Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1991, Side 53

Frjáls verslun - 01.04.1991, Side 53
hið rétta heiti samkvæmt lögum þar um: Félagslegareignaríbúðir. Lögfrá Alþingi segja til um hvemig kerfið skuli upp byggt. í meginatriðum er það þannig: Húsnæðisnefndir á veg- um sveitarfélaga eru framkvæmdaað- ilar fyrir íbúðabyggingunum. Einu sinni á ári er auglýst eftir umsóknum um þær íbúðir í sveitarfélaginu sem til úthlutunar koma það árið. Umsækj- endur skulu hafa búsetu í því sveitar- félagi þar sem sótt er um íbúð. Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um hagi umsækjanda. Á umsóknir er síð- an lagt mat og þeir, sem falla að þeim reglum sem unnið er eftir, komast inn í kerfið. Samningur er gerður á nafn einstaklings eða hjóna og er ekki framseljanlegur. Húsnæðisnefiid get- ur sagt upp samningi standi félagi ekki við skuldbindingar (greiðslur) sínar gagnvart félaginu. Eignarhlutfall er hið sama og hjá Búseta, einstakling- urinn greiðir 10% og lánuð eru 90%. Byggingasjóður verkamanna er lán- ardrottinn. Lánið er jafngreiðslulán með verðbótum og 1% vöxtum til 43ja ára. Á íbúðina eru þinglesnar kvaðir. Félagið (húsnæðisnefiidin) hefur for- kaupsrétt á íbúðinni í 30 ár og er reyndar skylt að kaupa hana fyrstu 10 árin (kaupskylda félagsins gagnvart félaga). Eftir 10 ár getur félagið hafn- að kaupum á íbúðinni eða gefið eftir forkaupsréttinn en Það fer eftir mati hveiju sinni. Sú staða getur komið upp að félagið hafi ekki áhuga á að leysa til sín íbúðina, t.d. vegna slæms ástands hennar. Engin lög eða reglur eru um rekstur og viðhald að öðru leyti en því að aðilar skulu stofna með sér húsfélög. Ekki er heimilt að leigja íbúðina út nema með samþykki hús- næðisnefndarinnar og ef leyfi fást þá er það aðeins til skamms tírna, eins árs eða svo. Veðsetning íbúðarinnar er óheimil án samþykkis húsnæðis- nefndar. Vilji viðkomandi losna við íbúð sína á fyrmefndu 30 ára tímabili og félagið leysir hana til sín fær hann sín 10% til baka með fullum verðbót- um að frádregnum afskriftum og mati á skemmdum íbúðarinnar hafi ein- hverjar orðið. Verði íbúðareigandi fyrir einhverri fjárhagslegri ógæfu þá er hann persónulega ábyrgur fyrir íbúðinni og það er opið að ganga að henni með dómsúrskurði. Ibúðin fer á „Þegar byggt er félagslega greiða félagsmenn það verð fyrir íbúðimar sem stjórnendur félagsins hafa viðurkennt sem byggingarkostnað.“ uppboð, Byggingarsjóður verka- manna leysir í öllum tilfellum til sín íbúðina, hún fer inn í kerfið og aftur til úthlutunar. Hér eru engin vemdun- arákvæði eins og í Búseturéttarkerf- inu. 3) Byggingasamvinnufélög: Þetta félagsform er í dag frábmgðið þeim fyrmefndu að því leyti að fjánnögnun og lánafyrirgreiðsla er sú sama og hjá hverjum og einum sem byggir sér eða kaupir húsnæði á hinum almenna markaði. í meginatriðum er kerfið þannig að einstaklingar stofna með sér byggingasamvinnufélag sam- kvæmt lögum þar um frá Alþingi ís- lands. Stofnuð er stjóm, sem ein- göngu er skipuð félagsmönnum, og stjómin ræður framkvæmdastjóra. Innan félagsins eru stofnaðir bygg- ingahópar með sjálfstætt bókhald og uppgjör gagnvart félaginu. Á bygg- ingatímanum ber félagið ábyrgð á öll- um verklegum framkvæmdum og á jafnframt forkaupsrétt á íbúðunum þar til uppgjöri er lokið. Aðalfundur er haldinn einu sinni á ári þar sem mál- efni félagsins em rædd og reikningar lagðir fram til samþykktar. Byggjend- ur (einstaklingar) em persónulega ábyrgir fyrir öllum þeim lánum, sem þeir taka, og getur verið um hin ýmsu lán að ræða, t.d. frá Húsnæðisstofn- un ríkisins, lífeyrissjóðslán o.s.frv. Lán Húsnæðisstofnunar til hins al- menna borgara getur í mesta lagi orð- ið 75% af byggingakostnaði íbúðar- innar og lánstfini er 40 ár. Hvort fullt lán fæst eða hluti þess fer eftir mati sem gert er á greiðsluhæfni viðkom- 53
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.