Frjáls verslun - 01.04.1991, Page 102
FJARMOGNUN
VERSLANIR BJÓÐA HAGSTÆÐ KJÖR:
EINFÖLD BYGGINGARVELTA
Jón Gunnarsson, sölu og markaðsstjóri Þýsk-íslenska: Byggingarveltan
nær til stórra og smárra viðskipta.
HAGSTÆB FJÁRMÖGNUN
TIL ALLT AÐ 3JA ÁRA
Þeir, sem staðið hafa í fram-
kvæmdum af einhverju tagi,
hafa gjarnan þurft að ganga á
milli bankastjóra og slá lán fyrir
því sem gera þarf. Nú er þetta
liðin tíð því í nokkrum bygging-
arverslunum í eigu Þýsk-ís-
lenska, er boðið upp á sk. bygg-
ingarveltu en hún er fólgin í fjár-
mögnun kaupa á byggingarvör-
um til allt að 36 mánaða.
Jón Gunnarsson, sölu- og mark-
aðsstjóri Þýsk-íslenska, sagði í sam-
tali við Frjálsa verslun að þessi háttur
hentaði öllum þeim sem væru að
byggja eða þyrftu að annast viðhald af
einhverju tagi.
„Þessi viðskipti eru afar einföld.
Fólk getur opnað safnreikning og tek-
ið út byggingarvörur fyrir ákveðna
upphæð sem við lánum meirihlutann í
til allt að 3ja ára og eru engin afföll af
þeim lánsviðskiptum. Útborgun er
aðeins 25% af úttekt. Sölumenn ver-
slananna ganga frá þessum samning-
um á fljótan og öruggan hátt og við-
skiptavinir þurfa aðeins að útvega
einn eða tvo aðila til að skrifa upp á.
Kjör á þessum lánum eru eins og í
bönkum og engra trygginga er kraf-
ist. Þessi leið er því afar einföld og
fljótvirk," sagðijón Gunnarsson.
Það er ekki einasta að byggingar-
veltan nái til úttektar á byggingarvör-
um heldur sjá verslanirnar um að út-
vega iðnaðarmenn og gera föst tilboð
ef þess er óskað. Allur pakkinn fer
svo inn í veltuna með aðeins 25%
útborgun. Afgangurinn dreifist á allt
að 36 jafnar greiðslur. Þægilegra get-
ur það tæpast verið!
Byggingarveltan er hagkvæmur
kostur, bæði í nýframkvæmdum og
viðhaldi.
Þessi lánskjör eru boðin í verslun-
unum, Metró í Mjódd, Parma í Hafn-
arfirði, Málaranum við Grensásveg,
G.Á. Böðvarssyni á Selfossi, Máln-
ingarþjónustunni Akranesi og ÁRAL
á Isafirði.
„Við viljum taka það skýrt fram að
byggingarveltan okkar nær til allra út-
tekta, bæði stórra og smárra. Auðvit-
að gagnast hún fyrst og fremst þeim
sem þurfa að ráðast í umfangsmiklar
framkvæmdir, t.d. innréttingu nýrra
íbúða eða viðhaldsverkefna. Bygg-
ingarveltan er t.d. afar hagkvæm
lausn fyrir eigendur fjölbýlisbúsa
þegar mikil endurnýjun á sameign
stendur fyrir dyrum, t.d. á stigagöng-
um eða ef mála þarf húsið að utan. Við
bjóðum öll helstu byggingarefni sem
koma við sögu, allt frá fokheldi húss
þar til öllu verkinu er lokið með inn-
réttingum og heimilistækjum," sagði
Jón Gunnarsson, sölu- og markaðs-
stjóri Þýsk-íslenska að lokum.
102