Helgarpósturinn - 03.10.1994, Page 13
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994
MORGUNPÓSTURINN ERLENT
13
Leningradkúrekar afftur á kreik
Einhver sérkennilegasta hljóm-
sveit í heimi eru Leningrad Cow-
boys, Rússarnir með skrítnu hár-
greiðsluna sem finnski leikstjór-
inn Aki Kaurismaki hefur skotið
upp á frægðarhimininn með kvik-
myndunum Leningrad Cowboys
go America og Total Balalaika
Show (verður sýnd í sjónvarpinu í
næstu viku). Og nú er Kaurismaki
búinn að gera þriðju myndina um
þessa óborganlegu sveit sem hef-
ur verið kölluð „versta rokkhljómsveit í heimi“. í nýju myndinni fara
hljómsveitin og Moses, umboðsmaður hennar, heim til Síberíu eftir að
Naomi er Qölh
Pað þarf varla að segja frá því að þegar
fólk verður frægt og ríkt á það til aó missa
gjörsamlega allan snefil af sjálfsgagnrýni.
Um þetta eru mýmörg dæmi, en eitt af
þeim nýjustu og bestu er þokkadísin
blakka Naomi Campbell. Hingað til hef-
ur hún látið nægja að sýna fagran líkama
sinn í fallegum tískufatnaði og stundum
reyndar án hans. En Naomi hefur komist
að því að þar njóta hæfileikar hennar sín
ekki sem skyldi. Hún ákvað því að gera
bragð úr ellefta boðorðinu og gefa út
plötu og líka skáldsögu í leiðinni. Þá er
ekki spurt að því og skiptir kannski engu
máli að Naomi virðist gersneydd hæfileik-
um í tónlist — hvað þá í bókmenntum.
Það var leyst á einfaldan hátt: Með góð-
um upptökustjórum og rithöfundi sem
skrifaði skáldsöguna fyrir Naomi. Sem þó
er titlaður höfundur hennar eftir sem áð-
ur... ■
hafa dottið út af vinsældalista í Mexíkó. Á hæla hljómsveitarinnar
kemur bandarískur leyniþjónustumaður sem telur að Leningrad Cow-
boys hafi stolið nefinu af frelsisstyttunni. ■
Stærra er betra
Bandaríkjamenn hafa löngum verið
slyngir í ýmsu sem lýtur að því að
fegra og fullkomna mannslíkamann.
Til dæmis þykir ekki varið í neina
konu þar vestan hafs nema hún
gangi með sílíkonpúða í brjóstun-
um. Nú hefur loks orðið ákveðið
jafnrétti í þessari grein líkt og á ýms-
um öðrum sviðum. í Bandaríkjunum
er nefnilega mjög farið að tíðkast að
karlmenn leiti til lækna sem síðan
græða sílíkon í kynfæri þeirra. Að-
gerðin mun kosta um það bil hálfa
milljóh króna sem er ekki hátt gjald
miðað við öll þau vandamál sem
svonalagað leysir. Þá náttúrlega
fyrst og fremst sálarkreppu þeirra
sem finnst þeir lítt vaxnir niður- fyrir
utan að tólið mun vera miklu betra
og notadrýgra eftir svona aðgerð. ■
Slægvítur
Stalíone
Sylvester
Stallone er
maður sem
lætur ekki
leika á sig.
Hann ætlar til
dæmis ekki
að láta henda .
sig það sem
gerðist með
ofurmennið
Steven Sea-
gal í kvik-
m y n d i n n i
Under Siege.
Þar mætti
I e i k a r i n n
Tommy Lee
Jones á svæðið í hlutverki vonda
karlsins og gjörsamlega skyggði á
aðalhetjuna. Hið sama virtist ætla
að vera upþi á teningnum í nýju
Stallonemyndinni, The Specialist,
sem frumsýnd verður í haust. Þar
var kominn James Woods í hlut-
verki skúrks sem Stallone sá af
hyggjuviti sínu að væri bæði fyndn-
ari og skemmtilegri en hann sjálfur.
Á sömu skoðun var valinn hópur
áhorfenda sem fékk að sjá mynd-
ina, svona eins og í tilraunaskyni.
Þetta sætti Stallone sig ekki við og
linnti ekki látum fyrr en einhver atriði
höfðu verið klippt úr myndinni og
nýjum bætt við, þar á meðal atriði
þar sem Stallone gengur í skrokk á
einhverjum lúðum sem neita að
víkja úr sæti fyrir barnshafandi konu
í strætó. ■
Þarftu
að fara að
endumýia
bílinn?
Blaðbera vantar
í Grafarvog, Arnarnes
og víðar.
Vinsamlega hafið samband við afgreiðslu
Morgunpóstsins í síma 22211
mmMprmn j \
Posturmn