Helgarpósturinn - 24.11.1994, Blaðsíða 32
Jóhanna
hiindskammaði
Ólaf úti á götu
Um miðjan dag í gær stóðu Jó-
hanna Sigurðardóttir og Ólafur
Ragnar Grímsson á tröppum
næsta húss vestan við Alþingis-
húsið í Kirkjustræti og hnakkrif-
ust. Blaðamaður MORGUN-
PÓSTSINS varð vitni að þessari
upákomu þegar hann átti leið
framhjá í bíl og fleiri vegfarendur
mun hafa rekið í rogastans. Svo
virðist sem þeim hafi verið svo
heitt í hamsi að _
ekkert láta hafa I
borið undir hana. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum úr
hennar röðum var umræðuefnið
yfirlýsingar Ólafs í MORGUN-
PÓSTINUM síðasta mánudag þeg-
ar hann vændi Jóhönnu um óheil-
indi og baktjaldamakk. Jóhanna
mun hafa hundskammað Ólaf fyr-
ir að ráðast á hana í fjölmiðlum
með þeim afleiðingum að sam-
starf hreyfingarinnar í kringum
hana og Alþýðubandalagsins sé
ekki lengur inni í kortunum. -SG
Blautasta
veisla ársins
Magnús Scheving, Evrópumeistari í þolfimi, hélt upp á þrítugsafmælið sitt með
mikilli viðhöfn í gærkvöld. Hann ákvað að fara ekki troðnar slóðir þegar hann valdi
staðinn fyrir teitið sem fór fram í Sundhöll Reykjavíkur. Laugarbakkarnir voru
troðnir og máttu gestir þakka fyrir
að lenda ekki í lauginni. öll um-
gjörðin tók mið af hinu villta
skemmtanalífi þriðja áratugarins.
Þjónustustúlkurnar klæddust sund-
fatnaði samkvæmt hefð þess tíma.
Veisluborðið var á brú sem náði
þvert yfir laug-
ina. í grunna
hlutanum flaut
fjöldi kerta sem
gaf dulmagnaða
lýsingu ásamt
kösturum sem
froskmenn syntu
með í djúpu laug-
inni. Heyra mátti
á gestum að þeir
hefðu sjaldan
verið í jafnglæsi-
legri veislu sem
þessari. Gleð-
skapurinn stóð enn yfir þegar blaðið
fór í prentun seint í gærkvöld.
Unaðslega kúltiverað
Þór Eldon sem af óvönduðum mönnum hefur verið kallaður
„gítardvergurinn" og Dr. Gunni, yfirþurs í undirheimatónlistinni, skipa
hljómsveitina Unun. Þeir ásamt nýjum hljómsveitarmeðlimi sem heitir
Heiða Eiriksdóttir — en hún hefur meðal annars spilað rokk í Frakklandi
héldu upp á það í gærkvöld í koníaksstofunni á Kaffi Reykjavík að
plata þeirra „Æ“ var að koma út. í koníaksstofuna komu saman
sem hafa skipað framvarðasveit íslenskrar dægurtón
listar eins og til dæmis María Baldursdóttir og
maður hennar, Rúnar Júlíusson sem söng
fýrir Unun í sumar hið feikivinsæla lag:
„Ég mun aldrei gleym’henni“. íyÆ
hefur fengið góða dóma en um-
mæli hljómsveitarmeðlim-
anna sjálfra lýsa henni ef til
vill best en þau segja að
hún hljómi líkt og „vin-
sældarlisti útvarpsstöðvar
sem á aðeins eina plötu,
það er að segja plötuna „Æ"
með Unun.
MYNWR/BB
Síðastliðið sunnudags-
kvöld var nýr íslenskur
hönnuður dreginn fram í
dagsljósið á Sólon ísland-
us. Sigríður Sunneva heitir
hún. Þegar betur er að gáð
er ekki um algjöran nýrgræð-
ing að ræða. Því að námi loknu
í Flórens á Ítalíu fór Sigríður til
Toscana-héraðs þar sem hún starf-
aði um skeið hjá Dibi og Mibet sem
teljast meðal fremstu mokkahönnuða í
heiminum í dag. Þeir framleiða meðal ann-
ars mokkafatnað fyrir Fendi og Hugo Boss.
En Sigríður starfar meðal annars að hönnun
mokkalínunnar fyrir Hugo Boss. Mynd BB
Veðrið um helqina
Veðurhorfur næsta sólarhring:
Suðvestan eða sunnanátt. Kaldi
eða stinningskaldi. Dálítil súld á
suðvestur og Vesturlandi, en úr-
komulaust annars staðar.
Horfur á föstudag: Nokkuð hvöss
suðvestlæg átt. Rigning eða súld
sunnan lands og vestan en skýjað
með köflum norðaustan lands. Hiti
3 til 9 stig, hlýjast norðaustan til.
Horfur á laugardag: Hvöss suð-
austanátt um allt land. Hiti 6 til 11
stig.
Horfur á sunnudag: Nokkuð
ákveðin suðvestanátt. Skúrir sunn-
an lands og vestan en skýjað með
köflum norðaustan til. Hiti 1 til 4
stig.
A Hemmi Gunn
aðhœtta?
Greiddu
atkvæði
39,90 krónur mínútan
Það er einfalt að taka þátt. Þú hringir í síma 99 15 16, hlustar á
spurninguna og greiðir síðan atkvæði með því að ýta á 1 eða 2 á
símtækinu þínu. A sunnudaginn verður síðan talið upp úr Kjörkass-
anum og niðurstöðurnar birtar í mánudagsblaði MORGUNPÓSTSINS.
Leikhús Kaffileikhúsið í Hlað-
varpanum er í mikiiti uppsveiflu.
Meira að segja Jón Viðar
skemmtir sér. Sápa eftir Auði
Haralds, Eitthvað ósagt eftir sjálf-
an Tenneesee Williams og
Brynja og Erlingur - - og Stein-
unn hans Bubba kokkar ofan í
mannskapinn. Hvað viltu hafa
það betra?
Myndlist Daní-
el Þorkell sjálfur
er einhver alflott-
asti myndlistar-
maður sem við
eigum. Sýningin
hans á Sólon ís-
landus er umdeild
en vert að fylgjast
með verkum
þessa hávaxna og
frumlega náunga.
Popp Þeir sem hafa áhuga á
neðanjarðartónlist ættu að fara
upp í Breiðholt á föstudags-
kvöldið, finna Sundlaugina og
fara undir hana og þar eru þau -
þessi sem spila skrýtnu tónlist-
ina.
Klassík Þeir sem hafa farið of
bratt í helgina og þurfa eitthvað
til að peppa sig upp ættu að
huga að rífandi fjöri hjá Blásarak-
vintett Reykjavíkur í Listasafni
Kópavogs.
Bíó Pulp Fiction í Regnbogan-
um. Snillingurinn Travolta fær
uppreisn æru. Aðdáendur hans
kætast og
þeir sem
voru of \
merkilegir
með sig til
að sjá í
réttu Ijósi
fram I a g
hans til
menning-
arsögunnar í myndunum Grease
og Saturday Night Fever sjá að
sér.
Sjónvarp Það er bara um eitt
að ræða. Allt eins og Baldur Her-
manns er Baldur Baldur inn-
lendrar dagskrárgerðar þá er
Clint Eastwood Clint Clint á gló-
balkvarða. Unforgiven, laugar-
dagskvöld á Stöð 2.
r v
Hlustum
allan
sólarhringinn
2 1900