Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2000, Blaðsíða 98

Frjáls verslun - 01.11.2000, Blaðsíða 98
 ~Tim Bjarney Harðardóttir er verkefnisstjóri SÍF en þar hófhún starfí ágúst sl. Starfhennar er m.a. fólgið í því að samrœma kynningarmál samsteyþunnar sem hefur með höndum starfsemi í 15 löndum og selur vörur til yfir 60 landa. FV-mynd: Geir Ólafsson FÓLK Hvassaleitisskóla fór Bjarney í Menntaskólann við Hamra- hlíð og síðan lá leiðin í Tækniskólann þar sem hún stundaði nám í iðnrekstrar- fræði. Hún segir námið þar raunhæft og gott, mikið sam- starf haft við atvinnulífið og verkefnin í takt við það sem gerist þar. Eftir Tækniskól- ann fór hún í Háskóla Islands þar sem hún tók námskeið á sviði stjórnunar og á mark- aðssviði. Hún segist sækja töluverða endurmenntun, bæði innan lands og utan, og telur nauðsynlegt að við- halda menntun sinni með því. Hún er gift Birni Traustasyni kerfisfræðingi og eiga þau tvíburana Hörð og Helenu, sem urðu 11 ára í byrjun desember. Þau búa í útivistarparadísinni Fossvogi þar sem gott er að stunda gönguferðir og vera á línu- skautum en Bjarney segir Bjarney Harðardóttir, SÍF Effir Vigdisi Stcfánsdóttur að má segja að ég hafi fengið tilboð sem ég gat ekki hafnað þegar mér var boðið þetta starf,“ segir Bjarney. „Þetta er geysiviða- mikið starf og skemmtilegt þvi það felst í þátttöku í stefnumót- un, vörumerkjastjórnun og markaðsmálum tengdum ólík- um markaðssvæðum ásamt því að vinna að samræmingu heildarútlits samsteypunnar. Vörumerkin í eigu samstæð- unnar eru fjölmörg og eitt af markmiðunum er að skerpa áherslur við notkun þeirra til þess að fjárfestingar vegna kynningarstarfs nýtist sem best Starfsemi SIF er viðamik- il, með framleiðslueiningar sem og markaðs- og sölustarf- semi um heim allan, því eru verkefnin mjög ijölbreytt Stöðugt þarf að greina markaðinn, að vera með fing- urinn á púlsinum, að sögn Bjarneyjar. „Kröfur neytenda eru þær að litið þurfi að hafa fyrir matnum og að allt sé auð- velt og þægilegt þannig að vægi vöruþróunar fer vaxandi í þessari starfsgrein. Mikil- vægt er því á hverjum tíma að geta boðið upp á Jjölbreytt úr- val sjávarafurða sem henta mismunandi mörkuðum og neysluvenjum og ekki síður að byggja upp vörumerki sem neytendur þekkja og treysta. Við höfúm náð góðum árangri við að markaðssetja vörur okk- ar fyrir neytendur í Frakklandi og fengið mjög eftirsótt verð- laun þar fyrir þær. Þetta skiptir ekki litlu máli í landi eins og Frakklandi þar sem kröfúr eru miklar og matargerðarlist í há- vegum höfð og munum við nýta þá þekkingu og reynslu sem þarna hefur skapast á öðr- um mörkuðum okkar.“ Bjarney vann áður hjá Pósti og síma og kom inn í fyrirtækið rétt áður en því var breytt og skipt upp í tvö fyrirtæki. „Eg fylgdi svo Is- landspósti. Það var geysilega gaman að vera þarna á þess- um tíma og starfa að mark- aðsmálum, það fylgdi þess- um umbrotum svo mikill kraftur, mjög öflugur stjórn- endahópur hélt um taumana og takast þurfti á við mörg spennandi verkefni. Það þurfti að byggja ímynd fyrir íslandspóst frá grunni sem og að móta markaðsstefnu fyrirtækisins. Eitt af verkefn- um hjá Póstinum, sem ég er mjög stolt af, er að hafa skipulagt og stýrt vef Pósts- ins sem var valinn fyrirtækja- vefur ársins. Með mjög svo ögrandi verkefnum hjá Is- landspósti hef ég getað sótt reynslu og þekkingu sem ég hef nýtt mér hjá SIF.“ Eftir grunnskólapróf úr þau mikið útivistarfólk og áhugamálin flest tengjast úti- vist af einhverju tagi og ferða- lögum innanlands og utan. „Við erum mikið fyrir göngu- ferðir, tennis, skauta og svo auðvitað skíðin," segir hún. „Einnig kajakferðir niður straumharðar ár, en það er nú reyndar frekar eiginmað- urinn sem það stundar, þótt hann sé smám saman að sannfæra mig um ágæti þess. Adrenalínflæði er mikið í kajakferðum og því fylgir þeim ákveðin spennulosun. Eg leita einnig talsvert eftir friði og ró, stunda líkams- rækt til að yfirbuga streituna og mér þykir mjög mikilvægt að á heimilinu og umhverfi þess ríki rólegt andrúmsloft. Eg æfði mikið fótbolta og skíði á yngri árum og tel mjög mikilvægt að ala börnin upp við íþróttir og útivist og tengja þau við náttúruna. 33 98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.