Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 85

Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 85
MYND ARSINS MYND ÁRSINS. Gullæði greip um sigá fyrstu vikum ársins á hlutabréfamarkaðnuvi ogallir œtl- uðu að verða ríkirá mettíma enda höfðu hlutabréf 'gert marga forríka undanfarin ár. En 4. apríl tók markaðurinn skyndilega dífu í Bandaríkjunum og lœkkaði gengi í tœknifyrirtœkjum sérstak- lega. Bylgjuáhrifin bárust til Islands og hefur Úrvalsvísitalan lækkað jafnt og þétt á árinu. Frábœr mynd, Geir Olafsson Ijósmyndari! (2. tbl.) ANNflLL ÁRSINS 2000 ÚTRÁS ÖSSURAR. Össur hf. kom mjög við sögu í viðskiptaltfinu með kaupum sínum á þekktum erlendum stoðtœkjafyrirtœkjum. I byrjun apríl byrjaði ballið hjá Össuri þegar hann keyþti Flex-Foot verksmiðjuna í Orange-sýslu í Kali- forníu á 5,3 milljarða í byrjun apríl. Útrás Öss- urar er hnitmiðuð undir sterkri forystu Jóns Sigurðssonar, forstjóra fyrirtækisins. Til ham- ingju Jón og starfsfólk Össurar! (3. tbl.) SEÐLABANKASTJÓRARNIR. Á meðan Valgerður Sverrisdóttir fór mikinn sem viðskiptaráðherra „hvarf' Finnur Ingólfsson, fyrrum við- skipta- og iðnaðarráðherra, úr fjölmiðlum við það að verða seðla- bankastjóri í uþþhafi ársins. Hér eru seðlabankastjórarnir þrír, Eirík- ur Guðnason, Birgir Isleifur Gunnarsson og Finnur Ingólfsson, en við fjölluðum í athyglisverðri úttekt um alla þá sem gegnt hafa stöðu seðla- bankastjóra á Islandi frá upþhafi. (2. tbl.) EIN HELSTA VIÐSKIPTAFRÉTTIN. Valur Valsson, bankastjóri íslandsbanka, og Bjarni Ármannsson, forstjóri FBA, voru arkitektamir að sameiningu bankanna sem tók gildi í byrjun júní sl. Með samrunanum varð Islands- banki-FBA verðmætasta fyrirtœkið á Verðbréfaþingi ogstærsti banki lands- ins. Fyrír þessa sameiningu var talið líklegast að Islandsbanki og Lands- banki sameinuðust en sennilega hefði aldrei getað orðið að þeirri samein- ingu vegna samkepþnisyfirvalda. (3. tbl.) 85

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.