Helgarpósturinn - 03.10.1994, Blaðsíða 30
30
MORGUNPÓSTURINN BÍLAR
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994
Bíar
Ford
Nýr Explorer verður
kynntur í Bandaríkjunum í desemb-
er nk. og búist er við að hann verði
kynntur á íslandi um mánaðamótin
janúar/febrúar 1995. Verð liggur
ekki fyrir.B
Ford Helsta nýjungin í Ford
Econoline-línunni er ný, öflug 210
hestafla túrbodíselvél. Verð á 12
Econoline Club Wagon árg. 1995
með 7,3 lítra túrbodíselvél verður
um 3.600.000 kr. ■
Pétur H. Ólafsson heimsmaður
FordLincoln
„Bíllinn er árgerð 1984 af Ford
Lincoln Towncar og var fluttur
hingað inn frá Flórída í Bandaríkj-
unum. Þótt hann sé stór eyðir hann
ekki miklu, bara eins og hver annar
jeppamótor. Flann er útbúinn
allskyns aukabúnaði, til dæmis er
hægt að hreyfa sætin í allar áttir að-
eins með því að ýta á takka.
Annars er ég bara umsjónarmað-
ur bílsins, það er sonur minn sem á
hann.“
Er ekki hörkuvinna að keyra
svona stóran bíl?
„Það kostar smáþjálfun, enda er
hann sex metrar á lengd og það get-
Towncar, árgerð 1984
ur verið erfitt að leggja honum. Ég
er ekki óvanur því að keyra stóra
bíla og var fljótur að læra á hann,
en þegar búið er að ná tökum á
bílnum er mjög þægilegt að keyra
hann.“
Vekur bíllinn ekki athygli hvar
sem þú kemur?
„Jújú, það er alls staðar tekið eft-
ir honum. Ég man eftir að þegar Al-
bert heitinn Guðmundsson var
jarðaður var lögreglan búin að loka
götum svo fólk væri ekki að trufla
jarðarförina, en þeir voru ekki lengi
að hleypa mér í gegn þegar ég
mætti á bílnum og hafa eflaust
haldið að það væri einhver „hot
shot“ á ferðinni.
Menn eiga það til að fara dálítið í
manngreinarálit eftir því hvernig
bíl fólk er á. Þetta er eins og Norð-
menn; þeir æsast allir upp við að
finna vindlalykt og segja gjarnan:
„Man lugter storkarl men ser han
ikke.“
Er þetta besti bíll sem þú hefur
keyrt um œvina?
„Já já, það er enginn vafi á því.
Þótt ég sé hrifnastur af amerískum
bílum þá átti ég einu sinni Subaru
sem mér líkaði vel við. En Fordinn
er sá besti sem ég hef keyrt.“ ■
Hyundai Sonata kemur
með nýjum koppum og verður fá-
anleg með ABS-bremsukerfi og álf-
elgum. Engar breytingar verða á El-
antra og Scoupe.
Næstu helgi kynna Bifreiðar og
landbúnaðarvélar ‘95-árgerðirnar af
bílum sem þeir bjóða upp á. Á sýn-
ingunni verður einnig kynnt ný gerð
af Hyundai, Hyundai Accent. Bíllinn
er í millistærðarflokki og er ætlað
að taka við af Hyundai Pony. ■
Cherokee Jamboree
fæst áfram með 130 og 190 ha.
vélunum en þar að auki eru á leið-
inni Cherokee-jeppar með nýrri 2,5
litra 122 ha. túrbódíselvél með milli-
kæli. Auk þess verða smávægilegar
útlitsbreytingar og meiri útbúnaður,
t.d. koddi í stýri. Verðið er tæpar 3
milljónir króna.
Grand Cherokee breytist ekkert en
næsta sumar verður hann fáanlegur
með fyrrgreindri díselvél. ■
Lada I
. Sport verður fáanlegur
með fjölinnsprautun. Einnig urðu
nýlega miklar breytingar á Lada
Sport-jeppanum, t.d. var sett í
hann ný innrétting, ný og aflmeiri
vél (1700 cc), léttara stýri, ný og
breytt sæti og farangursrými
stækkað.
Lada Samara verður fáanleg með
beinni innsprautun. ■
Tuttugu milljóna króna græja Kristjáns Jóhannssonar
Það eru ekki bara óperuunn-
endur sem koma til með að
sakna Kristjáns Jóhannssonar
nú þegar hann hverfur af landi
brott er sýningum á Valdi ör-
laganna lýkur í bili. Bíladellu-
menn landsins koma án efa til
með að sakna bílsins hans,
sem er sá dýrasti á landinu.
Bíllinn er af gerðinni Mercedes
Benz S 600 með 394 ha. V12-
vél og kostar rúmar 16 milljónir
öbreyttur. Kristján er víst búinn
að láta setja hina og þessa fíd-
usa í bílinn og verð hans því
líkiega komið í tæpar tuttugu
milljónir. Eins og sést á mynd-
inni er eitt og annað í fína bíln-
um hans Kristjáns sem eigend-
ur venjulegra bíla eiga ekki að
venjast. ■
Eyþór
Arnalds
TÓNLISTAR-
maður:
„Opinberlega hefég átt einn
bíl um ævina og óopinberlega
líka einn bíl.
Óopinberlega átti ég gamlan
Volvo með Þorvaldi Þorvalds-
syni. Við áttum bara einn lykil
og hann var geymdur í
hanskahólfinu. Þessi bíll lenti í
ýmsu, meðal annars var ein-
hvern tímann sett vatn í bens-
íntankinn á honum. Hann gaf
svo upp öndina fyrir framan
Fjölbrautaskólann ÍBreiðholti
og er eflaust orðinn partur af
öðrum bílum víða um bæinn.
Eina bílinn, sem ég hef átt
opinberlega, á ég í dag. Það er
amerískur hágæðabíll, Chevro-
let 1978, hann þolir allt og það
er hægt að keyra á honum í
gegnum hús og jeppa. Hann
heitir Móþór og er með gull-
hjarta sem sett var íhann á
síðasta ári. Margir bílar eiga
það til að síga niður á aftur-
endann með tímanum en Mó-
þór fylgir ekki þeirrí tísku held-
ur fer hnarreistur um bæinn.
Hann er líka ættaður frá Akur-
eyri en þar fara menn mjög vel
með bílana sína og því er Mó-
þór vel upp alinn.
Hann er besti bíll sem ég hef
átt... opinberlega."
Punto - nýjasta tromp
Fiat-verksmiðjanna
Þórður Sveinsson, starfsmaður á
smurstöðinni á Geirsgötu
Mercedes Benz2201953
Hallur Helgason,
framkvæmdastjóri Lofts hf.
JaguarXJ6, árgerð 1984
Fiat-umboðið kynnir um þessar
mundir nýjan smábíl, Fiat Punto.
Við hönnun bílsins var mikil
áhersla lögð á að bíllinn væri um-
hverfisvænn, reynt var að gera
hann eins hljóðlátan og hægt var,
og allir hlutar bílsins sem eru
þyngri en 50 grömm eru sérstak-
lega merktir til að auðvelda flokk-
un við ævilok bílsins.
í takt við kröfur tímans lögðu
hönnuðir hans sérstaka áherslu á
öryggi. Sérstaka hliðarstyrkingu er
að finna í gólfi bílsins, bæði lang-
sum og þversum, stýrisstöngin
gengur saman við högg, eldsneytis-
lokinn er sjálfvirkur og lokar fyrir
eldsneytið á fáeinum hundraðs-
hlutum úr sekúndu við ákveðinn
höggþunga. Þá er eldsneytisgeym-
irinn sérstaklega styrktur með ör-
yggisloki. Punto verður fáanlegur í
tveimur útfærslum. Annars vegar
Punto 55 S, þrennra og fimm dyra,
hins vegar Punto 75 SX, sem er
fimm dyra.
Bíllinn mun kosta frá kr.
945.000.
„Upphaflega kom bíllinn til lands-
ins ^953 með sendiherra Þýskalands.
Ég keypti hann hins vegar af Bjarna
Sigurjónssyni á Akureyri 1987, en
hann var búinn að eiga hann í nokk-
ur ár.“
Fékkstu hann í hendurnar eins og
hatm lítur út í dag?
„Nei, hann var bara hrúgald þegar
ég fékk hann og boddíið meira og
minna sundurryðgað. Ég skipti nán-
ast um allt í honum, alveg frá a til ö.
Ég panta varahluti í gegnum Þýska-
land og bíllinn er orðinn alveg orgin-
al í dag.“
Vekurhann ekki tnikla athygli?
„Jú, jú, einhverja athygli vekur
hann. Annars á ég þrjá bíla í viðbót
sem einnig eru í eldri kantinum. ‘41-
módel af Chrysler og Mercury og svo
‘32-módel af Buick og það eru marg-
ir sem vilja halda því frarn að sá bíll
sé fallegasti bíll landsins. Ætli það
megi ekki segja að maður sé nreð bíl-
adellu.“
Er hœgt að segja til um persónu-
leika manna út fró því hvemig bíl
þeir keyra?
„Ekki á svona gömlurn bílum. Ef-
laust má eitthvað segja til um það á
nýrri bílum. Þeir eru til dæmis marg-
ir sem líta á sig sem heldri nrenn þeg-
ar þeir eru komnir á nýlegan Benz.“
Hvað skiptir mestu múli í sam-
bandi við bíl?
„Ég vitna nú bara í Davíð Stefáns-
son og segi: „Það varðar mestu að
gerðin sé góð og gengið frá öllu vel,
það er annað að kveðja á Koturn en
komast í Bakkasel." ■
„Ég eignaðist bílinn fyrir tveimur
árum þegar ég var við vinnu í
Bandaríkjunum, hann var reyndar
keyptur á ferðalagi í San José. Gerð
bílsins er Jaguar XJ6, árgerð 1984.“
Vekur hatiti athygli?
„Það eru nú reyndar til nokkrir
svona bílar á landinu, en jújú, ég
finn fyrir því að hann vekur at-
hygli.“
Hvemig lýsirðu karakter bílsins?
„Þetta er svona eins og með
muninn á landa og góðu koníaki;
landann drekkur maður til að
verða fullur en koníakið bragðsins
vegna. Ætli það sé ekki hægt að
segja að bíllinn sé ansi bragðgóð-
ur.“
Hvað skiptir höfuðtnúli í sam-
bandi við bíl?
„Ég get alveg skilið það sjónar-
mið margra bííeigenda að bíll eigi
eingöngu að þjóna því hlutverki að
koma nranni frá A til B, en þegar
maður eyðir miklum tíma í bílnum
sínum finnst mér miklu máli skipta
að manni líði vel í honum. Þetta
þarf þó ekki að vera eitthvert
snobb, að bíllinn þurfi að vera stór-
glæsilegur. Ég á til dæmis Skoda
110C árgerð 1975 sem mér finnst
mjög afslappandi að keyra öðru
hverju, kannski einmitt vegna þess
að hann fer hægt yfir. En hvað
mönnum finnst skipta mestu máli í
sambandi við bíla hlýtur að vera
mjög einstaldingsbundið."
Er hœgt að meta persónuleika
tnanna út frá því livernig bíl þeir
eiga?
„Það er eflaust líka einstaklings-
bundið. Ef það væru skoðuð ein-
hver stór úrtök manna mætti ef-
laust sjá út mynstur; að sumir
menn séu svona og hinsegin af því
að þeir eiga svona og hinsegin bíl.
Ég hef þó mínar efasemdir um
þetta. Hvorn bílinn minn ætti til
dæmis að skoða í mínu tilviki,
Jagúarinn eða Skodann?" ■