Frjáls verslun - 01.04.1991, Qupperneq 73
KREPPAN ER í FJÖLMIÐLUNUM
- SEGIR JÓNINGIGÍSLASON HJÁ SH VERKTÖKUM
Jón Ingi Gíslason: Viðtökurnar í Setbergshlíðinni hafa verið frábærar.
Ástandið á þessum markaði
hefur í sjálfu sér verið ágætt á
síðustu misserum og virðist fara
batnandi, að minnsta kosti ef ég
horfi á þetta frá okkar sjónar-
hóli. Kreppan í byggingariðnað-
inum hefur því aðallega verið í
fjölmiðlunum. Aftur á móti er
þessi markaður mjög að breyt-
ast þar sem menn nýta sér æ oft-
ar kosti lokaðra útboða sem
Ieiðir til grisjunar þeirra sem
hafa staðið sig illa,“ sagði Jón
Ingi Gíslason, framkvæmda-
stjóri SH verktaka í Hafnarfirði.
Byggingarfyrirtækið SH verktakar
var stofnað árið 1985 og hefur staðið
fyrir ýmsum stórframkvæmdum eins
og brú yfir Ölfusá við Óseyrarnes,
tveimur brúm yfir Miklubraut og út-
sýnishúsi á Öskjuhlíð, svo fáein dæmi
séu nefnd. Vinnunnni við útsýnishús-
ið lýkur í sumar en þáttur SH verk-
taka hefur verið smíði innréttinga í
húsinu svo og allur frágangur á lóð.
Það verkefni, sem mun taka mestan
tíma þeirra hjá SH verktökum á
næstu árum, er hins vegar bygging
103 íbúða í sk. Setbergshlíð í Hafnar-
firði. Við báðum Jón Inga að segja
lesendum blaðsins undan og ofan af
því verki.
„Hér er um mjög spennandi verk-
efni að ræða og má segja að það sé
alfarið á okkar ábyrgð. Við tókum við
landinu óskipulögðu og munum sjá um
alla hönnun og framkvæmdir til loka.
Þessi háttur er að okkar viti mjög
ákjósanlegur því hann gefur okkur
svigrúm til að nýta eigið hugvit starfs-
manna okkar og stuðlar um leið að
ódýrri en afar skemmtilegri lausn.
Viðtökurnar á þessu svæði hafa líka
verið eftir því og sala farið langt fram
úr björtustu vonum.“
Jón Ingi kvað þetta eina albestu
leiðina til að ná niður byggingarkostn-
aði og að hún nýtti mjög vel hag-
kvæmni stærðarinnar og þá mögu-
leika sem fælust í því að hafa alla
framkvæmd í heilu hverfi á einni
hendi.
Ibúðahverfið Setbergshlíð er á um
þriggja hektara landi sunnanvert í
Fjárhúsholti. Hverfið skiptist í efri og
neðri byggð. Að þeirri efri er aðkoma
úr norðri um Klukkuberg. Ofan við
götuna eru sérbýlishús með 56 íbúð-
um en neðan við eru 3 raðhús og 9
einbýlishús. Boðið verður upp á bíl-
skýli fyrir þá sem þess óska. Aðkoma
að neðri byggðinni er hins vegar um
Klettaberg að þremur raðhúsum og 8
stallahúsum sem skiptast í fjórar
íbúðir hvert. Á milli byggðanna
tveggja er opið svæði.
Að sögn Jóns Inga verður þetta
skemmtilega hverfi byggt upp í þrem-
ur inegin áföngum. í fyrsta áfanga,
sem þegar er hafmn, verður byggður
helmingur séríbúðanna efst á hæðinni
og er ætlunin að ljúka þeim áfanga í
sumar.
í öðrum áfanga verður lokið við
séríbúðirnar, hafist handa við helming
stallahúsanna og lokið við ýmsan frá-
gang utandyra, svo sem leiksvæði og
götur í þessum hluta hverfisins.
I þriðja áfanga verða svo seinni
stallahúsin við Klettaberg byggð og
lokið við frágang gatna og sameigin-
legra svæða í hverfinu öllu.
„Þegar við gerðum samning við
Hafnarljarðarbæ um þessa uppbygg-
ingu var miðað við að hverfið yrði
fullbúið 1994. Eftir viðtökunum að
dæma frá því við hófum að markaðs-
færa Setbergshlíðina gætum við stytt
byggingartímann um 1-2 ár,“ sagði
Jón Ingi hjá SH verktökum. Hann
sagði hverfið einstaklega vel í sveit
sett með skóla í snertispöl frá og stutt
væri í aðra þjónustu eins og leikskóla
og verslanir. Þá væru göng undir
Reykjanesbrautina og örfárra mrn-
útna gangur meðfram læknum niður í
miðbæ Hafnarfjarðar.
73