Helgarpósturinn - 03.10.1994, Síða 8
8
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNODAGUR 3. OKTÓBER 1994
Keflavík
Óskar Vigfusson hættir sem formaður Sjómannasambandsins
Steingrímur Hermannsson
Seðlabankastjóri og raf-
magnsverkfræðingur gerði
gæðakönnun á kínverskum
síma með því að gera rúmrusk
hjá-Steingrími J. Sigfússyni um
miðja nótt.
Hringdi í
Steingrim J.
úr farsíma
frá Kína
„Síminn hringdi heima hjá
mér um miðja nótt í síðustu
viku og það er rétt að á línunni
voru Ólafur Ragnar Grímsson
og Steingrímur Hermannsson
frá Kína. Þeir voru staddir uppi á
þaki á hóteli í Peking að morgni
dags,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon alþingismaður í sam-
tali við MORGUNPÓSTINN í gær.
Steingrímur og Ólafur Ragnar
eru sem kunnugt er í Kína í boði
þarlendra stjórnvalda. Tilgangur
símtalsins, að sögn Steingríms J.,
var sá að prófa þráðlausan, kín-
verskan síma. Seðlabankastjór-
inn ætti að geta lagt mat á gæðin,
enda rafmagnsverkfræðingur að
mennt. „Nafhi var afar hrifinn af
þessari tækni Kínverjanna.“
Símtalið kom ekki illa við al-
þingismanninn þótt hann væri
vakinn af værum svefni. „Þeir
létu vel af dvölinni í Kína og það
fuku nokkrir brandarar. Svo
spurðu þeir ffétta í leiðinni." -sg
Steingrímur J. Sigfússon
Alþingismaður „Nafni var af-
ar hrifinn af þessari tækni Kín-
verjanna."
Jóhanna Sigurðardóttir „Sest
ekki í dómarasæti yfir Guðmundi
Áma.“
Guðmundur Árni Stefánsson
Jóhanna hefur ekki lesið greina-
gerðina hans.
Fíkniefni
fundust
Lögreglan í Keflavík fann lítillegt
magn af fíkniefnum í heimahúsi
manns á fertugsaldri á laugardags-
kvöldið.
Nágranni mannsins hringdi á
lögregluna vegna gruns um að
maðurinn væri búinn að gleypa
óheyrilegt magn af pillum. Þegar
lögreglan kom á svæðið var allt í
lagi með manninn en við nánari
eftirgrennslan fannst lítillegt magn
af fíkniefnum í fórum hans. Mað-
urinn var fluttur í fangelsi þar sem
hann gisti um nóttina og fékk svo
að fara heim að lokinni skýrslutöku
daginn eftir. ■
Akraborgin
Tvisvar
brotist inn
Brotist var inn í Akraborgina
föstudags- og laugardagskvöld. Að
sögn lögreglunnar á Akranesi var
ránsfengurinn í bæði skiptin ein-
göngu sælgæti sem bendir til þess
að börn eða unglingar hafi verið að
verki. Ekki voru nein skemmdar-
verk framin utan það að skáphurð
að sælgætisgeymslu var brotin upp.
Líldegt er talið að þjófarnir hafi
læðst inn í Akraborgina á meðan
verið var að þrífa hana og falið sig.
Þannig hafi þeir geta athafnað sig
óáreittir eftir að ræstingunni var
lokið og hleypt sér því næst sjálfir
út. ■
Atök um formennsku
Sjómannasambandsins
Harðar deilur hafa verið innan Sjómannasambands Islands síðustu misserin og nú blossa þær upp þegar
velja þarfnýjan formann. Menn óttast jafnvel klofning náist ekki sátt milli fylkinga um arftaka.
Óskar Vigfússon formaður Sjó- stjórnar um að kaupa sumarbústað Suðurlandi, að Vestmannaeyjum
undanskildum.„Hins vegar þykir
mannasambands Islands gefur ekki
kost á sér til endurkjörs á þingi Sjó-
mannasambandsins sem haldið
verður fyrstu helgina í nóvember.
Þessi ákvörðun hans hefur legið
nokkuð lengi í loftinu en í viðtali
við Sjómannablaðið Víking lýsir
hann þessu formlega yfir. Umræða
var þegar komin af stað um hugs-
anlegt mótframboð gegn Óskari.
Menn hafa hingað til talið nokk-
uð sjálfgefið að varaformaður sam-
bandsins, Sævar Gunnarsson frá
Sjómanna- og vélstjórafélagi
Grindavíkur, taki við af Óskari en
það er ekki talið eins öruggt ennþá.
Þar spilar inn í gamalgróinn klofn-
ingur innan sambandsins en einnig
tvær umdeildar ákvarðanir á síð-
ustu dögum. Annars vegar er um
að ræða ákvörðun framkvæmda-
í Biskupstungum íyrir 8,4 milljónir.
Bústaðurinn er eingöngu ætlaður
stjórn félagsins og formönnum
stéttarfélaganna. Hins vegar samn-
ingur sem Sjómannasambandið
gerði við LÍÚ og undirritaður var
22. september. Margir eru óánægð-
ir með þann samning og stærsta fé-
lagið, Sjómannafélag Reykjavíkur,
hefur lýst því yfir að hann hafi ekki
verið gerður í umboði þeirra. Einn-
ig er nefnt að Sævar er vélstjóri og
var auk þess stuðningsmaður Kon-
ráðs Alfreðssonar fyrir tveimur
árum en snerist til fylgis við Óskar á
þinginu sjálfu. Flestir viðmælenda
MORGUNPÓSTSINS töldu Sævar
hafa öruggan meirihluta þingfull-
trúa á bak við sig þótt ekki sé farið
að velja fulltrúana. Fylgi hans er
mest innan núverandi stjórnar og á
fullljóst að farið verði fram á hlut-
fallskosningu. Það nægir að átta
þingfulltrúar fari fram á það en á
þinginu verða væntanlega 62 þing-
fulltrúar. Við hlutfallskosningu
telja menn að fylkingar riðlist og
Sævar verði þá eldci öruggur með
meirihlutafylgi. Skiptir þar mestu
að stóru félögin fá hlutfallslega
mun meira vægi.
Margir eru nefndir til sögunnar
sem kandídatar til formanns. Kon-
ráð Alfreðsson, Sjómannafélagi
Eyjafjarðar, fór gegn Óskari á síð-
asta þing* en tapaði með nokkrum
mun. I kjölfarið gengu fulltrúar
Sjómannafélags Reykjavíkur út og
hafa ekki tekið þátt í stjórn félags-
ins. Konráð hefur sagst vera að
þreifa á málunum en hafi ekki tekið
ákvörðun. Sigurður Ólafsson,
formaður Sjómannafélags ísfirð-
inga, hefur fyrir vestan lýst yfir
áhuga á starfinu en óvíst er hvaða
stuðning hann hefur utan Vest-
fjarða. Birgir Björgvinsson, hjá
Sjómannafélagi Reykjavíkur, hefur
einnig verið nefndur til sögunnar
án þess að líkur séu á sátt um hann.
Hann barðist hart gegn sumarbú-
staðamálinu. Jónas Garðarsson
frá Reykjavík er einnig í umræð-
unni og margir telja að hann verði
næsti varaformaður. Sævar mun
hafa boðið honum varafor-
mennsku með sér en Jónas mun
hafa hafnað því. Konráð er einnig
oft nefndur sem líldegur varafor-
maður enda byggist andstöðuhóp-
urinn eldd síst á fulltrúum Reykja-
víkur og Eyjaíjarðar, auk Vest-
mannaeyja.
Á morgun verður haldinn fund-
ur í sjö manna framkvæmdastjórn
Sambandsins en þar sitja, auk Ösk-
ars, Sævars, Konráðs og Sigurðar,
þeir Sigfinnur Karlsson frá Norð-
firði, Elías Björnsson, Vest-
mannaeyjum, og Þórður Ólafs-
son, Þorlákshöfn. Á þeim fundi á
að reyna að sætta sjónarmið milli
fylldnganna tveggja þannig að for-
maður og varaformaður komi hvor
úr sinni fylkingunni. Enn er þó inni
í myndinni að fá hlutlausan aðila til
starfans. Mikill vilji er fýrir að leysa
deiluna fyrir þingið svo eldd komi
til kosninga, enda óttast margir
djúpstæðan klofning í kjölfar hat-
rammrar kosningabaráttu. Á þing-
inu verður einnig kosið í sam-
bandsstjórn og framkvæmdastjórn
en talið er að Óskar og Sigfinnur
hætti. -pj
Keflavík
Þrír ökuníð-
ingar gripnir
Lögreglan í Keflavík tók þrjá
ökumenn um helgina á ofsahraða.
Á föstudagskvöld mældist bíll í rad-
ar lögreglunnar á 149 km hraða á
Reykjanesbraut. Aðfaranótt sunnu-
dags var annar ökuníðingur stöðv-
aður eftir að hafa mælst á 153 km
hraða en hámarkshraði á Reykja-
nesbraut er 90 km. Þriðji ökumað-
urinn var gripinn við hraðakstur í
Grófinni í Keflvík en hann mældist
á 126 km hraða þar sem hámarks-
hraði er 70 km. ■
Ólafsvík
Tófa brtur lamb
í gær á Hellissandi fannst lamb
sem tófa hafði bitið. Lögreglan seg-
ir aðkomuna að lambinu hafa verið
ljóta, því tófan var búin að naga
framsnoppu þess alveg upp að aug-
um, hafði einnig bitið dindilinn af
því, og farið í görnina. Lambinu var
lógað á staðnum.
Þetta er í annað skiptið á stuttum
tíma sem lamb er bitið á þessum
slóðum og síðustu tvö árin hafa sex
lömb verið bitin. Fjögur varð að af-
lífa. Talið er að í öllum tilvikum sé
sama tófan á ferðinni, og greinilegt
sé að hún sé mjög grimm. ■
Þingsetning 118. löggjafaþing Isiendinga var sett á laugardaginn. Eftir ræðu séra Ragnars Fjalars Lárussonar, sem meðai annars talaði um ein-
elti gagnvart stjórnmálamönnum, gengu þingmenn með biskup og forseta íslands í broddi fylkingar til Alþingishússins.
Jóhanna Sigurðardóttir
Guðmundi Ama hefur
ekki tekist að skýra altt
Tjáir sig ekki um vantraust fyrr en það kemur fram.
„Ég ætla ekki að setjast í dómara-
sæti yfir honum Guðmundi Árna,“
segir Jóhanna Sigurðardóttir að-
spurð um hvort Guðmundur Árni
Stefánsson hafi gert hreint fyrir
sínum dyrum. Hún segist hafa sín-
ar skoðanir á málflutningi hans en
vill ekki fara nánar út í þær skoðan-
ir:
„Ég ætla bara að hafa það fyrir
mig. Það er ýmislegt sem honum
hefúr tekist að skýra í þessu og ann-
að eldd. En ég hef ekkert meira um
málið að segja.“
Telurðu að hann eigi að segja af
sér?
„Ég ætla elcki að setjast í neitt
dómarasæti yfir honum, það eru
nógu margir til þess.“
Hvað gerir þú efborið verðurfram
vantraust d hann á Alþingi?
„Ég svara engu ef-i. Við skulum
sjá hvort það kemur fram.“
Hvað með flokkinn í heild? Hefur
hatin gert hreintfyrir stnum dyrum?
„Ég veit það ekki. Þeir fara þarna
ákveðnar leiðir og það er ýmislegt
jákvætt í því. Þótt það tengist ekki
þessu máli þá get ég nefnt lög um
starfsemi stjórnmálaflokka, sem
mér finnst jákvæð. Einnig finnst
mér mjög jákvætt að þingmenn sitji
ekki í bönkum og sjóðum. Það er
ágætt ef menn setja sér ákveðnar
siðareglur innan síns flolcks. Að
öðru leyti vil ég ekki tjá mig neitt
um það.“
Finnst þér Jón Baldvin hafa farið
réttfram í þessu máli?
„Það er erfitt að dæma um það.
Ég hef nú ekki lesið þessa greinar-
gerð Guðmundar ítarlega þannig
að ég ætla ekki að hafa neina skoð-
un á því á þessari stundu.“-pj