Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2000, Qupperneq 92

Frjáls verslun - 01.11.2000, Qupperneq 92
STJÓRNUN nefnir sögu um frumbyggjann sem fer í heimsókn til stór- borgar í fylgd mannfræðinga. Þar blasa við honum gífurleg mannvirki og tækninýjungar nútímans. Þegar hann kemur aftur til síns heima spyrja mannfræðingarnir hvað honum hafi þótt eftirtektarverðast úr heimsókninni. Svar frumbyggjans er lýsandi: Það hversu marga banana einn maður gat flutt í einu á kerru! Annað atriði sem skiptir máli fyrir fyrirtæki er hæfni, þekking og verklag starfsmanna og hvernig þessu er dreift til annarra öllum til gagns og í þriðja lagi hreyfanleiki og hæfi- leiki starfsmanna til að vinna í hópum í stað þess að vera ein- ir sér og einangraðir. Með þessum hætti skapast lærdóms- ferli innan fyrirtækja þar sem lögð er áhersla á að skapa þekk- ingu, ná utan um hana, safna henni saman, dreifa henni og hagnýta. Þannig verður stöðugur lærdómur hluti af dagleg- um störfum og til verður lærdómsmenning innan fyrirtækis- ins. En samkvæmt Arie de Geus er eina varanlega samkeppn- isforskotið einmitt hæfileikinn til að læra. Það sem greini lær- dómsfyrirtæki frá öðrum sé í fyrsta lagi hæfileikinn til að læra og í öðru lagi hæfileikinn til að dreifa lærdómnum til annarra sem nýrri þekkingu. Fjögur einkenní langiífra fyrirtækja Langlíf fyrirtæki hafa nokkur einkenni sameiginleg. I fyrsta lagi skynjun á um- hverfi og næmni gagnvart því ásamt hæfiieikanum til að læra stöðugt og aðlagast breytingum í lengd og bráð. Þessi fyrir- tæki, hvort sem þau hafa byggt velgengni sína á þekkingu, eins og DuPont, eða á náttúrulegum auðlindum, eru í jafn- vægi og samhljóma við umhverfi sitt. Þegar miklar breyting- ar eiga sér stað, s.s. kreppa, stríð, tækni- eða stjórnmálabreyt- ingar, virðast þessi fyrirtæki hafa hæfileika til að standa utan við þær og þau átök sem þeim fylgja. I öðru lagi er lifandi fyrirtækjum haldið saman af sterkum samloðandi kröftum og starfsmenn þeirra hafa sterka sam- eiginlega upplifun af eigin sjálfsmynd. Engu máli skiptir hversu fjölbreyttur starfsmannahópurinn er - þeim finnst þeir vera hluti af einni heild. Hæfileikinn til að skapa slíkt kjör- samfélag tengist því m.a. hvernig stjórnendur eru valdir. Best er ef þeir eru valdir innan frá og líta á sig sem þjóna hins lang- lífa fyrirtækis. Markmið þeirra er að leggja áherslu á heil- brigði fyrirtækisins. I þriðja lagi eru fyrirtæki sem lifa lengi þolin og leggja áherslu á umboð starfsmanna til athafna. Abyrgð og valdi er dreift og skilningur er á mikilvægi þess að tileinka sér nýj- ungar og þróa fyrirtækið áfram. Þau eru opin fyrir óhefð- bundinni hugsun, tilraunum og nýjungum. I fjórða lagi stunda langlíf fyrirtæki íhaldssama ijármála- stefnu. Þau taka frekar áhættu með eigið ijármagn heldur en með lánsfé. Þannig geta þau sjálf stjórnað vexti, framrás og þróun fyrirtækisins en ekki þriðji aðili. Að Skapa lærdómsfyrirtæki Fyrirtæki sem vilja tryggja lang- lífi í viðskiptum þurfa að leggja áherslu á umboð starfsmanna til athafna, þ.e. starfsmönnum er fengið ákveðið vald, frelsi og upplýsingar til ákvörðunar sem gerir þeim kleift að taka þátt í starfsemi og uppbyggingu fyrirtækisins. Með því að auka ábyrgð starfsmanna, dreifa valdi, setja skýr markmið til árangurs, efla þjálfun, veita stöðuga endurgjöf á frammistöðu (ýmist styrkjandi eða leiðréttandi), sýna gagnkvæmt traust og virðingu og umbuna i samræmi við frammistöðu er hægt að skapa lærdómsmenningu. Ennfremur er mikilvægt að refsa ekki fyrir mistök því annars munu starfsmenn ekki hafa vilja til að reyna eitthvað nýtt og taka áhættu. Gefa þarf starfs- mönnum lausan tauminn í nýsköpun svo þeir nýti hæfileika sína, geri tilraunir og læri. Starfsmenn þurfa ennfremur að fá frelsi til að hlúa að þekkingu sinni og skilningi. Samkeppnis- yfirburðir ráðast m.a. af nýsköpun og hugmyndum starfs- manna og starfsmenn sem eru virkjaðir til athafna eru dýr- mætir. Það er ekki hægt að kreista þekkingu úr starfsmönn- um - í lærdómsfyrirtæki, hugtak sem de Geus kom með fyrst- ur manna, skapa starfsmenn þekkingu og deila henni vegna þess að þeir vilja það. 33 Tæki til að tala í Hjá Svari eru í boði símkerfi fyrir allar stærðir fyrirtækja. NITSUKO er í hópi þriggja mest seldu símkerfa á Islandi í dag. NITSUKO hefur yfirburði fram yfir önnur kerfi þegar velja þarf stór símkerfi. Nitsuka Svar hf. - Bæjarlind 14-16 - 200 Kópavogi Svar hf.- Ráðhústorgi 5 - 600 Akureyri sfmi 510-6000 sfmi 460-5950 LG er í hópi þriggja mest seldu símkerfa á Islandi í dag. LG er framleiðandi á símkerfum fyrir allar stærðir fyrirtækja. PANASONIC er þekktur framleiðandi með styrka stöðu á heimsmarkaði. PANASONIC símkerfin hafa verið í stöðugri sókn seinustu árin bæði hvað varðar markaðs- hlutdeild og tækniþróun. * Panasonic 92 svan)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar: 11. tölublað (01.11.2000)
https://timarit.is/issue/233259

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

11. tölublað (01.11.2000)

Iliuutsit: