Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1991, Page 6

Frjáls verslun - 01.04.1991, Page 6
5 RITSTJÓRNARGREIN 8 FRÉTTIR 22 ER HÆGT AÐ KOMAST AF? Fijáls verslun fékk flölskyldu á Akranesi til að halda saman öllum upplýsingum sínum um tekjur og gjöld í marsmánuði árið 1991. í kjölfar þess var blaðinu gefinn kostur á að skoða þessar upplýsingar og kynna þær lesendum blaðsins. Hér er um að ræða hjón með 3 böm. Þau eru dæmigerð fyrir það að þau eru að eignast eigið húsnæði sem skuldir hvfla á. Heildarlaun þeirra teljast góð miðað við það sem gengur og gerist hér á landi. En samt geta þau ekki leyft sér mikinn munað og víst er að það þarf á hverri krónu að halda til að ná endum saman. Rætt er við húsmóðurina á heimilinu um hagi fjölskyldunnar og það hvemig þau ráðstafa tekjum sínum. Einnig er rætt við Jóhannes Gunnarsson, formann Neytendasamtakanna, um það hvað almenningur í landinu geti gert til að fá sem mest fyrir takmarkaðar tekjur sínar og hvaða þjónustu Neytendasamtökin veiti í því sambandi. 33 INNRÉTTINGA- MARKAÐURINN Athugun var gerð á framboði innréttinga á markaðinum. Skoðaðar em hvers konar innréttingar og skýrt frá því helsta sem um er að velja. Sextán helstu seljendur innréttinga voru heimsóttir og er m.a. gerð grein fyrir verðhugmyndum og helstu möguleikum. 50 HVAÐ KOSTAR ÍBÚÐ í FJÖLBÝLISHÚSI ? Blokkaríbúðir verða til á svo mismunandi máta að einfalt svar um hvað ein slík kostar er ekki til. Oft em það tilviljanir sem ráða því hvar borið er niður þegar fólk festir kaup á íbúðarhúsnæði. Jón Kaldal, byggingarfræðingur og einn eigenda teiknistofunnar ARKO, fjallar um þá helstu möguleika sem em fyrir hendi við kaup á blokkaríbúðum. 59 VERKTAKASTARFSEMIN Valþór Hlöðversson heimsótti nokkur af helstu verktakafyrirtækjum höfuðborgarsvæðisins til að forvitnast um starfsemi þeirra og helstu verkefni. 82 AÐ KAUPA HÚS í BYGGINGU Samningar um kaup íbúða í byggingu em ótraustari en samningar um notað húsnæði. Ágreiningur rís oft um túlkun þeirra. Ekki em til staðlaðir kaupsamningar vegna sölu íbúða í byggingu. Við samningagerð þarf að gera ítarlega grein fyrir ástandi eigna því byggingaraðilar hafa ekki allir sama skilning á helstu byggingarstigum. í drögum að nýjum staðli eru skilgreind byggingarstig sem lýsa ástandi eigna á öllum framkvæmdastigum. Hann mun bæta samninga um sölu íbúða í byggingu. Stefán Ingólfsson, verkfræðingur, fjallar um þessi mál í ítarlegri grein. 89 ÞÖK ÍBÚÐARHÚSA Þakið er sá byggingarhluti sem af ýmsum orsökum er einna mikilvægastur. Flestir íslendingar hafa ímugust á flötum þökum vegna tíðra leka slíkra þakgerða. Hver þakgerð hefur reyndar bæði kosti og galla. Jón Sigurjónsson, yfirverkfræðingur hjá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins, fiallar um þök íbúðarhúsa frá ýmsum sjónarhomum í þessari grein. Rætt er við forsvarsmenn þessara fyrirtækja um ástandið í byggingariðnaðinum og horfur framundan. Þessir menn eru jafnan í hópi þeirra fyrstu sem nema sveiflur í átt til þenslu eða samdráttar í efnahagslífi landsmanna því byggingariðnaðurinn er að vissu leyti eins og barómeter á ástandið í þjóðfélaginu. 6
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.