taka hann upp. Þá eru lampar merktir með skammstöfuninni SEN og gætu neytendur treyst á gæði ef slíka stafi væri að finna. Enn væru þó lampar á Lýsing gegnir margháttuði hlut- verki á vinnustöðum. markaði hér á landi án þessa gæða- stimpils og þá bæri að varast. Ljóstæknifélag íslands er með að- stöðu í Byggingarþjónustunni við Hallveigarstíg og þar er sérfræðingur til viðtals alla fimmtudaga frá kl. 16- 18. Ýmiss konar þjónusta er veitt þar, m.a. ráðgjöf varðandi lýsingu í heima- húsum eða á vinnustöðum, margvís- legt upplýsingaefni liggur frammi og aðstaða er m.a. til að prófa áhrif mis- munandi lýsingar við breytilegar að- stæður. Fyrir fundinn, ráðstefnuna eða kaffistofu fyrirtækisins. Sparaðu tíma og fyrirhöfn notaðu Duni kaffibarinn! Handhægur og þægilegur; ekkert umstang, -ekkert uppvask. Fannir hf. - Krókhálsi 3 Sími 672511 81

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.