Helgarpósturinn - 03.10.1994, Qupperneq 33
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBÉd '-1994
MORGUNPÓSTURINN BÍLAR
33
Nýr smábíll
frá Volkswagen
Hekla kynnir 15. nóvember
næstkomandi nýja gerð af Volks-
wagen.
Bíllinn ber nafnið Volkswagen
Polo og er ætlað að keppa við
smábíia eins og Daihatsu, Fiat
Punto og Opel Corsu.
Hægt verður að fá bílinn með
ýmsum aukabúnaði, t.d. líknar-
belg bæði fyrir ökumann og far-
þega, ABS-bremsukerfi, sóllúgu,
rafhituðum hliðarspeglum, upp-
hitaðri frantrúðu og ýmsu fleiru.
Polo verður fáanlegur bæði
með 45 ha. 1000-vél og 55 ha.
1300- vél. Minni gerðin vegur 955
kíló og eyðir 7,5 lítrum á hundr-
aðið miðað við venjulega innan-
bæjarkeyrslu. Stærri gerðin eyðir
7,9 lítrum á hundraðið og er 16,3
sek. að ná hundrað kílómetra
hraða.
Bíllinn mun kosta frá kr.
875.000. ■
Peningahliðin
Greiðslukjjör
bílaumboðanna
Bílaumboðin bjóða upp á
svipuð greiðslukjör í gegnum
Glitni, Tryggingamiðstöðina
eða Sjóvá/Almennar. Hægt er
að útfylla lánsumsóknir í um-
boðunum og bíða meðan sam-
þykki fyrir láni er veitt.
Þegar keyptur er nýr bíll býð-
ur Glitnir svokallað stað-
greiðslulán og Sjóvá/Almennar
og Tryggingamiðstöðin bflalán.
Glitnir lánar 100% andvirðis
nýja bílsins ef-lánstíminn er 30
mánuðir eða skemmri, 75% ef
lánstíminn er 48 mánuðir eða
skemmri og 65% ef lánstíminn
er 60 mánuðir eða skemmri.
Glitnir setur það sem skilyrði að
bíllinn sé ávallt kaskótryggður á
lánstímanum, ekki skiptir máli
hjá hvaða tryggingafélagi. Stað-
greiðslulánið er í formi veð-
skuldabréfs, sem þýðir að lán-
takandi er skráður eigandi bíls-
ins, en Glitnir hefur fýrsta veð-
rétt í bílnum sem tryggingu fyr-
ir láninu.
Tryggingamiðstöðin lánar allt
að 75% af andvirði nýs bíls til
fjögurra ára eða skemur, allt eft-
ir greiðslugetu og aðstæðum.
Sett er sem skilyrði að bíllinn sé
ábyrgðar- og kaskótryggður hjá
Tryggingamiðstöðinni á láns-
tímanum.
Sjóvá/Almennar lána 65% af
andvirði nýs bíls til fimm ára og
75% til þriggja eða fjögurra ára.
Skilyrði fyrir láninu er að bíll-
inn sé ábyrgðar- og kaskó-
tryggður hjá Sjóvá/Almennum á
lánstímanum. ■
Hermann
Gunnarsson
SJÓNVARPSMAÐUR
„Fyrsti bíHinn minn var Volkswagen-bjalla, notalegurog heim-
ilislegur bíll, en óh'kt mörgum öðrum ungum strákum fékk ég
aldrei bíladellu. Ég minnkaði svo við mig næst þegar ég skipti
um bíl og fékk mérAustin Mini. Mérþótti það mjög þægilegt
hversu litla eftirtekt hann vakti og maður hvarf hreinlega í
fjöldann. Bíllinn var afskaplega hlýlegur og mér líkaði það vel
við tegundina að næsti bíll sem ég eignaðist á eftir var einnig
Mini.
Árið 1979 varprangað inn á mig Matra Zimca Baguira. Þetta
var eini sportbíll sinnar tegundar á landinu, skærgulur og úr
fíberplasti, með stýri eins og íflugvélum og mótorinn var
staðsettur fyrir aftan hausinn á manni. Þessi bíll var líka sá
fyrsti á landinu með opnanlegum og lokanlegum Ijósabúnaði.
Samskonar bíll var notaður í James Bond-mynd. Þetta var
voðaleg græja, en ekki gerð fyrir íslenskar aðstæður og hann
eyðilagðist fljótlega. Eftirþað rigndi yfirmig tilboðum íhann.
Næst fékk ég mér fjárfestingu á hjólum, enda búinn að fá mig
fullsaddan á sportbílum og vildi öruggan og sterkan bíl og
keypti því Volvo. Ég átti tvo svoleiðis, þeir fóru í gang á
morgnana og komu mér til og frá vinnu.
Fyrir sex árum eignaðist ég svo bílinn sem ég keyri um á í
dag. Ásgeir vinur minn Sigurvinsson sagði við mig að ég yrði
að eignast Benz og sá um að kaupa einn slíkan fyrir mig úti
og flytja hann til landsins. Ég bjóst nú bara við svona venju-
legum Benz en þegar bíllinn kom til landsins blasti við mér
þessi Ifka svaka sportbíll, Benz 280 CE tvennra dyra með 200
hestafla vél. Hann er árgerð ‘84 og sérstaklega hannaður fyrir
hraðakstur og hentar þvíilla á íslandi, en mér þykir bara orðið
svo vænt um hann að ég tími ekki að skipta. “ ■
Umboðsmenn vantar
á Neskaupstað, Þorlákshöfn,
Hvolsvöll og Blönduós.
Vinsamlega hafið samband við afgreiðslu
Morgunpóstsins í síma 91 -222 11
Pösturihn
Hjálparstarfið
heldur stöðugt
áfram.
Gfrðseðlar í bönkum
03 sparisjððum.
HJALPARSTOFNUN
\r\Tj KIRKJUNNAR
- . meg þinni hjálp
VOLVO 440/460
kaupin!
Mjög kraftmiklar vélar
t^ökvastýrí/veltístý?
Mynd: Volvo 440, álfelgur og vindskeið ekki innifalið í verði sem er frá:
1.448.000kr.
Staðgreitt kominn á götuna
Betra verð en nokkru sinni!
Enn og aftur kemur Volvo á óvart með þvf að
kynna nýja útfærslu af Volvo 440/460 árgerð 1995
á lægra verði en árgerð 1994. Þetta er ótrúlegt en
satt en við hvetjum þig til að koma og sannfærast.
Reynsluakstur tekur af allan vafa. Þetta eru bestu
kaupin af árgerð 1995.
Öryggið áfram í fyrirrúmi
Volvo er leiðandi bílaframleiðandi á sviði öryggis.
Uppfinningar á borð við 3-punkta bflbeltið,
styrktarbita í liurðum, öryggisbúr um farþega,
bflbeltastrekkjara og innbyggðan barnastól í
aftursæti segja sína sögu.
Sænsk gæðahönnun!
Volvo 440/460 er hannaður af sérfræðingum Volvo
í Gautaborg og gefur stóru bræðrum sínum lítið
eftir hvað varðar öryggi, endingu,
aksturseiginleika, vélarafl og þægindi.
Volvo 440/460 er fáanfegur með 1.8 1 eða 2.01 vél,
báðar með beinni innspýtingu. Hann er sérlega vel
búinn aukabúnaði og má þar helst nefna
vökvastýri, samlæstar hurðir, veltistýri, upphituð
framsæti, bflbeltastrekkjara, sjálfvirka
hæðarstilhngu bflbelta, stillanlega hæð framsæta,
dagljósabúnað, fellanlegt aftursætisbak, litað gler,
Iæst bensínlok, 14" felgur og 185/65R14 hjólbarða,
pluss áklæði á sætum og margt fleira.
Volvo 440/460 er framhjóladrifinn og sparneytinn
fjölskyldubíll.
Góðir dómar!
Bflagagnrýnendur eru á einu máli um Volvo
440/460 og m.a. gaf Bílablað DV bflnum
sérstaklega góða umsögn og þá einkum hvað
varðar vélarafl og hversu hljóðlátur hann er.
VOLVO
BIFREIÐ SEM Þ Ú GETUR TREYST
FAXAFENI8 • SÍMI91-685870