Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1991, Page 88

Frjáls verslun - 01.04.1991, Page 88
UTGAFA RITUM Alkunna er að Islendingar hafa byggt mikið á síðustu árum og raunar meginhluta þess íbúð- arhúsnæðis sem nú er til í land- inu. A sama tíma hafa framfarir í byggingariðnaði orðið afar mikl- ar, bæði hvað snertir tækni í vinnubrögðum og sjálf bygging- arefnin. Sífellt koma nýjungar fram á þessum markaði og mik- ils um vert að notendur, bæði iðnaðarmenn og byggjendur sjálfir, geti fylgst með á þessu sviði. Vímet hf. í Borgarnesi er nú að undirbúa útgáfu kynningarrits um framleiðsluvörur fyrirtækisins. Þar verður almennur fróðleikur um notk- un báraðra stálplatna til húsaklæðn- inga og í frétt frá fyrirtækinu segir að í ritinu sé kappkostað að fara hlut- drægnislaust með staðreyndir og birta niðurstöður hlutlausra rann- sókna og prófana. Verkið er að miklu leyti unnið af Birni Marteinssyni, verkfræðingi hjá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins, en einnig hafa Pétur Sigurðsson efnaverkfræðingur og fleiri lagt hönd á plóginn. í þessu kynningarriti Vímets hf. verður fjallað um ýmsar gerðir klæðningarstáls, mismunandi form þess, meðhöndlun platnanna við geymslu og uppsetningu o.fl. Þá er í ritinu að finna ýtarlegan fróðleik um þetta vinsæla byggingarefni sem einkum er ætlaður verkfræðingum og arkitektum. Við skulum grípa niður í einum kafla ritsins, en það er nú í handriti. Þar er fjallað um flutning efnis og geymslu á byggingarstað: „í flutningum á byggingarstað, við upphífingu og festingu, ber að með- höndla stálplöturnar með gætni og gæta þess sérstaklega að lakkhúð verði ekki fyrir skemmdum. Gæta skal þess, þegar plata er tekin úr stæðu, að lyfta henni beint upp, en KLÆBNINGAR Miklu skiptir að umgangast stálklæðningar með réttum hætti. draga hana ekki yfir nærliggjandi plötu. Við upphífmgu á hærri bygg- ingar ætti að nota pall undir plöturnar. Ef geyma þarf stálplötur um lengri tíma á byggingarstað, er gott að hafa eftirfarandi í huga: 1) Ganga vel frá plötunum í stæðu, þar sem ekki mæðir mikið á. 2) Setja trébúta undir plötustæð- una til að betur lofti um og verja þá fyrir vatni. Ef þeir ná að gegnblotna getur myndast hvítryð við snerti- punkta járns og trés. 3) Hafa góðan halla á plötunum í stæðunni svo að vatn, sem hugsan- lega næði niður á þær, renni af þeim aftur, því að ef vatn nær að liggja inn á milli platna er hætta á hvítryðsmynd- un. 4) Setja yfirbreiðslu á stæðuna, sem heldur vatni, en er þó ekki alveg loftþétt. Það hefur t.d. sýnt sig að yfirbreiðslur úr gerviefni henta ekki vel til þessa.“ Sannast sagna hefur rit eins og þetta vantað á almennan markað. Upplýsingarnar hafa legið dreifðar í ýmsum sérritum sem almenningur hefur haft takmarkaðan aðgang að. Markmið ritsins er því að kynna fram- leiðsluvörur fyrirtækisins með hlut- lausum hætti en umfram allt að stuðla réttri meðferð og betri endingu þessa þekkta byggingarefnis. Kynningarriti Vírnets hf. verður til dreift í lok maímánaðar og sér fyrir- tækið um dreifmgu þess. 88
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.