Helgarpósturinn - 31.10.1994, Page 8
8
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
Þ9fc.
MÁNODAGUR 31. OKTÓBER 1994
smaa
Jetrið
Hvers vegna
að kjósa verri
helminginn?
1
Hann Guðmundur Hallvarðsson
náði bara níunda sætinu í prófkjöri
sjálfstæðismanna í Reykjavík —
sem er nú reyndar ágætis árangur.
En þrátt fyrir að einir sex hafi náð
lengra en Guðmundur þá var enginn
þeirra með jafn gott slagorð og
hann. Á einu veltiskiltinu í bænum
mátti sjá glaðbeitta mynd af honum
og undir henni stóð sjómaður
dáðadrengur. Þetta er flott slag-
orð. Og líklega flottara en hið marg-
lofaða Einn, tveir og
Geir sem stuðnings-
menn Geirs H. Haarde
beittu furðulega var-
færnislega í kosninga-
baráttunni. En hins veg-
ar getur það ekki talist betra en
Drifa Sigþórsdóttir beitir fyrir sig í
prófkjöri framsóknarmanna í
Reykjanesi. Drífa Sig. í fyrsta
sæti er hreint ósigrandi.
En þetta gefur tilefni til að velta fyrir
sig slagorðum. Og hvort ekki sé til
fólk sem geti telft fram slagorðum
sem séu svo góð að þau tryggi
þeim einfaldlega þingsæti. Þennan
mann úr einkageiranum! er til
dæmis fráþært slagorð
fyrir Davíð Scheving —a***
Thorsteinsson og ætti
að tryggja það að fólk
flykktist á kjörstað til að -^Æ
koma honum í vinnu hjá
ríkinu. Fækkum miliiliðunum! ætti
sömuleiðis að fara langt með að
koma Hrafni Gunnlaugssyni í fjár-
veitinganefnd, sem Sþarar bæði
tíma og peninga. Hann getur þá
sjálfur tekið þá styrki sem hann
kærir sig um og þarf ekki að þlanda
öðru fólki í þau mál. Ég ætla að
ganga á þing, ég ætla að ganga
á þing. Ég ætla að ganga á þing,
ég ætla að ganga á þing o.s.fr.!
er gott slagorð fyrir Valgeir Guð-
jónsson sem á örugglega erindi —
kannski ekki á þing en eitthvað er-
indi samt. Fleiri slagorð: Verum
hress, ekkert stress, kjósum
Helgu Kress!. Og: Látum hlutina
ganga!, stuðningsmenn Reynis
Péturs göngugarps.
Kjósum ekki verri
helminginn — kjósum
þann betri! fyrir Sigríði
Dúnu Kristmundsdóttur.
Ásgeir Stefánsson,
bróðir Guðmundar Árna gæti notað
þetta Kjósum litla
bróður Guðmundar
Árna — minni bróðir,
minni skandalar!.
Maður sem rekur
hlutina áfram! er fínt
slagorð fyrir Sigurð G. Tómasson
og Heimir Steinsson gæti notað
eitthvað óskiljanlegt, til dæmis: Um
gnörrinn geri ég engan ágrein-
ing!
Árni Gunnarsson, íyrrverandi starfsmaður Bónuss
Hyggsl stefha Bónus
vegna vangreiddra launa
Árni Gunnarsson, fyrrum starfsmaður Bónuss. „Ef undirborgunin reynist rétt í fleiri en mínu tilfelli liggur Ijóst fyrir af hverju Bónus getur haldið
matvöruverðinu svona lágu.“
Samkvæmt útreikningum Versl-
unarmannafélags Reykjavíkur á
Árni Gunnarsson, fyrrum starfs-
maður Bónuss í Iðufelli, inni 501
þúsund króna vangreidd laun hjá
versiuninni eftir fimrn rnánaða
vinnu. „Ég ætla í mál við Bónus
enda var ég verulega undirborgður
allan tímann. Ég veit um marga
aðra starfsmenn Bónuss sem ekki
hafa fengið laun samkvæmt kjara-
samningum. Ég hef grun um það
að Bónus stundi það í krafti stærðar
sinnar og vegna atvinnuástandsins í
þjóðfélaginu að svindla á starfsfólki
sínu,“ segir hann, en auk þess að
eiga inni yfirvinnu segir Árni VR
hafa komist að því að Bónus hafi
brotið á sér hvað varðar fleiri þætti
í kjarasamningum VR. Alls telur fé-
lagið að brotið hafi verið á honum í
átta tilfellum, sem eru auk
ógreiddrar yfírvinnu, ógreiddir frí-
dagar, ógreiddir kaffitímar og mat-
artímar sem hann vann, ógreitt
stórhátíðarálag, ógreitt orlof og
greiðsla vegna ófullnægjandi hvíld-
ar, en í kjarasamningum segir að fái
starfsmaður ekki tíu tíma hvíld eigi
hann að fá aukaálag daginn eftir.
„Ég veit að það eru margir mat-
vörukaupmenn sem bíða spenntir
eftir niðurstöðum úr þessu máli. Ef
undirborgunin reynist rétt í fleiri
en mínu tilfelli liggur ljóst fyrir af
hverju þeir geta haldið matvöru-
verðinu svona lágu.“
Ástæða þess að Árni fór að kanna
málin er sú að eftir fimm nránaða
starf hjá Bónus, á tímabilinu nóv-
ember ‘93 til apríl ‘94, var honum
fyrirvaralaust sagt upp störfum. í
uppsagnarbréfinu var ástæðan ekki
tilgreind heldur var honum bent á
að tala við verslunarstjóra. „Þegar
ég fór á fund verslunarstjóra var
mér tjáð að ég væri lélegur starfs-
kraftur og hefði staðið mig illa.
Með þessar upplýsingar fór ég á
fund framkvæmdastjórans, Ás-
geirs Jóhannssonar, sem hafði
það sama við mig að segja. Þessu
vildi ég ekki una enda var það mál
manna sem komu með kjötvörur
og fleiri vörur í búðina að kælirinn
sem ég hafði umsjón með hefði tek-
ið miklum breytingum til hins
betra.“
Árni segir að vinnuálagið hafi
verið mikið. Oft hafi teygst veru-
lega úr vinnutíma hans. Þótt ekki
stæði það í starfsamningi var hon-
um gert að vinna þrjá laugardaga í
mánuði. „Mér fannst svosem allt í
lagi að vinna mikið, svo framarlega
sem ég fengi greitt fyrir það,“ segir
hann. „Þegar ég fór hins vegar að
kanna rétt minn var mér sagt upp
störfum.“
Aðeins þrír starfsmenn voru í
fullu starfi auk Árna á þessu tíma-
bili, þar með talinn verslunarstjór-
inn. „Jafnvel þótt VR hafi margít-
rekað þá ósk sína að Bónus notaði
stimpilklukku, hafa þeir ekki orðið
að þeirri ósk. Það finnst mér skrýtið
í Ijósi þess að verslanir þeirra búa
yfir mjög fullkomnu tölvukerfi að
öðru leyti. Vegna þess að það var
engin stimpilklukka þurfti verslun-
arstjórinn að sjá um að skrifa niður
yfirvinnutíma mína. Ég túlkaði
starfsamninginn minn svo að auk
föstu launanna hefði ég átt að fá
greidda mína yfírvinnu, sem ég
fékk þó ekki nema að vissu marki.“
I starfsamningi Árna stendur að
hann eigi að fá 112 þúsund á mán-
uði fyrir vinnu frá átta á morgnana
til sjö á daginn. „Þegar ég fékk hins
vegar launin mín vantaði alltaf
töluvert upp á að ég fengi borgaða
alla þá yfirvinnu sem ég vann. Þeg-
ar verst lét vantaði þrjátíu til fjöru-
tíu tíma upp á. En ég á þetta allt rit-
að í bók. Ég var sífellt að biðja
verslunarstjórann um að leiðrétta
launin mín sem hann sagðist alltaf
ætla að gera en gerði svo aldrei. Ég
er ekki búinn að fá það staðfest en
ég hef heyrt að verslunarstjórar í
Bónus fái bónus, takist þeim að
halda yfirvinnu starfsmanna sinna
undir ákveðnu marki.“
Að sögn Árna er málið nú þannig
statt að Bónus hefur þegar boðið
fram sátt í málinu sem hann gekkst
ekki inn á eftir að hafa ráðlagt sig
við VR. Það var aðeins brot af kröf-
unni sem þeir vildu greiða. „Með
þessari sátt hefur Bónus þó viður-
kennt að ég eigi inni hjá þeim
ógreidda yfirvinnu.“
Guðmundur B. Ólafsson, lög-
fræðingur hjá VR, hefur umsjón
með máli Árna. Að hans sögn verð-
ur næsta skrefið að stefna Bónus
vegna máls Árna. Hann segir fleiri
sambærileg mál er varða Bónus
liggja inni á borði VR. Látið verður
hins vegar fyrst reyna á mál Árna
Gunnarssonar.
GK
Bætifláki
Skulda engum stjórnmálaflokki neitt
í Vikublaðinu 28. október má
lesa eftirfarandi í nafnlausum
þætti, sem heitir „Pólitízkan“, um
frægan pistil Egils Helgasonar í Al-
þýðublaðinu um R-listann: „Egill
afsakar afstöðu sina með tilvísun til
þcss að hann var á launum þegar
hann vann fyrir Reykjavíkurlist-
ann. Þetta er sama afsökun og
vœndiskonur nota. Fytrrverandi rit-
stjóri Reykjavíkurlistans skrifar
pistla í Alþýðublaðið tindir heitinu
Silfur Egils. Heiðarlegra vœri að
katmast við hlutskipti sitt og kalla
dálkinn Þrjátíu silfurpeningar:
Sannftering til sölu. “
Egill Helgason: „Þetta eru
óskaplega gamaldags skrif og
minna einna mest á
Magnús Kjartansson
sem var méstur sorp-
penni á íslandi á sinni
tíð. Hann brigslaði
andstæðingum sínum
gjarnan um að stunda
vændi og Júdas Iskarí-
ot var eins og fasta-
gestur í greinum hans.
Áð öðru leyti skil ég
ekki hvað er verið að
fara. Ég hef afar litla pólitíska
sannfæringu, skulda engu stjórn-
málaafli neitt og hef einskis slíks
trúnaðar að gæta við stjórnmála-
flokka að hann aftri mér frá því að
segja það sem mér finnst. Eini
trúnaður Sem ég hef er
við fólk, persónur sem
mér Iíkar vel við.
Grein mfn held ég að
hafi verið tímabær,
þar er Reykjavíkurlist-
inn varaður við því að
hann sé að glutra nið-
ur sigrinum frá því í
vor. Eg held að hann
hafi bara gott af því,
enda skilst mér menn
hafi farið að hugsa sinn gang í
Ráðhúsinu eftir að greinin birtist.
Loks verð ég að taka ffam að ég
er ekki stjórnmálamaður heldur
blaðamaður og er að reyna að lifa
af skrifum mínum.“ ■
Jóhannes Jónsson í Bónus
Tók drenginn að
mér af vorkunnsemi
„Ég tók þennan dreng að mér af
vorkunnsemi vegna þess að ég var
að gera vini mínum greiða. Hann
hefði ekki verið hjá okkur nema í
þrjár vikur ef þessi kunningsskapur
hefði ekki komið til. Það er greini-
lega mjög yndislegt að gera fólki
greiða. Að öðru leyti ætla ég að
svara þessum skít fyrir dómstól-
um.“
Hann vill meina að það séu fleiri
óáncegðir en hann?
„Við höfum alls ekki orðið varir
við óánægju. Við fylgjum kannski
ekki alveg einhverjum reglum, en
ég tel að við borgum mjög gott dag-
vinnukaup. Ég vil að fólk geti lifað
af temmilegum vinnutíma, sé ekki
alltaf að bíða eftir aukavinnu. Það
segir kannki mest að allir verslun-
arstjórarnir eru búnir að vera hjá
okkur frá upphafi, auk þess kernur
hellingur af fólki til okkar aftur og
aftur. Ég er ákveðinn og vill að fólk
vinni á meðan það er í vinnunni, en
við gerum líka vel við það í kjölfar-
ið á því.“
Er það rétt að verslunarstjórar séu
á sérstökum bónus við að halda yfir-
vinnufólks niðri?
„Þeir eru bara félagar í Verslun-
armannafélagi Reykjavíkur eins og
hinir. Náttúrlega eru ýmsir hvatar í
gangi. Það er bara til að auka metn-
að. En að rnenn sé að misnota að-
stöðu sína er af og frá. Yfírleitt eru
Jóhannes Jónsson í Bónus segist
ekki hafa orðið var við óánægju.
„Við fylgjum kannski ekki alveg
einhverjum reglum en ég tel að
við borgum mjög gott dagvinnu-
kaup.“
þetta litlir vinnustaðir þar sem fólk
verður kunningjar. Ég bendi bara á
það að Bónus fór að sjá Bjögga
Halldórs-sýninguna um helgina.
Það er ekki meiri óánægja en svo að
það var 100 prósent mæting.“ ■