Helgarpósturinn - 31.10.1994, Síða 4

Helgarpósturinn - 31.10.1994, Síða 4
4 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR rvopr m -, - MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1994 Hveiju munaði? Að neðan má atkvæðafjöldann, sem tryggði frambjóðendum sæti og atkvæðafjölda þess, sem næst kom í það sæti. 6000------------------------- 2500- 2000- 1500- 1000- 500- 3500- 3000- 2500- 2000- 1500- 1000- 500- Katrín Fjeldsted Björn Bjarnason Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík Pétur Blöndal með öruggt þingsæti Enginn þingmannanna felldur. Katrín Fjeldsted í hokkuð öruggu sæti. Markúsi Emi hafnað. 1. sæti Upps. 2. sæti Upps. 3. sæti Upps. 4. sæti Upps. 5. sæti Upps. 6. sæti Upps. 7. sæti Uppsa. 8. sæti Upps. 9. sæti Upps. 10. sæti Upps. 1. Davíð Oddsson 5.376 5.376 328 5.704 128 5.832 110 5.942 88 6.030 81 6.111 80 6.191 62 6.253 75 6.328 152 6.480 2. Friðrik Sophusson 302 302 4.330 4.632 367 4.999 340 5.339 181 5.520 200 5.720 171 5.89 1.184 6.075 199 6.274 132 6.406 3. Björn Bjarnason 247 247 694 941 2.362 3.303 1.144 4.447 540 4.987 424 5.411 346 5.757 278 6.035 187 6.222 176 6.398 4. Geir H. Haarde 146 146 367 513 2.089 2.602 1.644 4.246 766 5.012 563 5.575 370 5.945 302 6.247 283 6.427 140 6.567 5. Sólveig Pétursdóttir 67 67 149 216 668 884 690 1.574 709 2.283 870 3.153 775 3.928 792 4.720 704 5.424 489 5.913 6. Lára M. Ragnarsd. 59 59 148 207 218 425 619 1.044 1.187 2.231 1.102 3.333 924 4.257 768 5.025 670 5.695 443 6.138 7. Guðm. Hallvarðsson 36 36 88 124 202 326 377 703 1.333 2.036 740 2.776 662 3.438 760 4.198 724 4.922 604 5.526 8. Pétur H. Blöndal 196 196 216 412 208 620 458 1.078 713 1.791 800 2.591 644 3.235 675 3.910 654 4.564 693 5.257 9. Katrín Fjeldsted 296 296 334 630 349 979 526 1.505 505 2.010 657 2.667 537 3.204 667 3.871 706 4.577 564 5.141 10. Markús Örn Antonss. 112 112 153 265 178 443 699 1.142 477 1.619 709 2.328 647 2.975 696 3.671 711 4.382 651 5.033 Pósturínn ©1994 Aðeins 6.885 manns tóku þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík á föstudag og laugardag. Þetta er minna en helmingur flokksbundinna sjálfstæðismanna í borginni og eru niðurstöður próf- kjörsins því ekki bindandi. Ólíklegt er þó talið að kjördæmaráð muni leggja fram lista sem er frábrugðinn niðurstöðum prófkjörsins. í stuttu máli urðu úrslit próf- kjörsins þessi: Allir þingmenn flokksins tryggðu sér örugg þing- sæti. Pétur H. Blöndal lenti í átt- unda sæti sem verður að teljast ör- uggt sæti og Katrín Fjeldsted í því níunda, sem dugði Guðmundi Hallvarðssyni í síðustu kosningum til að komast á þing. Ef hægt er að tala um að einhver hafi tapað í próf- kjörinu þá er það Markús Örn An- tonsson. Hann stefndi á fjórða sæt- ið en lenti í því tíunda, en flokkur- inn þarf að vinna stóran sigur í næstu kosningum ef það á að fleyta Markúsi á þing. Ari Edwald lenti síðan í ellefta sæti en hann lagði töluvert undir í þessu prófkjöri og getur því varla verið ánægður með þessa niðurstöðu. Geir H. Haarde stekkur upp Efstu þrjú sætin í prófkjörinu eru eins og í síðasta prófkjöri. Davíð Oddsson fékk glæsilega kosningu í fyrsta sætið eða 78 prósent atkvæða. Friðrik Sophusson fékk góða kosningu í annað sætið eða 67,3 prósent atkvæða. Og Björn Bjarna- son sigraði slaginn um þriðja sætið. Hann fékk 3.303 atkvæði í þrjú efstu sætin. Næstur á eftir honunt kom Geir H. Haarde með 2.602 atkvæði og munaði því 701 atkvæði á þess- um aðalkeppinautum um þriðja sætið. Það var síðan langur vegur í næsta mann, Katrínu Fjeldsted, en hún fékk 979 atkvæði í fyrstu þrjú sætin. En þrátt fyrir að Geir hafi ekki náð þriðja sætinu getur hann verið ánægður með útkomuna. Hann lendir nú í fjórða sætinu en var í því sjöunda. 1 þessu prófkjöri skýst hann fram fyrir Sólveigu Péturs- dóttur sem var í sjötta sætinu í síð- asta prófkjöri. Þetta eru einu breytingarnar á röðun þingmannanna. Þar sem Eyj- ólfur Konráð Jónsson, sem var í fjórða sæti síðast, og Ingi Björn Al- bertsson, sem var í því fimmta, gáfu ekki kost á sér mjakast þing- mennirnir upp um þessi tvö sæti. Geir stekkur upp urn þrjú, Sólveig um eitt og þau Lára Margrét Ragnarsdóttir og Guðmundur Hallvarðsson upp um tvö. Pétur og Katrín í þingsætum Miðað við úrslit prófkjörsins og stöðu flokksins samkvæmt skoð- anakönnunum eru þau Pétur H. Blöndal og Katrín Fjeldsted líklegir þingmenn sjálfstæðismanna eftir næstu kosningar. Katrín verður þó að teljast í baráttusæti flokksins. Pétur fékk 3.910 atkvæði í átta efstu sætin en Katrín 3.873. Það munaði því aðeins 37 atkvæðum á þeim tveimur og er það minnsti munur á milli tveggja sæta í próf- kjörinu. Næst minnstur var munurinn á milli Sólveigar Pétursdóttur og Láru Margrétar Ragnarsdóttur í keppn- inni um fimmta sætið. Sólveig fékk 2.283 atkvæði í fimm efstu sætin en Lára Margrét 2.231. Munurinn var 52 atkvæði. Markús tapar Markús Örn Antonsson fékk 4.382 atkvæði í níu efstu sætin og beið því lægri hlut fyrir Katrínu með 195 atkvæðum. Markús stefndi á fjórða sætið en fékk aðeins 1.142 atkvæði í fjögur efstu sætin. Fyrir utan Geir H. Haarde, sem hreppti sætið, fengu Katrín Fjeldsted og Sólveig Pétursdóttir fleiri atkvæði en Markús í það sæti. Og Markús var síðan enn fjær því að hreppa önnur sæti á leiðinni niður í það tí- unda. Sjálfstæðisflokkurinn gefur ekki upp atkvæði þeirra sem lentu neðar en í tíunda sæti en samkvæmt heimildum MORGUNPÓSTSINS fékk Ari Edwald um 3.900 atkvæði eða um 1.100 atkvæðum færra en Markús Örn. Það verður að teljast slælegur árangur miðað við hversu mikið Ari lagði undir í prófkjörs- slagnum. Asgerður Jóna Flosadóttir fékk síð- an um 3.300 atkvæði í tólfta sæti, Ari Gísli Bragason um 1.600 í það þrettánda og rest- ina rak Guðmundur Kristinn Oddsson með um 1.130 atkvæði í fjórtanda sæti. -SG Pétur H Blöndat fagnar niðurstöðum prófkjörsins með syni sínum. Pétur H. Blöndal „Kjósendur vilja sjá nýja menn og nýjar skoðanir“ „Mér finnst þetta ágæt niður- staða og ég er ánægður með hana,“ segir Pétur H. Blöndal sem hreppti áttunda sætið í prófkjör- „Ég túlka árangur minn þannig að kjósendur viji sjá nýja menn og nýjar skoðanir. Ég veit ekki hvað olli því öðru fremur að ég náði 8. sætinu en ég er náttúrlega tiltölu- lega vel þekktur. Fundirnir sem ég hélt á meðan á kosningabaráttunni stóð voru nokkuð fjölmennir og það var greinilegt á þeim að kjós- endur vilja umræður og að heyra skoðanir frambjóðenda. Menn voru mjög þakklátir fyrir að fá að vita mína skoðanir jafnvel þótt þeir hafi ekkert endilega verið sammála þeim. Ég á von á því að flokkurinn fái kannski níu þingmenn í Reykja- vík í kosningunum og aðalatriðið er að vera í þeim hópi frekar en að vera ofar á listanum. Ég held að það sé einmitt gott að hafa fólk eins og mig og Katrínu í 8. og 9. sætinu. Við erum bæði tiltölulega ný og með fjölbreyttar skoðanir á lands- málunum.“ - LAE Jr að vakti nokkra athygli að sá kaldhamraði stjórnmálamaður, Ól- afur Ragnar GrImsson, virtist full- ur hluttekningar þegar hann talaði um þau vandræði, sem Guðmundur Árni STEFÁNSSON hefði ratað í. Hann sagði með guðsóttasvip eitt- hvað í þá veru, að þetta væri synd með svo góðan dreng að lenda í slíku og þvílíku, en það yrði þó tæplega hjá því komist að leggja fram vantraust- stillögu á hann ef hann segði ekki af sér af sjálfs- dáðum. Þá varð einum þingmanni á orði, að alltaf væri Ólafur Ragnar samur við sig, - hann mætti ekkert aumt sjá...án þess að sparka í það... ■ Ólafur Ragnar sparkar enn í það auma ■ „Ert þú þessi Carpe diem?“ Guðmundur Árni einn úti í horni á meðan krataráðherrarnir skemmtu sér saman í hóp ^íýlega var opnaður í Reykjavík ættu ekki rétt á því að sitja einir að veitingastaðurinn .................. 1 nafninu. Yfirvöld Carpe diem. Þetta er veltu vöngum og latina og þýðir orðrétt ■ komust að þeirri nið „gríptu daginn“, en mmma ■ urstöðu að þessi varla þarf að efast um Mj S^H ■ rekstur, annars að það er komnið úr H H| H vegar latínunám bíómyndinni Dead HLJh oghinsvegar Poets Socicty þar scm veitingabisness, mjög var fjölyrt um væri svo ólíkur að þessa lífsspeki. Þegar 111 ■■ j* I ■ ekki myndi fréttist afvcitinga- UJLAZ4LJL2JJb valda hver töf varð á afgreiðslu, greinilega vegna þess að bankagjaldkerinn, ung kona, var þungt hugsi. Úr þvi greiddist þó fljótt þegar gjaldkerinn leit upp, horfði á latínustúdent- inn og spurði: „Ert þú staðnum greip um sig nokkur óánægja rncðal fatínunema í Há- skólanum, en þeir hafa haft með félagsskap sem einmitt heitir Carpe diem. Lat- ínunemarnir létu ekki þar við sitja heldur höfðu samband við við- eigandi yfirvöld og leit- uðu álits á því hvort þeir vandræðum þótt hvor- ir tveggju notuðu nafn- ið. Það kemur þessu svo ekkert við, en er þó skylt, að nokkrum dög- um síðar fór gjaldkeri latínufélagsins Carpe di- em í banka og hugðist leggja inn peninga á reikning félagsins. Ein ystumenn Alþýðuflokksins auk gam- alla krata og fólks úr fjölmiðlaheim- inum. Sundurleysið í þingliði flokks- ins fór ekki framhjá samkvæmisgest- um og var kostulegt að fýlgjast með hvemig ráðherramir dönsuðu um salinn. Össur, Sighvatur og Jön Baldvin héldu sig í hnapp í öðrum enda hans á meðan Guðmundur Árni stóð einangraður í hinum end- anum. Effir því sem leið á samkvæmið færðist hóp- urinn og skipti um staði í salnum en hvað sem á dundi hélt þríeykið hóp- inn á meðan Guðmund- ur mátti láta sig hafa að húka eirrn úti í homi án þess að samráðherrar hans virtust taka eftir honum...

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.