Helgarpósturinn - 24.11.1994, Síða 24
24
MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1994
„Ég er myndarlegur maður, eld-
hress um fertugt og mig langar í
œvintýri. Efþú ert myttdarlegur og
ekki mikið eldri en 21 árs, ýttu þá
endilega á 1.“
„Ég er tceplega fertugur karlmaður sem hefáhuga
á að kynnast hjónum eða pari með vináttu og
skemmtilega tilbreytingu í huga. Ég erþokkalega
útlítandi ogþokkalega vel vaxinn. Einnig hef ég
önnur áhugamál. Vinsamlega ýtið á 1. Fullum
trúnaði heitið. Takkfyrir.“
Það er beðið eftir þér á Stefnumótalínunni Aðeins 39,90 mínútan
farið í leikhús
með
Hallgrími'
Trítiltoppur
Möguleikhúsið sló rækilega í gegn í
vor með umferðarálfinn Mókoll þar
sem bróðir minn Gunnar fór á kostum.
Nú á sunnudaginn frumsýnir leikhúsið
nýtt barnaleikrit eftir Pétur Eggerz
sem jafnframt leikstýrir stykk-
inu.Trítiltoppur er tröllastrákur sem
býr í tröllahelli uppi í fjöllum og fréttir
af því að jólin séu að koma til manna-
byggða. Hann veit ekkert hvernig þau
eru og verður forvitinn, langar til að sjá
hvernig þau líta út og heitir því að ná í
þau og færa heim í hellinn. Leitin geng-
ur þó ekki auðveldlega, en á leiðinni
hittir hann álfakóng og þarf að berjast
við dverga og þiggur gistingu hjá Grýlu
og Leppalúða. Að lokum hjálpar Gátta-
þefur honum að finna jólin.
Umfangsmesta verkefni Möguleik-
hússins til þessa og verður ein-
göngu sýnt í húsnæði þess við
Hlemm. Sýnt á virkum dögum ki.
10.00 og 14.00 og á sunnudögum
kl. 14.00 og 16.00.
Frumsýning sunnudag ki. 16.00.
Forsýningar á föstudag kl. 10.00 og
14.00 og sunnudag kl. 14.00.
Fimirttudagur
Gauragangur Uppselt að sjálf-
sögðu Þjóðleikhúsið kl.20.00
Jörfagleði Ve! heppnað
dansleikhús Síðustu sýningar Borg-
arleikhúsið kl. 20.00
Ófælna stúlkan ★★ Vel leikið en
verkið gæti verið betra Borgarleik-
húsið, Litla sviðið kl. 20.00
Hugleikur, Hafnsögubrot ★★★
Yndislegt áhugaleikhús Kaffileikhúsið
i Hlaðvarpanum kl. 21.00 Maturkl.
19.00
Föstudagur
Vald örlaganna ★★★★ (Jónas Sen
(og hann ætti nú að hafa vit á þvi))
Þjóðteikhúsið kl. 20.00
Dóttir Lúsífers ★★★★ Þjóðleik-
húsið, Litla sviðið kl. 20.30
Sannar sögur af sálarlífi systra
Guðbergur loksins á sviði Þjóðleik-
húsið, Smiðaverkstæði kl. 20.00
Hvað um Leonardo? ★★ Borgar-
leikhúsið kl. 20.00
Óskin (Galdra-Loftur) ★★★★
Borgarteikhúsið, Litla sviðið kl. 20.00
Hárið ★★★★ Óperunni kl. 24.00
BarPar Síðustu sýningará vinsæt-
asta verki norðan heiða ever LA
Þorpinu kl. 20.30
Kirsuberjagarðurinn ★★★★ Frú
Emilía Leikhús kl.20.00
Eitthvað ósagt Kaffileikhúsið í
Hlaðvarpanum kl.21.00
Laugardagur
Gaukshreiðrið Þjóðleikh. kl. 20.00
Dóttir Lúsifers ★★★★ Þjóðleik-
húsið, Litla sviðið kl. 20.30
Sannar sögur af sálarlífi systra
Þjóðleikhúsið Smíðav.kl. 20.00
Leynimelur 13 Hvað erbetra en
laugardagskvöld á þvíheimili? Borg-
arleikhúsið kl. 20.00
Óskin ★★★★ Borgarleikhúsið, Litla
sviðið kl. 20.00
Hárið ★★★★ Islensku óperunni kl.
20.00 og 23.00
Við bíðum eftir Godot Leikfélag
Selfoss kl. 16.00
BarPar 70. sýning Þorpinu kl. 20.30
Hugleikur Hafnsögubrot ★★★
Kaffileikhúsið kl. 21.00
Sunnudagur
Tritiltoppur Möguleikhúsið við
Hlemm frumsýning kl. 16.00
Vald örlaganna ★★★★ Þjóðleik-
húsið kl. 20.00
Ófælna stúlkan ★★ Borgarleikhús-
ið, Litla sviðið kl. 20.00
Við bíðum eftir Godot Leikfélag
Selfoss kl.20.30
Kirsuberjagarðurinn ★★★★ Frú
Emilía Leikhús kl. 20.00
Sápa eftir Auði Haralds Kaffileikhús-
ið í Hlaðvarpanum kl. 21.00
Bubbi Morthens og fleira frægt fólk hefur
Hrækl 09 sparicao
í lögguna, farið úr
axlariið og vorið
lamið í hausinn
/ kjölfarmáls Lindu
Pétursdótturog
löggunnar hefur
vaknað upp sú
spuming hvort
þekktu andlitin fái
sérstaka meðferð hjá
lögreglunni. Guðrún
Kristjánsdóttir ræddi
við nokkra uppreisn-
arseggi sem eðli
málsins samkvæmt
eru flestir „góðkunn-
ingjari‘ lögreglunnar.
Ekki benda á mig,
segir varðstjórinn...
Bubbi Morthens var einn af
„góðkunningjum“ lögreglunnar á
sínum yngri árum. Það var ekki að
ástæðulausu að hann samdi á sín-
um tíma textann Ekki benda á mig,
segir varðstjórinn...., en það er
önnur saga. Bubbi viðurkennir all-
tént að hann hafi verið mikið á
milli handanna á lögreglunni, eink-
anlega áður en hann varð frægur.
„Ég reyndi oft að berja lögreglu-
þjón en mér lærðist fljótt að maður
lemur ekki lögregluþjón. Ég lærði
af mistökum. Sannleikurinn er sá
að upp til hópa eru þetta frábærtr
náungar. Án þess að ég geti nefnt
nein nöfn var í mesta lagi einn lög-
regluþjónn þekktur fyrir léttan sad-
isma á þeim tíma sem ég
hafði hvað mest samskipti
við lögregluna.
Eftir að ég varð frægur af
endenum hafði ég svo mikið
saman við fíkniefnalögegl-
una að sælda, en það var á
þeim tíma þegar ég var í Ut-
angarðsmönnum og Eg-
óinu. Þeir beittu aldrei of-
beldi í fíkniefnalögreglunni
enda þurftu þeir þess ekki.
Það hefur kannski með það
að gera að vinnubrögð fíkni-
efnalögreglunnar eru öðru-
vísi en almennu lögreglunn-
ar. Eftir stendur að ég hef persónu-
lega ekkert nema gott um lögregl-
una að segja.“
Bubbi segir það liggja í augum
uppi að sé rnaður í haldi lögreglu-
manns eða -manna og berjist mað-
ur um á hæl og hnakka eins og
„geðveikur“ maður séu mjög mikl-
ar líkur á að maður skaði sig vegna
átaka. „Lögreglan hefur aldrei
skaðað mig. Ég hef einfaldlega
meitt sjálfan mig með látunum í
sjálfum mér. Eitt sinn þegar löggan
þurfti að taka mig löggutaki, það er,
að koma höndunum á mér aftur
fyrir bak af því ég hafði einmitt ver-
ið að hrækja og sparka í þá, fór ég
úr axlarlið. Það var einfaldlega af
því ég var að stympast sjálfur. Það
hvarflaði aldrei að mér að kæra
enda slíkt dauðadæmt frá upphafi.
Ég hef lent í ýmsu veseni í gegnum
tíðina og tel mig hafa ágæta yfirsýn
yfir vinnubrögð lögreglunnar, en
ég hef aldrei lent á lögregluþjóni
sem hefur beitt mig ofbeldi af fyrra
bragði, aldrei,“ ítrekar hann.
Er þetta þá stofnun setn maður á
að bera virðingu fyrir?
„Já, alveg tvímælalaust. Ég kýs
frekar að vera í þjóðfélagi með ein-
hverjum þúsundum lögregluþjóna
með einn, tvo eða jafnvel fimm
aula innanborðs en án þess. Svo er
nú lögreglan í afskaplega vondri
aðstöðu. Það er í raun mjög auðvelt
að klína á þá einhverju og að setja
þetta þannig upp að þeir séu vondu
karlanir.“
Ungu löggurnar kurt-
eisari, segir þekktasti
umbi lanasins
Þorsteinn Kragh sem hefur ver-
ið umboðsmaður ýmissa hljóm-
sveita í gegnum tíðina, þar á meðal
Jet Black Joe þegar Isafjarðarslags-
málin margfrægu dundu yfir fyrir
réttum tveimur árum, tekur undir
það með Bubba að lögreglan beiti
ekki ofbeldi að fyrra bragði. „Það
var ekki ofbeldi upp á þá að klaga
Bubbi Morthens Hann segirþað liggja í augum
uppi að sé maður í haldi lögreglumanns eða -manna
og berjist maður um á hcel og hnakka eins og„geð-
veikur“ maður séu mjög miklar líkur á að maður
skaði sig vegna eigin láta.
þarna fyrir vestan. En eins og kom-
ið hefur fram er ég ekki sáttur við
afgreiðslu mála þeirra þar.“
Þorsteinn segir viðskipti sín við
lögregluna á sveitaböllum hafa
breyst töluvert til batnaðar í áranna
rás. „Ungu guttarnir í lögreglunni
fxnnst mér miklu kurteisari en þess-
ir eldri og jafnframt kunna þeir
miklu meira fyrir sér í sálfræði.
Þessi lögregluskóli þeirra er greini-
lega topphlutur. Þarna eru þeim
greinilega kennd lög og meðferð
þeirra.“
Áttu við að löggan hafi verið of-
beldisfyllri í eina tíð?
„Ég held að það skýrist fremur i
því að áður þurfti að taka á meiri
rustamönnum. Þá dugðu sko engin
önnur vettlingatök. Af því sem ég
hef horft upp á er ofbeldi það síða-
Þorsteinn Kragh „Satt best að segja hefég aldrei
séð lögreglu reiða kylfu til höggs, jafnvelþótt geðveik
hópslagsmál séu í gangi meðfljúgandi flöskum og öðr-
um djölfagangi. “
asta sem löggan grípur til. Það er al-
gjört neyðarúrræði. Þeir grípa að-
eins til slíks sé þeim ógnað, eða ef
þeir lenda í þeirri aðstöðu að það er
ráðist á þá. Ég hef aldrei séð lögg-
una hefja ofbeldi. Satt best að segja
hef ég aldrei séð lögreglu reiða
kylfu til höggs, jafnvel þótt geðveik
hópslagsmál séu í gangi með fljúg-
andi flöskum og öðrum djölfa-
gangi. Tímarnir eru eins og ég segi
breyttir til hins betra. Hins vegar
myndi ég aldrei snýta mér niður á
lögreglustöð án þess að hafa lög-
fræðing mér við hlið. Ég álít engu
að síður orðið meira vit á þessu öllu
á báða bóga.“
Keyrður í klessu
;yr
af löggunni
Þrátt fyrir langan feril í návist
Bakkusar og jafnframt lögreglunn-
ar, sem fylgt hafa ferðalögum hans
hring eftir hring um landið, segist
sveitaballasöngvari íslands númer
eitt, Helgi Björns, vart reka minni
til þess á ferðum sínum að hafi
þurft að koma til kasta lögreglunn-
ar.
„I eina skiptið sem ég man eftir
því að löggan hafi þurft að grípa til
einhverra aðgerða var einhvern
tíma þegar við í SSSól vorum búnir
að spila vel fram yfir leyfilegan
tíma, þá á ég við vel,“ segir hann
áhersluþrunginni röddu. Helgi seg-
ir að löggan hafi myndað taum við
sviðið og rutt fólkinu út. „Það var
engum meint af enda engu ofbeldi
beitt. Svo er ég nú sjálfur svo dip-
lómatískur að eðlisfari. Samskipti
ntín við lögregiuna hafa eingöngu
verið á góðu nótunum. Ég hef satt
að segja aldrei orðið var við lög-
regluofbeldi í kringum mig. Hins
vegar var ég einu sinni keyrður í
klessu af löggunni."
Því lýsir Helgi frekar, en í kjölfar-
ið var löggan sem ók bílnum sett af.
„Þessi atburður átti sér stað fyrir
mörgum árum þegar ég ásamt
Pétri Hjaltested vorum að aka bíl
löðurhægt niður Frakkastíginn. Öf-
ugt við það sem er í dag var ein-
stefnan frá Frakkastíg niður á
Snorrabraut. Þar kemur allt í einu
lögreglubíll á 100 kílómetra hraða
með blikkandi ljós en án sírenu.
Hornið þarna er þröngt þannig að
við sáum ekki neitt. Áður en varði
var lögreglubíllinn kominn inn í
bílinn sem við vorum á. Það mátti