Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1991, Page 71

Frjáls verslun - 01.04.1991, Page 71
MISMUNUN í VAXTAKIÖRUM Haraldur Sumarliðason: Fyrirtæki í þessum iðnaði eru að stækka og eru því færari um að taka að sér flókin verkefni. - SEGIR HARALDUR SUMARLIÐASON FOR- SETILANDSAMBANDS IÐNAÐARMANNA „Eitt helsta vandamál þessa iðnaðar nú eru hin misjöfnu vaxtakjör sem ríkja á húsnæðis- lánum hins opinbera. Húsbréfa- kerfið er ágætt að mörgu leyti en á því eru margir vankantar sem sníða þarf af. Meginvandinn er sá að gífurleg mismunun ríkir á milli þeirra, sem fá lán til bygg- ingar félagslegra íbúða, og hinna sem eru á almenna mark- aðnum. Afföll af húsbréfum eru nú 17% og það er mín spá að í haust verði þessi tala farin að nálgast 25% með kostnaði ef ekkert verður að gert. Það sér hver maður að slík lánskjör geta ekki gengið og að þau eru eng- inn valkostur fyrir það fólk sem hyggst kaupa nýtt húsnæði,“ sagði Haraldur Sumarliðason, byggingameistari og forseti Landssambands íslenskra iðn- aðarmanna. Haraldur sagðist trúa því að hús- bréfakerfi í einhverri mynd væri kom- ið til að vera en hins vegar þurfí það verulegra lagfæringa við. Vandamál kerfisins væri það að fjármögnunin færi fram á fjármagnsmarkaðnum og að mikið framboð alls kyns verðbréfa gerði kerfinu erfitt fyrir. „í dag er það svo að afföll af hús- bréfum auk kostnaðar sem þeim fylg- ir, losar 20% af nafnverði bréfanna. Þetta lagast auðvitað ekki fyrr en rík- issjóður dregur úr þörf fyrir lántökur innanlands sem leiðir af viðvarandi halla á ríkisbúskapnum. Lánsfjárþörf- in eykst ár frá ári og þessi sókn ríkis- sjóðs í lánsfé spennir auðvitað vaxta- stigið upp úr öllu valdi.“ Haraldur sagði að engu skipti hvort seljendur húsnæðis tækju á sig afföll- in eins og nú væri rætt um því það myndi aðeins leiða til hækkunar á íbúðaverði. Miklu betra væri að hækka föstu vextina af bréfunum því útreikningar sýndu að slík aðgerð skilaði sér í minni afföllum. „Við slíka vaxtahækkun færi sá, sem ætti bréfin áfram til ávöxtunar, mjög svipað út úr dæminu miðað við 25 ára tímabil. Skuldarinn hefði hins vegar hag af slíkri breytingu því hún þýddi betri kjör meðan á byggingu húsnæðisins stæði. Það er einmitt á fyrstu 2-3 árunum eftir húsbyggingu sem fólk á í basli og það ástand þarf að laga“, sagði Haraldur ennfremur. Haraldur hefur allmarga menn í vinnu og sumir hafa starfað hjá honum í allt að 20 ár. Er slíkt ekki fátítt í byggingariðnaðinum? Jú, það skilst mér raunar. í mínu fyrirtæki hefur þetta verið afar mikils virði, ekki síst vegna þess að ég hef stússað í félagsmálum um langt skeið og því getað treyst á góðan mann- skap. Kannski skiptir fátt meira máli í rekstri fyrirtækja en einmitt það að starfsmenn séu samhæfðir og traust- ir í hverju verki.“ Við spurðum Harald Sumarliðason, forseta Landssambands iðnaðar- manna, hvernig ástandið á markaðn- um væri nú og hvort hann væri orðinn ofmettaður? „Það hefur verið talað um að á höf- uðborgarsvæðinu væru 500-600 íbúðir óseldar. Við hjá Landssam- bandinu teljum þessa tölu of háa og að nær væri að tala um 200-300 óseldar íbúðir en þá er viðmiðunin sú að þær séu í byggingu frá því að vera fokheld- ar þar til þær eru fullbúnar. Þetta er í raun og veru lítið meira en verið hefur á undanfömum árum. Það sem helst hefur breyst er að fólk festir síður kaup á húsnæði nema það sé nokkum veginn tilbúið til afhendingar. Áður fyrr var gjarnan selt mun fyrr á bygg- ingartímanum. Þetta breytir auðvitað miklu í fjármögnum framkvæmda. Hvað framtíðin ber í skauti sér er erfitt um að segja en fari afföll af hús- bréfum hækkandi á næstu mánuðum sjá menn auðvitað sæng sína út- breidda. Það mun leiða til þess að meginhluti bygginga verður í félags- lega kerfmu en að hinn almenni sölu- markaður lognist smám saman út af.“ Ég held þó að það sé okkur íslend- ingum ekki eiginlegt að búa slíkt kerfi og þessvegna sé brýnt að lagfæra þá vankanta sem nú eru á almenna kerf- inu til að auðvelda fólki að eignast sitt eigið húsnæði á frjálsum markaði," sagði Haraldur að lokum. 71
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.