Helgarpósturinn - 31.10.1994, Qupperneq 2
2
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1994
I .fvrsta
lagi...
Hvers vegna á Markús
Öm erindi á þing?
i fyrsta lagi Markús hefur sýnt aö
hann á ekki erindi í
borgarstjórn. Hann
átti heldur ekki er-
indi í útvarpið. Og
’hugsanlega á hann
ekkert erindi annað.
Og þannig er það
um svo margt fólk. Pað á ekkert
sérstakt erindi. Þetta fólk vantar
málsvara á Alþingi og Markús Örn
er maður þessa fólks.
í öðru lagi Markús bauð sig fram
til borgarstjórnar-
kosninga en hafnaði
sér sjálfur. Nú býður
hann sig fram til
’þingkosninga og
sjálfstæðismenn
■ hafna honum. Það
er því nægt framboð af Markúsi en
ónóg eftirspurn. Hann þekkir því á
sjálfum sér þá heilögustu af öllum
heilögum kennisetningum kapítal-
ismans. Þannig mann vantar á þing.
í þriðja lagi Markús hefur sýnt að
hann metur hags-
muni flokksins ofar
eigin hagsmunum
^og metnaði. Hann er
r tilbúinn að standa
upp og víkja ef ein-
' hver vill. Þannig
mann vantar á þing — og það strax.
Þannig maður gæti til dæmis sagt
af sér fyrir Guðmund Árna eða
hvern sem er. Ef einhver lendir í
vanda þá tekur Markús ábyrgðina
og fer.
í fjórða lagi Ef Markús fær ekki
þingsæti að launum
fyrir hollustu sína við
flokkinn sýnir það
og sannar að slík
' hollusta borgar sig
ekki. Og hvert leiðir
það? Við sitjum uppi
með eintóma ójsekktarorma á borð
við Katrínu og Pétur. Tilvonandi
uppvöðslu- og klofningsfólk.
í fimmta lagi Það verður að finna
færsæla lausn fyrir
Markús. Þetta byrj-
aði allt á því að
hann fór úr Útvarp-
’inu og í Ráðhúsið.
Og Heimir fór í Út-
• varpið með þeim af-
leiðingum sem það hafði og allir vita
um. Það er hreint þjóðþrifamál að
þeim farsa öllum linni. Og ef það
þarf góðan endi fyrir Markús til aó
það gerist þá verður að tryggja
góðan endi.
Ólafur Ragnar Grímsson hefur verið í viðræðum við stjórnarþingmenn um að leggja
fram vantrauststillögu á Guðmund Árna og er staðráðinn í að leggja slíka tillögu fram
Spuming um sam
visku
mgmanna
Olafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins „Ég er Guðmundur Árni Stefánsson félagsmálaráðherra Ef hann segir
þeirrar skoðunar að málið iiggi þannig að það sé orðið Ijóst að vilji ekki af sér á næstu dögum og forsætisráherra víkur honum ekki úr
þingsins sé tvímælalaust á þann veg, ef menn tala eingöngu út frá eig- embætti verður borin fram vantrauststillaga á hann einan öðrum hvor-
in skoðunum, að félagsmálaráðherra eigi ekki lengur að gegna emb- um megin við næstu helgi.
ætti.“
Sonur lúber
fbreldra sína
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, hefur
undanfarna daga átt í viðræðum við
einstaka þingmenn stjórnarliðsins
um að leggja frarn vantrauststillögu
á Guðmund Árna Stefánsson, fé-
lagsmálaráðherra, öðrum hvorum
megin við næstu helgi. Ef ráðherr-
ann segir ekki af sér á næstu dögum
að eigin frumkvæði eða Davíðs
Oddssonar, forsætisráðherra, telur
hann óhjákvæmilegt að láta reyna á
stuðning við vantraust.
„Já, ég hef rætt við ýmsa stjórnar-
liða,“ sagði Ólafur Ragnar í samtali
við MORGUNPÓSTINN í gær
kvöldi. „Ég er þeirrar skoðunar að
málið liggi þannig að það sé orðið
Ijóst að vilji þingsins sé tvímælalaust
á þann veg að, ef menn tala ein-
göngu út frá eigin skoðunum, að fé-
lagsmálaráðherra eigi ekki lengur að
gegna embætti. Ég tel að þetta sé
orðin spurning um samvisku, bæði
mína og annarra, að Iáta málið ekki
iiggja-"
Telurðu vísan stuðning frá ein-
hverjum stjórnarliðum við vantraust-
stillögu á ráðherrann?
„Ég vil ekki fullyrða það á þessu
stigi vegna þess að mér er alvara með
því að vilja gefa félagsmálaráðherra
möguleika á því að bjarga einhverju
af sóma sínum með því að hafa
frumkvæði í málinu sjálfur. Mér
finnst það bæði manneskjulegt og
eðlilegt. En það er blindur og heyrn-
arlaus maður sem ekki skynjaði það
á fimmtudaginn í þingsalnum hver
vilji þingmanna var á þeirri stundu.“
Þar er ðlafur Ragnar að vísa til ut-
andagskrárumræðu sem hann
óskaði eftir vegna orða sem Guð-
mundur Árni lét falla í umræðum í
sjónvarpi í garð Magnúsar Jóns
Árnasonar, bæjarstjóra í Hafnar-
firði.
„Félagsmálaráðherra hlýtur líka
að leiða hugann að þeirri staðreynd
að það kom enginn honurn til varn-
ar í þingsalnum. Málið er þannig
vaxið, að mínum dómi, að það er
orðið grundvallarspurning um þær
leikreglur og siðareglur sem menn
eiga að fylgja hér, alveg óháð því
hvorum megin flokkar sitja við rík-
isstjórnarborðið.“
Myndir þií bera tillöguna fram í
eigin naftii og þá á Guðmund Árna
einan?
„Ég mun velja formið í samræmi
við þær viðræður sem ég á við ein-
staka þingmenn. En ég mun ekki
binda mig við samráð við þingmenn
stjórnarandstöðuflokkanna heldur
mun ég beita mér fyrir því að slíkt
frumvarp yrði lagt fram í nafni ein-
stakra þingmanna en ekki flokka.“
Á hverju yrði vantraustið byggt,
hvernigyrði tillagan orðuð?
„Ég vil ekki lýsa því á þessu stigi
en hún yrði á þann veg að enginn
gæti gert neina formlega athuga-
semd við hana.“
Hvað gefurðu Guðmundi Árna og
Davíð langan tíma?
„Ég mun gefa þeim tíma fram eft-
ir þessari viku til að meta málið.
Ef ekkert gerist undir lok vikunn-
ar að þeirra frumkvæði mun ég hefja
formlegar viðræður af alvöru við
einstaka þingmenn því ég tel að
málið sé orðið hafið yfir flokkaskipt-
ingu í þinginu eða skiptingu manna
í stjórn og stjórnarandstöðu. Og ég
veit að margir þingmenn eru þeirrar
skoðunar líka að þetta mál sé komið
út fýrir þau hefðbundnu mörk. Síð-
an mun ráðast hvort formleg tillaga
kemur frarn í lok þessarar viku eða í
þeirri næstu.“
-SG
Fimmtugur maður gekk í
skrokk á foreldrum sínum á
heimili þeirra í Laugaráshverfi á
laugardagskvöldið. Að sögn
Kristleifs Guðbjartssonar,
varðstjóra hjá Lögreglunni í
Reykjavík, voru hjónin flutt á
slysadeild, faðirinn með brákað
rif og móðirin illa farin í andliti.
Sérsveit lögreglunnar var kölluð
á vettvang því talið var að mað-
urinn væri vopnaður. Rann-
sóknarlögregla ríkisins hefur
hætt afskiptum af málinu þar
sem engin kæra liggur fyrir.
Maðurinn var færður undir
læknishendur. ■
Nauðgari í
ellefu daga
varðhald
Konan sem varð fyrir fólsku-
legri Iíkamsárás af fyrrum sam-
býlismanni sínum á heimili hans
í Kópavogi á föstudagskvöldið,
var útskrifuð af slysadeild í gær.
Að sögn Jóns Baldurssonar,
læknis á Borgarspítalanum, er
hún talin úr allri lífshættu.
í gær úrskurðaði Héraðsdóm-
ur Reykjaness, manninn í n daga
gæsluvarðhald en gerð hafði ver-
ið krafa um 32 daga fangelsisvist.
Málinu hefur verið áfrýjað til
Hæstaréttar. ■
Þorlákshöfn
Tveir menn
stórslasaðir
eftir bílvettu
Þyrla landhelgisgæslunnar var
send til að sækja tvo menn sem
slösuðust alvarlega eftir bílveltu
skammt frá Þorlákshöfn rétt fýr-
ir kl. 9 að morgni laugardags.
Bíllinn sem er af gerðinni BMW
fór margar veltur og er gjörónýt-
ur. „Þeir hafa ekki séð annað
eins og beltin björguðu öllu,“
sagði lögregluþjónn á Selfossi í
samtali við MORGUNPÓSTINN.
Talið er að bíllinn hafi verið á
ofsahraða og ökumaðurinn er
grunaður um ölvun. ■
Hvar endar
hnéð á þér?
Það fer eftir því hver spyr. Ef
Linda Pé spyr þá endar það
upp í nára. En ef þessi öku-
kennari spyr þá endar það of-
an í skóm.
Keflavíkurflugvöllur
Teknir með tæpt
kílóaf hassi
Á föstudag komst upp um tvo 18
ára pilta sem hugðust smygla 890
grömmum af hassi frá Kaup-
mannahöfn.
„Þarna voru tveir menn á ferð
og annar þeirra var tekinn hjá okk-
ur eftir að fíkniefnaleitarhundur
fór í tösku sem hann átti,“ segir
Gottskálk Ólafsson, aðalvarð-
stjóri Tollgæslunnar á Keflavíkur-
flugvelli. „Það fannst ekkert í tösk-
unni en við nánari skoðun hjá
honum kom í ljós að hann var
með töluvert af kannabisefnum
límd um mittið og að annar aðili
hafi verið með honum á ferða-
lagi.“ Allir farþegarnir voru farnir
þegar þar var komið við sögu og
hafði Tollgæslan samband við
fíkniefnadeild lögreglunnar sem
tók á móti rútunni frá flugstöðinni
í Reykjavík. Þar náðist í hinn pilt-
inn og var hann einnig með tölu-
vert magn fíkniefna falið innan
klæða. Piltarnir sem eru 18 ára hafa
hvorugur áður verið staðnir að
fikniefnasmygli og var þeim sleppt
að lokinni yfnheyrslu þar sem
málið var talið að fullu upplýst.
-LAE
íslandsmeistaramótið í skák
Jóhann meistarí
Jóhann Hjartarson, stórmeist-
ari, varð í gær íslandsmeistari í skák
eftir yfirburðasigur í sérstakri
þriggja manna úrslitakeppni, sem
fram fór í Vestmannaeyjum.
Á Skákþingi Islands í sumar urðu
þeir efstir og jafnir, Jóhann Hjart-
arson, Helgi Ólafsson og Hannes
Hlifar Stefánsson og þurftu því
að tefla innbyrðis um Islandsmeist-
aratitilinn í sérstakri úrslitakeppni,
sem lauk í gær.
Jóhann hlaut þrjá vinninga af
fjórum mögulegum, - vann tvær
skákir, gerði tvö jafntefli en tapaði
engri. Helgi Ólafsson og Hannes
Hlífar Stefánsson urðu jafnir með
einn og hálfan vinning hvor.
-SG
Jóahnn Hjartarsson Vann tvær
skákir og gerði tvö jafntefli.