Frjáls verslun - 01.11.2000, Blaðsíða 66
Rakel Olsenjorstjóri Sigurbar Ágústssonar hf:
Fullkomin óvissa um
skipan fiskveiðistjórnunar
m
Arið sem er að líða hefur enn einu sinni fært okkur Islend-
ingum sönnur á að „viðsjáll er sjávarafli". Ráðgjöf fiskifræð-
inga um leyfilegan heildarafla okkar helstu nytjastofna ollu
miklum vonbrigðum og vekja ýmsar spurningar. Olíukostnað-
ur fór hækkandi allt árið og rýrði verulega hag útgerðar og
vinnslu. Við þetta bætist svo fullkomin óvissa um skipan fisk-
veiðistjórnunar þótt auðlindarnefndin hafi á árinu skilað af sér
þeim ramma sem eftir er að mála inn í. Afkoma veiða og
vinnslu hörpudisks hefur verið góð, eins og undanfarin ár,
þótt lágt gengi evrunnar og minni veiðikvóti í Breiðafirði setji
þar strik í reikninginn. Rækjuvinnslan hefur gengið illa á ár-
inu; lágt afurðaverð sem ekki hefur endurspeglast í eðlilegu
hráefnisverði. Vinnsla á grásleppukaviar hélt áfram að vera í
lægð þótt vissulega gæti meira jaíhvægis nú en áður á mörk-
uðum og í veiðum. Hvað varðar minnisstæðasta atburð ársins
kemur ekkert annað í hugann en það högg sem Vestmannaey-
ingar urðu fyrir með stórbrunanum hjá Isfélaginu, sem er
einn af burðarásum samfélagsins þar,“ segir Rakel Olsen,
forstjóri Sigurðar Agústssonar hf.
ÁRfllYIÓTflVIÐTÖL
Hulda Styrmisdóttir, aðstoðarmadur forstjóra hjá Íslandsbanka-FBA:
Frekari uppstokkun
verður á fjármálamarkaði
Arið 2000 einkenndist
fyrst og fremst af
miklum breytingum á
íslenskum Qármála-
markaði. Þær urðu á
mörgum sviðum. Fyrsti
hluti ársins einkennd-
ist af jákvæðum að-
stæðum á markaði
sem endurspeglaðist í
góðum rekstrarhagn-
aði margra ijármála-
fyrirtækja. Síðan tóku
aðstæður að breytast
og vaxtahækkanir og
lækkanir á hluta-
bréfaverði tóku við
ásamt vaxandi
áhyggjum af þróun
efnahagsmála al-
mennt. Þetta hefur
aftur komið fram í því að hagnaður íjármálafyrirtækja hefur
minnkað.
I öðru lagi hefur samruni fyrirtækja og umræður þar um
sett svip á markaðinn. Samruni Islandsbanka og FBA var að
sjálfsögðu frétt ársins á markaðnum og kynti undir áætlanir
um breytingar og samruna annars staðar.
Loks hefur árið einkennst af aukinni útrás íslenskra flár-
málafyrirtækja. Að hluta til sem svar við þörfum viðskiptavina
og að hluta sem svar við auknum kröfum um arðsemi. Islensk
ijármálafyrirtæki eru að hasla sér völl víða, bæði í beinni þjón-
ustu við erlend fyrirtæki, eins og Islandsbanki-FBA í sjávarút-
vegi, og í þjónustu við íslenska einstaklinga með eignastýr-
ingu á erlendri grundu,“ segir Hulda Styrmisdóttir, aðstoðar-
maður forstjóra hjá Íslandsbanka-FBA.
- Hvernig metur þú horlúrnar á árinu 2001?
„Oskandi er að á komandi ári náist sú sátt um fiskveiðistjórn-
unarkerfið sem dugar til að tryggja nauðsynlegan starfsfrið í
greininni. Þá er vonandi að samningar takist milli sjómanna og
útgerðarmanna þannig að ekki komi til verkfalla, sem engu
skila nema tjóni fyrir alla.
A komandi ári verður beðið með óþreyju eftir hvert nytja-
stofnar okkar stefna; hvort botninum sé náð eða frekari skerð-
ingar séu væntanlegar. Nú þegar er ljóst að vænta má bjartari
tíðar í rækjuveiðum þar sem vísbendingar eru um vaxandi
rækjustofh sem mun stuðla að bættri afkomu í greininni.
Þá hljótum við í sjávarútvegi, ekki síður en aðrir, að vænta
ávinnings af sameiningu og hagræðingu í bankakerfinu. En
auðvitað skiptir mestu máli að efnahagslífið fari ekki úr bönd-
um, að vinnufriður haldist og að rekstrarskilyrði atvinnulífsins
hér séu sambærileg við helstu samkeppnislönd." 33
- Hvernig metur þú horfurnar á árinu 2001?
„I heild tel ég að íslenskur fjármálamarkaðu r sé að taka
stökkbreytingum. Hraðinn er orðinn miklu meiri, viðskipta-
vinir gera mun meiri kröfur, þekking og hæfni starfsmanna
eykst með hveijum mánuðinum og sum fyrirtæki á þessum
markaði eru orðin fyllilega hæf til að keppa á jafnréttisgrund-
velli á erlendum mörkuðum. Ég er þess vegna bjartsýn á árið
2001 þó að vissulega séu blikur á lofti á mörkuðum og í efna-
hagsmálum. Það er líka ljóst að róðurinn hjá mörgum við-
skiptavinum fjármálafyrirtækja er að þyngjast vegna breyttra
aðstæðna. Hagnaður fjármálafyrirtækjanna kemur því ekki
fljúgandi inn um dyrnar eins og áður - það þarf að hafa fyrir
honum. En það er líka gott, ég tel að markaðurinn hafi þróast
mikið á síðustu árum og að best reknu fyrirtækin séu vel í
stakk búin til að takast á við þetta. Ég held að útrásin muni
halda áfram og það er alveg ljóst að búast má við frekari upp-
stokkun á fjármálamarkaðnum á nýja árinu.“SIj
66