Frjáls verslun - 01.04.1991, Síða 90
ÞOK
• Þök skulu vera vel einangruð.
• þau skulu þola mestu veður-
hamfarir.
• þau skulu, stundum a.m.k.,
veita birtu í bæina.
• þau skulu ekki svigna eða titra
svo til óþæginda sé.
• þau skulu falla vel að aðlægri
byggð og vera falleg.
• þau skulu helst einnig vera við-
haldsfrí.
ÞAKHALLIOG EFNISVAL
Eðlilega má skipta þökum í flokka
eftir þakhalla.
— Lárétt þök (halli minni en 1,4.)
— hallalítil þök (halli 1,4 -14 ).
— brött þök (halli meiri en 14°).
Eðlilega kallar hver þessara flokka
á ákveðna gerð þakklæðninga. Þótt
gamla, góða bárujárnið sé ágætt þak-
efni er það alls ekki heppilegt á halla-
lítil þök og ennþá síður þau trapisu-
laga málmklæðningarefni sem vinsæl
hafa verið síðasta áratuginn. í raun er
ágætis viðmiðun að nota ekki báraðar
málmklæðninpar á þök með minni
halla en 14. A hallaminni þök er því
skynsamlegt að velja önnur þakefni,
t.d. þakpappa eða svokallaða þakdúka
sem geta verið úr ýmiss konar plast-
efnum. Vanda verður þó sérstaklega
til frágangs þessara efna til þess að
þau þoli þau veður sem virðast koma
hérlendis a.m.k. 10. hvert ár.
Sú spurning vaknar oft hjá húseig-
endum og húsbyggjendum hvaða
gerð þakklæðninga sé best. Algeng-
ast er að verið sé að velja milli mis-
munandi málmklæðningargerða.
Undirritaður telur ekkert eitt svar
fullnægjandi við þessari spumingu.
Draga má fram ákveðna hjálpar-
punkta til að auðvelda valið sem end-
anlega ræðst síðan af smekk og fjár-
ráðum viðkomandi.
1. Heppilegra er að velja bárulaga
málmklæðningu heldur en trapisu-
laga, einkum fyrir hallalítil þök. Þær
leka síður, minna vatn rennur íhábáru
að naglagötunum.
2. Varast ber að velja of þunnt
klæðningarefni. Að mati undirritaðs
er 0,6 mm þykkt lágmarkið.
3. Almennt er viðurkennt að litað-
ar málmklæðningar (litur eru mis-
munandi) séu betur varðar en venju-
legar galvanhúðaðar bárujárnsplötur
Þakið verður fyrir margvíslegu álagi.
gagnvart tæringu. Hins vegar ríkir
enn nokkur óvissa um hvemig standa
skuli að viðhaldi þeirra.
4. Álsinkhúðaðar málmklæðning-
ar hafa betri tæringarvörn en sink-
húðaðar (galvanhúðaðar) plötur en
verja ekki jafn vel klipptar eða nagað-
ar brúnir.
5. Vissir litir (blátt og rautt) upplit-
ast frekar en aðrir.
rV
JLlI
6. Gætið þess að velja festingar
sem hæfa klæðningarefninu.
NEGLING OG FRÁGANGUR
Nýlega geisaði fárviðri um mikinn
hluta landsins. í fréttum bar mikið á
jámplötufoki og þakfoki.
í mörgum tilvikum var hér um til-
tölulega nýleg hús að ræða þótt mikið
af þessum plötufokum væri af göml-
um og illa hirtum húskofum sem ekk-
ert viðhald höfðu fengið lengi.
Vindálag er flókið fyrirbrigði og
skrifa má lærðar og torræðar vísinda-
greinar um hegðun, orsakir, tíðni og
afleiðingar þess að vindhraði, sem er
um 50 metrar/sek., geisist yfir byggð
ból. Á hinn bóginn gerist þetta æði oft
svo að þekking okkar og verkkunn-
átta er nægileg til að ráða við þessi
áföll. Með tilkomu betri festinga hin
síðari ár er það algjör aulaháttur af
hendi þeirra, sem festa málmklæðn-
ingar, ef þær fjúka þótt vindur blási
50-55 m/s.
Einföld neglingaráð koma alveg í
veg fyrir þetta ef eftir þeim er farið.
Neglingaráð þessi eru:
1. Neglið þakjaðar (röð 1 á mynd) í
hverja báru 13 stk./m en þó á víxl í tvö
klæðningarborð.
2. Hafið bil milli naglaraða 60-80
90