Helgarpósturinn - 24.11.1994, Side 2
2
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1994
Af hverju hélt löggan að
á dópi? Þeir vita að með
Lindubuffi á að vera kók.
/
-Pingeyskar mannaráðningar Hall-
dórs Blöndals hjá Pósti og síma voru
til umræðu í MORGUNPÓSTINUM á
mánudaginn. Nokkur fleiri slík
dæmi þekkjast eins og að fyrir ekki
löngu síðan var valið úr hópi 58
umsækjenda í stöðu útibússtjóra
Pósts og sima á Hvolsvelli. I starfið
var ráðin ung kona, VlGDfs Kjart-
ansdóttir, sem kemur frá Greni-
vík. Nú að sjálfsögðu losnaði
staða útibússtjóra á Greni-
vík og var Valborg Gunn-
arsdóttir ráðin þangað...
■ Fleiri þingeyskar ráðningar hjá Halldóri
Sœvar Ciesielski skammar Jónatan Þórmundsson
I skýrslu Sævars Ciesielsms, sem stafnum lengi. Þarrnig gerir hann
hann afhenti dómsmálaráðuneytinu í harða hríð að JóNatan Þórmundssyni,
gær, er hann óhræddur við
að láta þá sem hann tel-
ur bera ábyrgð heyra
það. Oghanner
óhræddur við að gera
lögin að umtalsefhi þó
að í hlut eigi spren-
glærðirprófess-
orar, enda
hefúr hann
legið yfir
lagabók-
hæstaréttarlögmanni og fyrrverandi
prófessor. „Áður en dómur var kveð-
inn upp í Sakadómi Reykjavíkur gerði
Dagblaðið að umtalsefini hvort mögu-
legt væri að dæma sakbominga í ævi-
langt fangelsi og langt viðtal birtist við
Jónatan Þórmundsson sem rakti laga-
legar forsendur fyrir því,“ segir orð-
rétt í skýrslunni. „Hann gagnrýnir
sjálfur slikar yfirlýsingar í kennslubók
sinni, Opinbert réttarfar, sem gefin
deild. Á bls. 63 greinir hann frá því að
varast skyldi að segja fréttir af málum.
Hann rekur hvenær eða að hve miklu
leyti fféttir skuli fluttar af meðferð
mála fyrir dómstólum. Aðalákvæði
um takmörk fréttaflutnings og frétta-
túlkunar er í 161. gr. obm. Samkvæmt
henni varðar það sektum eða varð-
haldi að gefa villandi upplýsingar um
mál áður en þvi er að fúllu lokið. Mat á
slíkir umsögn fer fyrst og fremst eff ir
þvi, hvort hún sé til þess fallin að hafa
áhrif á rannsókn eða málalok...
„Eg vissi
þetta
aiian
tímann“
segirUnda Pétursdóttir,
fyrrum alheimsfegurðardmttning,
um niðurstöður tyfjaprófsins sem úrskurðar
að hún sé hrein. Allsherjarlert þó sjaldnast
framkvæmd enda óhemjudýr.
...fær Ólafur Jóhann Ólafsson
fyrir að láta venjubundið öfundar-
nagg bókmenntaelítunnar yfir
velgengni hans sem vind um eyru
þjóta og vera hvers manns hug-
Ijúfi í viðtölum.
... fær Páll Sigurðsson ráðu-
neytisstjóri heilbrigðisráðuneytis-
ins fyrir margorða athugasemd
við skýrslu Ríkisendurskoðunar
um óráðsíuna í ráðuneytinu. Hann
ætti frekar að eyða kröftum sín-
um og tíma í að koma skikki á
ráðuneytið en að vera með þetta
yfirklór.
„Þótt ég hafi ekki fengið niður-
stöðurnar í hendurnar hef ég óyggj-
andi heimildir fyrir því að Linda
Pétursdóttir hafi staðist lyfjapróf-
ið,“ sagði Gísli Gíslason, lögmað-
ur Lindu, þegar MORGUNPÓSTUR-
INN ræddi við hann í gærkvöld. En
sem kunnugt er sendi Linda Pét-
ursdóttir þvagprufu til rannsóknar
á föstudag á Rannsóknarstofu Há-
skólans í lyfjafræði til þess að freista
þess að hreinsa mannorð sitt í kjöl-
far innihalds lögregluskýrslu sem
blaðið birti síðastliðinn fimmtu-
dag. En þar var meðal annars ritað
að Linda Pétursdóttir hefði verið í
„annarlegu ástandi" þegar lögregl-
an handtók hana og unnusta henn-
ar, Leslie Robertson eftir að
Leslie hafði verið ranglega ásakaður
um að hafa ekið á kyrrstæðan bíl
aðfaranótt mánudagsins, eins og
frægt er orðið. Jafnframt var hún
sögð ódrukkin en krossað var við
reitinn önnur fíkniefni og sett
spurningamerki fyrir aftan af hálfu
þeirra lögreglumanna sem gerðu
skýrsluna.
„Ég vissi þetta allan tímann,“
sagði Linda Pétursdóttir í samtali
við MORGUNPÓSTINN þegar rætt
var hana í gærkvöld, „ég vil hins
vegar sjá þetta á blaði fyrir framan
mig til þess að fá þetta staðfest."
Niðurstöðu lyfjaprófsins var að
vænta í gærdag en þar sem blaðið
með upplýsingunum frá Rann-
sóknarstofunni fór í pósti liggja
upplýsingarnar ekki fyrir fyrr en í
morgun.
Linda sagði straxjá
En hvað var beðið um í þessu
lyfiaprófi?
„í því bréfi sem ég sendi fyrir
hönd Lindu Pétursdóttur til Rann-
sóknarstofu Háskólans óskaði ég
eftir því að rannsakað yrði, að því
marki sem hægt var, hvort um-
bjóðandi minn hafi verið undir
áhrifum fíkniefna aðfaranótt
mánudagsins 14. nóvember,“ segir
Gísli.
Nú er vitað til þess að það kemur
ekki allt frarn í þessu prófi þegar svo
langt er liðið frá því að meint neysla
hefði átt að eiga sér stað og þar til
lyfjaprófið fer fram, sannar þetta
eitthvað t málinu?
„Burtséð frá því að Linda á ekk-
ert að þurfa að standa í því að sanna
sakleysi sitt tel ég að hún hefði ekki
tekið sjénsinn á því að fara í svona
próf nema vegna þess að hún hefur
Gísli Gíslason lögfræðingur
Lindu, segir að Linda hefði ekki
þorað að taka sjénsinn á því að
fara í svona próf nema vegna
þess að hún hafi haft hreina sam-
visku.
hreina samvisku. Ég varð strax
sannfærður um sakleysi hennar á
viðbrögðum hennar þegar ég bar
upp við hana að hún færi í lyfja-
próf. Hún sagði strax já. Enginn er
jafn öruggur og Linda í þessu
máli.“
Allsherjarleit mjög dýr
Samkvæmt upplýsingum MORG-
UNPÓSTSINS frá Rannsóknarstofu
Háskólans kostar fjögur þúsund
krónur að leita að hverju efni í
rannsókn sem þessari. Afar sjald-
gæft er að einstaklingar „utan af
götu“ sendi inn sýni til Rannsókn-
arstofu í lyfjafræðum. En er hægt
að mæla öll fíkniefni í þvagi? Við
leituðum álits Jakobs Jakobs-
sonar sérfræðings hjá Rannsókn-
arstofnun Háskólans:
„Það fer eftir því hvað um er
beðið. Það er til ákveðin standard-
leit sem byggist á því að leita að
alkohóli, amfetamíni, bensódíum-
efnasamböndum, en þeim hópi til-
heyra til dæmis diesepan, valíum
og mogadon. 1 þessari standard-leit
er einnig reynt að hafa uppi á efn-
um eins og kókaíni og morfíni, en
við leitum þeirra ekki nema að það
sé sérstaklega um það beðið. Þess-
um flokki tilheyra hins vegar ekki
fíkniefni eins og ecstasy. Að því
væri leitað ef allherjarleit færi
fram.“
Jakob segir að hugsanlega sé
hægt að fremja allherjarleit á þrem-
ur til fjórum dögum. Það væri hins
vegar mjög dýr leit. „Allherjarleit
sem er bara gerð í sérstökum tilvik-
um kostar álíka mikið og ef maður
hefði bílinn á bílaverkstæði í jafn-
langan tíma.“
Er hugsanlegt að finna öll þessi
efni íþvagsýnum, jafnvelþótt margir
dagar séu liðnirfrá neyslu þeirra?
„Kannabisefni geta verið í þvagi
svo vikum skiptir, ef um langvar-
andi neyslu hefur verið að ræða,
Bensódíumefnasamböndin eru
einnig lengi að skilast út. Aftur á
móti eru efni eins og amfetamín og
kókaín ekki nema í fáeina daga í
líkamanum. Reyndar fer það líka
eftir hversu mikil neysla hefur vefyð
á efninu. Það á einnig við ef neyslan
hefur verið mikil í eitt skipti.“
Að sögn Jakobs er öllum þvag-
sýnum til Rannsóknarstofunnar,
hvort sem er frá stofnunum eða
einstaldingum, skilað inn eftir sett-
um reglum, það er að segja í votta
viðurvist.
Rannsókn máls Lindu Péturs-
dóttur gegn lögreglunni og mál
lögreglunnar gegn Lindu miðar að
sögn Harðar Jóhannssonar, yfir-
lögregluþjóns hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins, vel áfram. „Við vænt-
um þess að rannsókn málsins ljúki
fyrir vikulok,“ segir Hörður. í
framhaldi af því verður málið sent
til ríkissaksóknara til frekari með-
höndlunar.
-GK
Yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar
Sýni tekin nokkmm
dögum eftir neyslu
eru marklaus
„Sem gagn í sakamáli myndi
sýni sem tekið er fjórum dögum
eftir að hugsanleg fíkniefnaneysla
hefur átt sér stað ekki duga til. Það
væri marklaust sýni,“ sagði Krist-
ján Ingi Kristjánsson, yfirmaður
fíkniefnadeildar lögreglunnar,
þegar MORGUNPÓSTURINN innti
hann eftir því hvort hugsanlega
væri hægt að notast við sýni sem
væri tekið úr líkama manns
nokkrum dögum eftir að grunur
léki á að fíkniefna hafi verið neytt.
Kristján sagði að leit, bæði af
áfengi og fíkniefnum, yrði að ger-
ast í rökréttu framhaldi af hand-
töku til þess að hægt væri að sanna
eða afsanna sekt viðkomandi.
„Við tökum ekki mikið af sýn-
um. Það er sjaldnast nema í alvar-
legri brotamálum, þar sem nauð-
synlega þarf að fá útskýringu á
hegðun fólks og/eða í þeim tilfell-
um þegar menn neita því að hafa
neytt áfengis- eða fíkniefna. Dæmi
um hið fyrrnefnda var einhverju
sinni þegar við lentum í miklum
slagsmálum við mann nokkurn
sem við vorum að handtaka á
Keflavíkurflugvelli í alvarlegu
brotamáli. Til þess að freista þess
að fá útskýringar á hegðun hans
létum við taka úr honum blóð.
Niðurstöður prófsins sýndu fram
á að maðurinn var uppfullur af
dópi.“ ■