Helgarpósturinn - 24.11.1994, Side 14

Helgarpósturinn - 24.11.1994, Side 14
14 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1994 Frjáls fjölmiðlun - útgefandi DV Losar sig við starfsmenn sem eru orðnir sjötugir Dagblaðið Vísir hefur tekið þá ákvörðun að láta það starfsfólk sem hef- ur náð sjötugsaldri fara ffá fyrirtækinu. Hörður Einarsson, framkvæmdastjóri blaðsins, segir að nokkur ár séu liðin síð- an þessi regla hafi verið samþykkt af stjórnendum fyrirtækisins en það sé fyrst núna sem hún komi til fram- kvæmda. Þeim starfsmönnum fyrirtæk- isins sem verða sjötugir á árinu eða eru eldri hefur verið gert að leggja niður störf sín eigi síðar en um næstu áramót. Hörður var spurður hver ástæðan væri fyrir þvi að gripið væri til þessara upp- sagna núna. „Það er ekkert nema regl- an,“ segir hann, „þetta fólk vildi fara að hætta þannig að þetta er allt gert í sam- komulagi við það.“ Hörður segir ekki koma til greina að leyfa viðkomandi starfsmönnum að vera áffam hjá fyrirtækinu og þetta verði fast ákvæði varðandi þá sem vinna fyrir DV í ffamtíðinni. Hann segir að ráðið verði affur í þau störf sem viðkomandi starfsmenn skilja eftir en margir þeirra hafa verið hjá fyrirtækinu um árabil. Ákvörðun um aðrar breytingar á starfs- mannahaldi DV hafa eklri verið teknar, að sögn Harðar, en orðrómur hefur ver- ið um að fyrirhugað sé að fækka próf- arkalesurum blaðsins. „Það hafa engar ákvarðanir verið teknar en hins vegar er það svona eilíft skoðunarmál,“ segir Hörður. „Við teljum að blaðamenn eigi í prinsippinu að kunna íslensku og geta skrifað hana. Þetta býður svolítið upp á kæruleysi blaðamanna. Við höfum nokkrum sinnum, og þar á meðal núna, verið að líta á það að breyta hjá okkur prófarkalestrinum.“ Þannig að það gæti orðið ofan á að fréttimar rúlli bara beint ígegn frá blaða- mönnunum? „Nei, ég segi það ekki. Það hefúr eng- in ákvörðun verið tekin um þetta.“ Hörður Einarsson, framkvaemda- stjóri DV, segir ekki koma til greina að leyfa starfsmönnum sem eru 70 ára eða eldri að starfa áfram hjá blaðinu. Ingólfur P. Steinsson, auglýsinga- stjóri DV, er einn af þeim sem verða látnifhætta um komandi áramót og var hann spurður hvort hann væri sáttur við þá ákvörðun. „Ég verð bara að hlíta þeim reglum sem eru í gildi,“ segir hann. „Það er búið að tala um þetta fyrr á ár- inu. Þetta er ekki bara að skella á núna.“ -LAE „roastbeef" folaldalundir, kjúklingur. Heimildir: Manneldisráð (slands: Könnun á mataræöi Islendinga 1990; Guðjón Þorkelsson, matvælafræðingur RALA; Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins. VERÐLAIIM- GETRA€l\ SEM MATER ER Í! 50 körfur fullar af í§lensku hatiöarkjöti Urbeinað hangikjötslæn, hamborgar- hryggur, Taktu bœkling í nœstu verslun! Islenskt kjöt það jafnast ekkert á við það! Hvað gerir íslenska kjwtið svo einstakt? Anægjuleg þrótin í kjötborðinu — styttri matreiðslutúni Það hafa orðið miklar framfarir á síðustu árum í meðferð kjötvöru eftir slátrun. Kjötiðn- aðarmenn og kaupmenn hafa lagt metnað sinn í að tilreiða kjötið á þann hátt að það fullnægi kröfum allra neytenda. T.d. er hægt að fá kjötið lengra unnið en áður og stytta þannig matreiðslutímann, kjötið látið meyrna eftir óskum hvers og eins o.s.frv. Nú skipta vörutegundirnar sem unnar eru úr íslensku kjöti hundruðum og matreiðsluaðferðirnar eru óteljandi. Það jafnast ekkert á við íslenskt kjöt. Hreinl og bragðgolt Hreinleiki náttúrunnar, strangt eftirlit með lyfjagjöf, bann við notkun vaxtarhormóna, fátíðir dýrasjúkdómar og betri umhirða en tíðkast erlendis skapar íslenska kjötinu af- dráttarlausa sérstöðu sem skilar sér í hinu séríslenska, ljúffenga bragði. III' ÍSLENSKUR LANDBUNAÐUR Lífsnauðsynleg næringarefni í þessari töflu sést hve stóran hluta helstu næringarefna, vítamína og steinefna Islendingar fá árlega úr kjöti. Þúgerir góðKanp kftm— Stórfelld verólækkun Þú gerir svo sannarlega góð kaup í kjöti Þegar lögð eru saman bragðgæði og næringar- gildi er deginum ljósara að menn eru að fá mikið fyrir peninginn þegar íslenskt kjöt er annars vegar - og alltaf meira og meira því verðþróun síðustu ára hefur verið neytendum mjög í hag. 100 mmmm Ungnautakjöt (UNI) 40,5% verðlækkun mmmm Lambakjöt (DIA) 13,7% verðlækkun mmmm Kjúklingakjöt 22,3% verðlækkun ■ ■ ■ ■ Svínakjöt 39,8% verðlækkun "**'***“ Hrossakjöt 24,0% verðlækkun Þetta línurit segir allt sem segja þarf um þá verðlækkun á helstu kjöttegundum sem bændur hafa staðið fyrir frá árinu 1989 (miðað er við fast verðlag). Einnig hefur verð- lækkun kaupmanna í harðri samkeppni komið neytendum til góða. ■ Öllum sagt upp hjú Kvennaathvarfinu ■ Bjór með keilunni ■ Spilaflóð frá Iðunni fyrir jólin ■ Hans kominn í veitingarekstur ■ Kvennabylting í Framsókn híýtt íslenskt leikrit, Framtíðardraugar, eftir ÞOr Tulinius verður sett upp í Borgarleikhúsinu í byrjun febrúar. Þór mun sjálfúr leikstýra verkinu og hófust æfingar fyrir helgi. Sex leikarar sem all- ir fara með nokkuð stór hlutverk í verkinu hafa þegar verið valdir, en það eru þau Jóhanna Jónas, árni Pétur Guðjónsson, Guðrún ásmundsdóttir, ElLERT iNGIMUNDARSON Og Björn Ingi Hilmarsson og ný í Borgarleilchúsinu verður Sóley ElIasdóttir en hún hefur verið að syngja og leika í hlíðinni lagði fr am beiðni um vínveitingaleyfi fýrr á árinu. Félagsmálaráð lagðist gegn því og þá nið- urstöðu hefúr borgarráð nú fallist á. Keilarar fá þvi ekld að sötra bjór í Öskju- hlíðinni á næstunni... VJera má ráð fyrir nokk- urri kvennabyltingu á flokksþingi Framsóknar- manna sem hefst á morg- un. Gert er ráð fyrir því að þeir Halldór ÁsgrImsson og Guðmundur Bjarna- son verði kosnir formenn og varaformenn en konur sækja eftir hinum störf- unum í aðalstjórn, það er að segja ritara og gjald- kerastarfi. Ingibjörg Pálmadóttir alþingis- maður mun líldega bjóða sig fr am í stöðu ritara og þar gæti hún lent í glímu VÍð SlGRÚNU MAGNÚS- dóttur borgarstjórnar- fúlltrúa. Þá mun Unnur Stefánsdóttir, sem nú sækist eftir 2. sæti á Reykjanesi, vera að hugsa um að gefa kost á sér í gjaldkerastarfið en Finn- ur Ingólfsson, nýkjörinn þingflokksformaður, hef- ur gegnt þvi starfi til þessa. Þessi fjögur störf mynda framkvæmda- stjóm flokksins ásamt formanni þingflokks, for- manni ungliðahreyfingar- innar og kvenna- hreyfing- { Stjórn Samtaka um kvennaathvarf verða með blaðamannafund í dag um endurskipulagningu á rekstri Kvennaathvarfsins og fjármál Sam- taka um kvennaathvarf. Sem kunn- ugt er hafa verið mikil átök þar inn- anhúss vegna fjármálaóreiðu sem nýlega var sagt frá. Nú er búið að segja öllum starfsmönnum Kvenna- athvarfsins upp vegna endurskipu- lagningar, eins og þeim var sagt þegar uppsögn- in var kynnt... Eins og MORGUNPÓSTURINN greindi frá fyrir skömmu þá hefur Hans Guðmundsson, handknatt- leikshetja og fyrrum lögregluþjónn, snúið sér að veitingarekstri. Á laug- ardaginn opnar staðurinn hans í nýja miðbænum og heitir hann Boginn. Þar er fyrirhugað að hafa alhliða veitingahús á daginn en vera í fínni kantinum á kvöldin. Mark- hópurinn er því varla lögregluþjón- ar né handboltamenn - eða hvað? Meðeigendur Hans eru Unndís Ól- AFSDÓTTIR, GUÐBERGUR MÁR GuÐ- MUNDSSON Og SlGRÚN BRYNDlS HaNS- DÓTTIR... Jón Karlsson og hans menn hjá Iðunni munu leggja mikið upp úr spilum alls kyns fyrir þessi jól en færri bækur koma út í desember frá Iðunni en oftast áður. Rúsínan í pylsuendanum er að koma út um þessar mundir en um er að ræða mikið spunaspil eða hlutverkaleik sem byggir á fornsögunum og gerist í Goðheimum. Það eru tveir ungir bræður, 21 árs og 26 ára á Austur- landi, þeir Rúnar Þór og Jón Helgi Þórarinssynir sem hafa unnið að þessu verkefni í þrjú ár. Hér er um gríðarlega þróað spil að ræða, eitt fullkomnasta sinnar tegundar í heiminum, og sem dæmi þá sam- svarar textinn sem fylgir spilinu sex hundruð síðna bók. Þetta spil mun kosta á bilinu 4-5.000 kall... F élag einstæðra foreldra verður 25 ára næstkomandi sunnudag. 1 til- efni þess verður haldið lokað af- mælishóf í Risinu við Hverfisgötu. Forseti íslands VigdIs Finnboga- dóttir, sem er einstæð móðir eins og kunnugt er, mun heiðra félagið með nærveru sinni í afmælishófinu og flytja ávarp ásamt fleiri gestum. Heiðursfélagar verða einnig út- nefndir við sama tækifæri...

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.