Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 73
„Tiltölulega auövelt er aö
bjóöa hefðbundna hluti eins
og boli, sokka, peysur, nær-
föt og skyrtur til sölu á
Netinu, en ef til vill erfióara
hvað varðar jakkaföt og bux-
ur. Það er auðvitað freistandi
að skoða þetta en er alltaf
spurning uni kostnað og
árangur", segir Hákon.
u fataverslanir
„Þeir sem ferðast mikið vita þetta og við seljum mikið til ís-
lendinga sem búsettir eru erlendis, svo og ferðamönnum en
viðskiptavinir frá Skandinavíu eru sérstaklega áberandi," seg-
ir Hákon. „Við erum með stærstu skattfrjálsu verslunina hér
á landi, fyrir utan ullar- og gjafavörur, af þeim ástæðum. Fyrst
og fremst er orsökin minni álagning því það er dýrt að flytja
vörurnar hingað. Sé miðað við borgir eins og London og Par-
ís má segja að verð okkar sé um það bil 10% lægra og meiri
munur er t.d. á Italíu.“
Karlmenn eru ekki jafn tíðir gestir í fataverslunum og kon-
ur en hver er þá útkoman hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig að
mestu í að selja karlmannafatnað? Er markaðurinn nógu stór
fyrir allar þessar verslanir?
„Það er rétt að karlar fara sjaldnar í búðir en konur,“ segir
Sigurjón, „en þeir versla meira þegar þeir eru komnir á stað-
inn. Þá kaupa þeir gjarnan jakkaföt, sokka, bindi, skyrtu og
jafnvel nærföt og svo skó í stíl, en þeir eru sjaldnast að koma
til að kaupa einhverja eina flík. Þetta jafnar sig því upp, en að
vísu nota konur sennilega meira af fatnaði en karlar. Við
erum einnig með kvenfataverslanir, t.d. Blues og Cöru, og
Umsvifin
í Kringlunni eru Blues, Boss búöin, Herragarðurinn, Hanz, skóverslun Steinars Waage og Cara en á
Laugaveginum er Herragarðurinn. í Domus Medica er Steinar Waage einnig og í Veltusundi
Toppskórinn. Þar að auki markaðsverslanirnar Toppskórinn og Herralagerinn á Suðurlandsbraut þar
sem boðið er upp á ódýrari vörur.
73