Frjáls verslun - 01.04.1991, Blaðsíða 29
ulda sem þið hafið sett í veg fyrir
ykkur í sambandi við húseignina?
„Lánin eru vitaskuld öll til nokkurra
ára. Ætli við verðum ekki langt komin
á fimmtugsaldurinn þegar við verðum
loksins búin að eignast þetta. Mér
finnst nú ekkert aðlaðandi tilhugsun
að fólk sé að basla mikið á milli fertugs
og fimmtugs. Mér finnst að fólk eigi
þá að geta andað léttar. Þá á það að
vera búið að koma sér upp þaki yfir
höfuðið.“
Hefur þetta verið basl hjá ykkur?
, Ja, má ekki kalla það basl ef aðal-
fyrirvinnan vinnur allt árið um kring
og getur aldrei farið í frí. Ég kalla það
basl. Við þurfum að vinna mjög mikið
til þess að halda heimilinu gangandi.
Pétur vinnur sérstaklega mikið og
mér finnst að það ætti að skila sér
betur fyrir okkur. Hann þarf að vera á
sjónum nær allt árið um kring og það
er ekkert spennandi líf. “
Það kemur ekki mikið fram í bók-
haldinu hjá þér að þið leggið eitthvað
fyrir. Þið eruð þá ekki farin að leggja
fyrir peninga til efri áranna?
„Nei, við erum ekki byrjuð á því
ennþá. En við reynum alltaf að eiga
dálítinn varasjóð til að treysta á ef
eitthvað kemur uppá. Vonandi verð-
um við þó komin út úr þessu á efri
árum.“
Inga Dís og Pétur eru áskrifendur
að tveimur dagblöðum, Morgunblað-
inu og DV. Það kostar 2.200 krónur á
mánuði. Þau eru ekki áskrifendur að
tímaritum og eru ekki með Stöð 2. í
bókhaldi Ingu Dísar kemur fram að
hún hefur eytt 250 krónum í mynd-
bönd í marsmánuði. „Þetta er ein
barnaspóla. Annars er þetta óvenju
lágur kostnaður. Við horfum á rnynd-
bönd í skorpum þannig að stundum
eyðum við meiru í myndbönd. Stöð 2
er rosalegur tímaþjófur og þessar ei-
lífu endursýningar voru að gera mig
gráhærða. Við vorum með Stöð 2 þar
sem við bjuggum áður. En það verða
að vera einhver takmörk á fjölmiðla-
neyslunni og við kjósum frekar að
leigja myndbandsspólur. “
Inga Dís segir að fjölskyldan taki
oft þátt í Lottóinu og spili í D AS happ-
drættinu. í þetta fóru 4000 krónur í
mars. En hefur hún einhvem tímann
fengið stóra vinninginn?
„Nei, aldrei,“ segir hún brosandi.
Maður má vara sig á
greiðslukortunum, segir Inga Dís.
„En við styðjum í það minnsta góð
málefni með þessu. Ég sé ekki eftir
þessum peningum og hugga mig bara
við það að stóri vinningurinn eigi ör-
ugglega eftir að koma.“
Inga Dís segist hafa eytt 9.450
krónum í ýmislegt í marsmánuði. Þar
eru innifaldar klippingar fyrir bömin
og afmælisgjafir fyrir vini og ættingja.
Svo og meðal fyrir fiska, sem krakk-
arnir eru með í búri. „Þeir veiktust
nefnilega, greyin og þá urðum við að
fara í gæludýrabúð og kaupa meðal.“
Hún segir að það sé dýrt að eiga
börn. „Það er dýrast á vorin og haust-
in. Ég sauma mikið sjálf á börnin og
það hefur sitt að segja til að halda niðri
kostnaðinum við fatakaup.“
Hún og Pétur eru með tvö
greiðslukort: „Ég nota kortið aðal-
lega til að fleyta fjölskyldunni áfram á
milli uppgjöra hjá Pétri. Það er mjög
gott að hafa greiðslukort þegar þann-
ig stendur á en maður má vara sig á
þeim.“
Þegar öll útgjöld heimilisins eru
tekin saman kemur í ljós að fjöl-
skyldan á 1.035 krónur eftir en hefur
lagt fyrir 4.870 krónur. Niðurstaðan
hlýtur því að vera sú að það sé dýrt að
lifa á Islandi í dag og að þokkaleg laun
dugi varla til að framfleyta fimm
manna fjölskyldu sem jafnframt
stendur í húsakaupum.
ORYGGISGÆSLA
- ER OKKAR FAG
ÖRYGGISVERÐIR
Staðbundin gæsla eða farandgæsla til lengri eða skemmri tíma.
Pcningaflutningar og önnur sérverkefni.
ÖRYGGISKERFI
Gcra aðvart um innbrot, cld, flæðandi vatn, vélabilanir, afbrigðilegt
hitastig o.fl.
ÖRYGGISMIDSTÖD
Tckur við boðum frá aðvörunarkerfum um hvað sem er, hvaðan sem er af
landinu, hvenær sem er sólarhringsins og gerir strax viðeigandi
ráðstafanir.
ÖRYGGISÞJÓNUSTA
Ódýr, vönduð og viðurkennd af tryggingarfélögum og
dómsmálaráðuneytinu.
Ir
VARI
Þóroddsstöðum v/Skógarhlíð, Reykjavik
Pósthólf 1101, 121 Reykjavík
© 91-29399
29