Frjáls verslun - 01.04.1991, Page 68
AS/400 vélbúnaður ásamt geisladiskum með gífurlegu geymslurými.
sem sýna afburða árangur í útfærslu
á gæðahugtakinu.
Fjárfesting sem heldur velli
Einn helsti kostur nýju AS/400 tölv-
unnar er aukinn vinnsluhraði, en hún
er þrisvar sinnum hraðvirkari en þær
fyrstu sem komu á markað frá IBM. Þá
má einu gilda hvort fest eru kaup á
búnaði fyrir einn eða tvö þúsund not-
endur. Stýrikerfið er ávallt hið sama.
Að þessu leyti hentar tölvan öllum
stærðum fyrirtækja. AS/400 lagar sig
KYNNING
með öðrum orðum að auknum um-
svifum notenda og fjárfestingin í
tölvubúnaðinum heldur þannig gildi
sínu.
Staðið við gefin loforð
Með þessu efnir IBM loforð sem fyrir-
tækið gaf fyrir þremur árum, um að
viðskiptavinirnir gætu stækkað vél-
búnað sinn með auknum þörfum
þeirra sjálfra. Þeir sem nota og þekkja
nú þegar miðlægu AS/400 tölvurnar
eiga þess nú kost að breyta búnaði
sínum og bæta hann með þeim nýj-
ungum sem nú hafa verið kynntar.
Ný tækni - skref til nýrrar aldar
Mannleg greind er hæfileikinn til þess
að leysa úr nýjum og áður óþekktum
vandamálum. Þannig hljóðar vel
þekkt skilgreining á mannlegri
greind. Með gervigreind er reynt að
nálgast þessa skilgreiningu. Það hef-
ur nú verið gert að nokkru leyti með
nýju AS/400 tölvunum. Þeim er kleift
að greina afköst sín og gefa til kynna
hvort og hvar „flöskuháls" er í vinnslu-
ferlinu þegar unnið er úr umfangs-
miklum og flóknum gögnum. Galdur-
inn er hinsvegar sá, að tölvan finnur
sjálf leiðirtil þess að breyta vinnsluað-
ferðum og leysa vandann.
Meðal annarra tækninýjunga eru
margátta gjörvar (N-way proces-
sors). Tveir slíkir eru í AS/400 D80
vélinni sem gera hana allt að 75%
hraðvirkari en B70 gerðina.
í D25 gerðinni og öllum 9406 gerð-
unum eru CMOS minnisflögur (0.4
nanosekúnda!) og notað er 4MB
DRAM minni (Dynamic Random
Access Memory).
Unnt er að fá nýja gerð segul-
bandsstöðvar með 3,2 GB geymslu-
rými og nýjan geisladisk sem hefur 18
GB geymslurými. Við stærstu gerðir
nýju vélanna er unnt að tengja 14 slíka
diska, en þeireru ákjósanlegirtil þess
að geyma gögn sem oft eru notuð en
breytast lítið, svo sem myndir og
teikningar.
Fjölmargar aðrar nýjungar voru
kynntar í Verslunarskólanum, eins og
Einar Jóhannesson, kerfisfræð-
ingur hjá IBM á íslandi, segir, að
um skeið hafi verið Ijóst, að tals-
verður markaður væri fyrir hug-
búnað til samskipta milli tölva og
tölvukerfa um póst- og símakerfið,
ekki síst í tengslum við miðlægu
IBM RISC System/6000 tölvuna,
sem kom á markað í fyrra.
„Þegar málið var kannað nánar
kom á daginn, að markaðurinn var
nánast óplægður erlendis. Með
greiðum aðgangi að alþjóðaneti IBM
var okkur kleift að gera býsna ítarlega
könnun á markaðnum á stuttum tíma.
(Ijós kom að um verulega sölumögu-
leika er að ræða. Við höfðum sam-
band við Hugbúnað hf. í Kópavogi
um hönnun, dreifingu og þjónustu
varðandi slíkan hugbúnað. Hugbún-
aður hf. í Kópavogi hefur nú þegar
flutt út talsvert af HBX-PAD og ekki
annað að sjá en að þetta gangi bæri-
lega vel. Meðal annars hefur fyrirtæk-
ið gert sölusamning við Þjóðverja,
Spánverja, Ástrali, Finna og tvo
samninga við dreifingaraðila í Banda-
t.d. 400 MB diskur fyrir 9402 og 9404
gerðir AS/400 tölvunnar.
En að öllu samanlögðu er óhætt að
segja, að með nýju IBM AS/400 tölv-
unum hafi verið stigin mikilvæg skref í
átt til nýrrar aldar. •
ríkjunum. Samningar við önnur lönd
eru í deiglunni, þar á meðal við Dan-
mörku, Noreg og Bretland. Áhuginn
er mikill. Við fáum eina til þrjár fyrirsp-
urnir á dag,“ segir Einar.
Lipur samskipti milli tölva
HBX PAD hugbúnaðurinn verkar á
tvo vegu. RISC System/6000 tölvan
er tengd X 25 gagnaneti Pósts og
síma með X 25 tengispjaldi, mótaldi
og símalínu. Hugbúnaðurinn sér síð-
an um að taka við upphringingum frá
allt að 256 notendum samtímis og
gefur þeim aðgang að verkefnum á
RISC System/6000 tölvunni. Notend-
ur sem vilja tengjast tölvunni á þenn-
an hátt geta gert það með PC eða
PS/2 tölvu og upphringimótaldi eða
frá tölvum sem eru tengdar beint við
Gagnanet Pósts og síma. í öðru lagi
gerir HBX PAD hugbúnaðurinn not-
endum kleift að hringja út úr RISC
System/6000 tölvunni í aðrar tölvur
hérlendis eða erlendis sem einnig eru
tengdar gagnaneti Pósts og síma.
•
HBX PAD:
HUGBÚNAÐUR FYRIR
SAMSKIPTI UM GAGNA-
NET PÓSTS OG SÍMA
68