Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 45

Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 45
Starfsmenn Verðbréfastofunnar, frá vinstri Jafet Olafsson, Sigríður Svavarsdóttir, Eyjólfur Kristjánsson, Helga Rán Sigurðardóttir, Óskar Stefánsson, Ágústa Símonardóttir, Þóra Samóelsdóttir, Axel Blöndal, Katrín Jósepsdóttir, Sigurður Þór Sigurðsson, Björn Ólafsson, Arna Gunnarsdóttir, Þorbjörn Sigurðsson og Ásta Jónsdóttir. Myndir: Geir Ólafsson sjóða, þar á meðal eru átta sjóðir reknir í Lúxemborg. Um árabil hefur fyrirtækið rekið skandinavískan sjóð, Carnegie Nordic Markets, sem hefur sýnt mjög góða ávöxtun. „Við erum í samstarfi við Carnegie, sem er annað stærsta verð- bréfafyrirtæki á Norðurlöndum, og höfum beinan aðgang að rannsókn- ardeild þeirra. Carnegie lítur á Verðbréfastofuna sem hluta af dreifi- kerfi sínu. Við fáum allar upplýsingar um leið og þeim er dreift til miðl- ara og eigum því gífurlega góðan bakhjarl í Carnegie, ekki síst í sölu á sjóðum í Lúxemborg, sem hafa komið mjög vel út," segir Jafet og nefnir dæmi um metávöxtun á þessu ári, Heilsusjóðinn í Lúxemborg, sem hefur hækkað gífurlega á þessu ári og er sennilega að skila bestri ávöxtun erlendra sjóða. Etrade til íslands Verðbréfastofan er einnig í samstarfi við önnur stór verðbréfafyrirtæki á hinum Norðurlöndunum og koma greiningar daglega frá Carnegie, Matteus og Öhman. Verðbréfastofan hefur einnig verið í góðu sam- starfi við Paine Webber um hlutabréfakaup í Bandaríkjunum, fær það- an rannsóknarefni og getur fengið það fyrirtæki til að annast viðskipti fyrir viðskiptavini sína. Jafnframt er um tengingu að ræða milli Etra- de og Verðbréfastofunnar en Etrade er eitt stærsta fyrirtæki í heimin- um á sviði verðbréfaviðskipta á Netinu. „Við getum gert viðskipti okkar á vefnum (gegnum Etrade og höf- um oft átt þar smærri viðskipti en öll stór viðskipti fara beint í gegn- um miðlara, bæði austan hafs og vestan. Verðbréfastofan er umboðs- aðili Etrade á íslandi og mun Etrade kynna starfsemi sína fyrir fslend- ingum snemma á næsta ári," segir Jafet. Verðbréfastofan leggur áherslu á að viðskiptavinir kanni vel og vandlega það sem í boði er hjá hinum ólíku verðbréfafyrirtækjum áður en þeir taka ákvörðun um fjárfestingar. Þeir sem vilja nánari upplýs- ingar geta haft samband í síma eða litið við á Suðurlandsbrautinni. Þar er aðgengi gott og næg bílastæði fyrir framan húsið. SQ VERÐBREFASTOFAN Suðurlandsbmut 18, Reykjavík, sími 570 1200, www.vbs.is IgMMWIliU 45

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.