Helgarpósturinn - 03.10.1994, Page 43
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994
MORGUNPÓSTURINN SPORT
43
Birkir Krist-
insson mark-
vörður:
Reikna
meðað
veva
áfram í
Fram
Undanfarið hafa gengið sög-
ur um að Birkir Kristinsson,
landsliðsmarkvörður úr Fram,
væri á leið í atvinnumennsku
og heyrast helst lið í Noregi
nefnd í því sambandi. Birkir er
einn af máttarstólpum Fram-
liðsins og það yrði mikill missir
að honum fyrir liðið. En er
Birkir á leið utan í atvinnu-
mennsku? „Ég hef ekki heyrt
neitt um þetta og kem því alveg
af fjöllum. Að minnsta kosti
hafa engin erlend lið sett sig í
samband við mig enn. Ég á því
von á að vera áfram í Safamýr-
inni, að minnsta kosti eitt ár
enn. Hins vegar get ég ekki
leynt því að ég hef áhuga á að
fara í atvinnumennsku ef mér
býðst eitthvað bitastætt. Annars
hefur sumarið verið ágætt
hérna heima þrátt fýrir misjafnt
gengi liðsins. Við erum með
miklu betri mannskap en sætið
gefur til kynna og ástæðan kann
meðal annars að vera sú að það
vantar meiri breidd í liðið. Ég á
þó von á að við fáum liðsauka
fyrir næsta tímabil og er þokka-
lega bjartsýnn á framhaldið.“B
Holland
Agax i annað sætíð
Ajax Amsterdam skaust upp í
annað sætið í hollensku fyrstu
deildinni eftir góðan útisigur á
Sparta Rotterdam um helgina.
Ronald de Boer kom gestunum
yfir í fyrri hálfleik og Nígeríu-
maðurinn Finidi George gull-
tryggði sigurinn með marki úr
vítaspyrnu í síðari hálfleik.
Sparta lék síðustu mínútur leiks-
ins einum manni færri þar sem
Gilbert Taument var rekinn af
leikvelli. Gengi Feyenoord hefur
oft verið betra. Liðið, sem er í
sjöunda sæti deildarinnar, náði
aðeins jafntefli gegn Groningen
sem er í fjórða neðsta sæti. John
van Loen náði forystunni fyrir
Feyenoord snemma í leiknum en
Raymond Beerens jafnaði fyrir
Groningen sex mínútum síðar. I
síðari hálfleik var varnarmann
Groningen, Erwin Koeman,
vikið af leikvelli en þrátt fyrir það
tókst leikmönnum Feyenoord
ekki að skora og jafntefli því nið-
urstaðan. PSV Éindhoven sótti
lið NEC Nijmegen heim á föstu-
dag. Leikurinn endaði með jafnt- efli, 2:2, og hefðu mörkin getað orðið mikið fleiri. Þeir Janssen og Kooistra skoruðu fyrir heimamenn en fyrir PSV skor- uðu þeir Numan og Hoekstra.B
Úrslit
Groningen - Feyenoord 1:1
Utrecht - Volendam 0:0
Sparta - Ajax 0:2
Tilburg - Twente 2:2
Maastricht - Breda 2:3
Nijmegen - PSV 2:2
Staðan
Twente 7 17:11 11
Ajax 5 14: 2 9
Utrecht 6 12: 6 9
PSV 5 15: 6 8
Maastricht 6 14: 7 8
Roda 6 11:6 8
Feyenoord 6 9: 6 7
Evrópukeppni landsliða
Bragi dæmir
á írlandi
Milliríkjadómarinn Bragi
Bergmann hefur verið settur á
landsleik Irlands og Liechten-
stein í Evrópukeppni A-lands-
liða. Leikurinn, sem fram fer í
Dyflinni miðvikudaginn 12. okt-
óber, er fyrsti leikur íranna eftir
HM í Bandaríkjunm og þegar er
uppselt á hann, en völlurinn tek-
ur um fimmtíu þúsund áhorf-
endur.
Vígð verða ný flóðljós á vellin-
um og hefur leikurinn hlotið
mikla umfjöllun ytra jafnvel þótt
fyrirfram sé landslið Liechten-
stein ekki talið sterkt.
Þetta er líklega stærsti leikur
sem íslenskur milliríkjadómari
hefur dæmt á ferlinum, sé miðað
við fjölda áhorfenda, en aldrei
áður hafa áhorfendur verið
fimmtíu þúsund eða fleiri þótt
stundum hafi fjöldinn slagað
hátt upp í það.
Línuverðir Braga í leiknum
Bragi Bergmann. Fékk
stærsta verkefni íslenskra
dómara til þessa.
verða þeir Sæmundur Víg-
lundsson og Gísli Björgvins-
son en varadómari verður Eyj-
ólfur Ólafsson.B
Þjálfaraskipti hjá Val og FH
Hörður Hilmarsson tíl Vals
Nú er Ijóst að Hörður Hilmars-
son kemur ekki til með að þjálfa lið
FH næsta sumar. Hann hefúr gengið
frá skiptum yfir í Val og þjálfar liðið
næsta sumar. Það má því segja að
Hörður sé kominn „heim í heiðar-
dalinn“, því hann er uppalinn Valsari
og lék með félaginu frá sex ára aldri.
„Þetta hefur staðið til lengi og ég hef
bara ekki verið tilbúinn að fara yfir
fyrr en núna. Samningurinn við FH
var búinn og stóð ekki til að endur-
nýja hann, og núna vil ég bara þjálfa
Val. Annars leið mér mjög vel hjá FH
og átti mjög góð samskipti við leik-
menn og stjórn
félagsins," sagði
Hörður er blaða-
maður Morgun-
póstsins ræddi við
hann um helgina.
Aðspurður um
leikmannahóp
Vals fyrir næsta
tímabil sagði
Hörður Hörður: „Á þess-
ari stundu veit ég
lítið um Ieikmannahópinn fyrir
næsta sumar, en unnið er að því
þessa stundina að endurnýja samn-
inga við leikmenn. Hins vegar á ég
ekki von á að við fáum mikið af nýj-
um leikmönnum.“ Það er ekki nokk-
ur vafi á að Valsmönnum er mikili
fengur í Herði, en hann hefur sem
kunnugt er náð mjög góðum árangri
með FH-liðið og undir hans stjórn
hefur það náð öðru sæti í fyrstu
deildinni tvö ár í röð.
Kristinn Björnsson, fráfarandi
þjálfari Vals, segir framhaldið hjá sér
óráðið: „Það er ekki ljóst hvort ég
kem til með að þjálfa næsta sumar.
Félög hafa sett sig í
samband við mig
en ég stend ekki í
neinum viðræðum
þessa dagana. Á
milli mín og Vals
ríkir fullkomin sátt
og það er mjög
eðlilegt að skipta
um þjálfara eftir
Kristínn tveggja ára starf
hjá félaginu. Ég er
fullkomlega sáttur við dvöl mína hjá
Val og vona að þeim gangi sem best
næsta sumar.“B
Verð miðað við staðgreiðslu. Afborgunarverð 65.900.-
Nú er vissara að koma hlaupandi!
28" Supertech (framleitt í Frakklandi) litasjónvarp með Nicam stereo,
flötum skjá, textavarpi og fjarstýringu fæst nú á þessu ótrúlega verði!
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 69 15 OO