Helgarpósturinn - 29.12.1994, Blaðsíða 6
6
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994
Emiliana Torrini er Ungmenni ársins
Hárið er minnisstæðast
Aðeins 17 ára gömul er Emiliana
Torrini orðin ein vinsælasta söng-
kona landsins og auk þess að hafa
gert það gott með hljómsveitinni
Spoon leikur hún í söngleiknum
Hárinu sem hefúr gert það gott á
árinu. Hún þykir hafa sérstaka og
fallega söngrödd og túlkun hennar
á þeirn lögum sem hún flytur með
hljómsveitinni Spoon stendur öllu
öðru framar á geisladisk hljóm-
sveitarinnar. „Hitt fær svona meira
að fljóta með uppá grín,“ svo vitn-
að sé í álit gagnrýnanda MORGUN-
PÓSTSINS.
Hvað erþér minnistœðast á árinu?
„Hárið. Það var svo gaman að
vera með í svona skemmtilegum
hópi.
Og svo er það bara svo margt.
Útgáfutónleikarnir þegar diskurinn
kom út voru ofboðslega skemmti-
legir og þetta var alveg ný reynsla
fyrir mig. Velgengni okkar í Spoon
kom mér líka mjög mikið á óvart,
ég bjóst alls ekki við þessu.“
Hvernig leggst nýja árið í þig?
„Mjög vel, bara ágætlega."
Er eitthvað sérstakt á döfinni hjá
þér?
„Nei, nei, bara að halda áfram að
syngja."
Ætlarðu að leggja sönginn fyrir
þ‘g?
„Það er aldrei að vita og verður
bara að koma í ljós.“
Þú hefur ekki í hyggju að snúa þér
að leiklistinni t framtíðinni?
„Nei, ekki eftir reynsluna úr Hár-
inu.“
Gekk þér ekki vel?
„Nei, ég get ekki sagt að mér hafi
gengið vel að leika. En það var bara
svo gaman.“
Þú hefur verið valin ungmenni
ársins á MORGUNPÓSTINUM. Hvern-
ig líst þér á það?
„Jú, jú, fínt, mjög gaman. Ég lít
góðum augum á það,“ og Emiliana
flýtti sér að ljúka símtalinu þar sem
hún var um það bil að fara að stíga
á svið í söngleiknum Hárinu.
-ÞKÁ
Benedikt Sveinsson er Viðskiptamaður ársins
Það er hörkufólk að berjast
í þessu
Fyrir skömmu brutu Islenskar
sjávarafurðir upp hefð sem hefur
lengi verið í gildi milli fýrirtækisins
og Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna. Með því að kaupa Vinnslu-
stöðina í Vestmannaeyjum sem er
gamalt SH-fýrirtæki var langt tíma-
bil stöðnunar rofið. Benedikt
Sveinsson hefur verið fram-
kvæmdastjóri Islenskra sjávaraf-
urða frá árinu 1990 og í stjórnartíð
hans hefur fýrirtækinu vaxið fiskur
um hrygg. Benedikt, sem er fýrr-
verandi sjómaður og frystihúsa-
starfsmaður, byrjaði 8 ára gamall að
vinna á síldarplaninu hjá Alla ríka
og er nú 43 ára gamall forstjóri næst
stærsta sjávarútvegsfýrirtækis
landsins.
Benedikt var spurður hvað væri í
hans augum merkilegasti áfangi á
árinu sem er að líða.
„Mér er persónulega minnisst-
æðast að hafa unnið að þessu Vest-
mannaeyjamáli en það sem er
kannski merkilegast við þetta allt
saman er að sjávarútvegurinn skuli
hafa komist í gegnum erfiðleikana
sem blöstu við með enn meiri nið-
urskurði á kvóta. Þetta var erfitt ár
og það er merkilegt að sjávarútveg-
urinn skuli vera í jafn góðum mál-
um og raun ber vitni.“
Voruð þið ekki að brjóta gamla
hefð með kaupum á jafn grónu SH-
Jón Karl Fr. Geirsson er Vísindamaður ársins
fyrirtœki og Vinnslustöðinni?
„Fyrirtækið hafði hvorki verið
keypt né selt áður og að því leyti
vorum við að brjóta hefð. Annars
vorum við bara að gera góð við-
skipti.“
Horfurnar eru slæmar
Hvernig horfa sjávarútvegsmálin
við á nýja árinu?
„Horfurnar eru slæmar því að
enn þarf að skera niður kvóta og
það hefur verið erfitt að nýta aðrar
fiskitegundir til jafns við þorskinn
til að mæta þessum þrengingum.
Björgvin Gíslason er
Mannréttindabaráttumaður ársins
Fordómunum
mun linna
En ef okkur tekst að vinna jafn
skynsamlega úr stöðunni og hingað
til er ég bjartsýnn á nýja árið.
Væntanlega tekst þetta því að það
erJiörkufólk að berjast í þessu.“
Þú hefur verið valinn Viðskipta-
maður ársins. Hvernig líst þér á það?
„Það er óvæntur heiður því að ég
er nýkominn af samkomu þar sem
Sighvatur Bjarnason í Vestmann-
aeyjum var valinn viðskiptafröm-
uður ársins. Það virðist sem Vest-
mannaeyjar séu ofarlega í hugum
fólks,“ sagði Benedikt Sveinsson að
lokum. -ÞKÁ
Alnæmissamtökin voru stofnuð
árið 1988 en Björgvin Gíslason var
kjörinn í stjórn samtakanna í fýrra
og formaður þeirra í ár. Björgvin
greindist HlV-jákvæður árið 1986
en fór að tala opinberlega um sjúk-
dóminn fyrir tveimur árum.
„Það sem setti mestan svip á
þetta ár hjá okkur var að við feng-
um framtíðarhúsnæði fyrir starf-
semina og tekin var ákvörðun um
að opna þar og reka athvarf fyrir
HlV-jákvætt fólk,“ segir Björgvin.
„Sú athygli sem þetta málefni fékk í
fjölmiðlum og sá hljómgrunnur
sem það fékk meðal fólks er mér
einnig ofarlega í huga þegar ég lít til
baka. Umræðan hefur verið stöðug
og sterk og það er mér eftirminni-
legast.
Ef ég lít fram á veginn þá er stað-
reyndin sú varðandi alnæmi að
engin lækning er í sjónmáli. Samt
Bíður eftir niðurstöðum
frá Krabbameinstofiiun Bandaríkjanna
sem áður er hægt að vera bjartsýnn
á að læknavísindin veiti fólki auð-
veldara að takast á við sýkingar sem
það þjáist af. Þessi sjúkdómur er í
raun og veru samansafn sýkinga
sem koma vegna þess að ónæmis-
kerfið bilar og framfarirnar felast í
betri árangri í að takast á við þær.
Ég held að fordómum gegn alnæm-
issjúklingum linni þegar fólk gerir
sér grein fýrir að þetta er ekkert
einkamál neinna ákveðinna aðila
heldur einfaldlega banvæn veiru-
sýking. Þótt það sé kannski fríkað
að segja það að þá reikna ég með að
viðhorfið gegn alnæmi breytist þeg-
ar „venjulegt" heterósexúal fólk fer
að veikjast í auknum mæli og sjúk-
dómurinn að teygja sig meira út
fyrir raðir samkynhneigðra karl-
manna og eiturlyíjaneytenda.
Varðandi samtökin sjálf vona ég
að næsta ár færi okkur það að við
getum komið þessu athvarfi sem
við vorum að stofna í fullan rekstur
og að við getum veitt HlV-jákvæð-
um raunhæfa aðstoð og aukið bar-
áttuþrek og styrk þeirra.“
Jón K. F. Geirsson, efnafræðing-
ur og dósent við Háskóla Islands,
gerði þetta árið merkilega uppgötv-
un sem gæti hugsanlega leitt til
straumhvarfa í krabbameinsrann-
sóknum en hann hefur ásamt nem-
endum sínum í efnafræði við Há-
skóla Islands unnið að þróun þess-
arar hugmyndar.
Vísindamenn um allan heim
hafa unnið að þvi að reyna að búa
til efnið Taxól en það er mest lof-
andi krabbameinslyf sem komið
hefur upp á seinni árum en um leið
mjög eitrað og með miklar auka-
verkanir. Taxól er fjórhringja sam-
eind með hliðarkeðjum og þar sem
nýjustu rannsóknir benda til að
virka efnið sé í hliðarkeðjunum,
þróaði Jón tvenns konar aðferðir,
annars vegar bjó hann til nýja sam-
eind sem hægt er smíða og hengja
hliðarkeðjur Taxóls á. Hins vegar
breytti hann nýja efnasambandinu í
fjórhringja sameind Taxóls.
Bréf frá Krabba-
meinsstofnun
Hver er minnisstœðasti atburður-
inn?
„Það hefur verið þegar Krabba-
meinsstofnun Bandaríkjanna sendi
okkur bréf þar sem hún bað um að
fá að framkvæma prófanir á þess-
um efnasamböndum sem við höf-
um verið að búa til,“ sagði Jón.
„Þetta eru mjög umfangsmiklar og
tímafrekar mælingar og það var
upplífgandi að þeir skyldu sýna
þessu áhuga eftir að hafa lesið það
sem við höfum látið frá okkur fara
um þetta í erlend fagtímarit. Nið-
urstöður hluta þessara rannsókna
koma fljótlega í Ijós og ég tel líklegt
að þær verði jákvæðar. Þetta er
kannski ekki besta efnið en það er
vonandi að einhverju leyti virkt og
gæti gefið hugmynd um hvernig
væri hægt að vinna þetta áfram. Við
höldum síðan áfram okkar vinnu
hérna heima og fengum til þess
styrk úr Vísindasjóði um svipað
leyti og okkur barst erindið frá
Krabbameinstofnuninni í Wash-
ington.“
Nýsköpun sem
byggir á þekkingu
Eru íslenskir vísindamenn að
scekja í sig veðrið?
„Það hefur háð íslenskum rann-
sóknum að erfitt hefur verið að fá
íjármagn til grunnrannsókna en
skilningur á því að nauðsynlegt sé
að afla grunnþekkingar hefur ekki
að öllu leyti verið til staðar og að-
staða er ekki nægilega góð. Grunn-
rannsóknir geta leitt menn niður á
hugmyndir sem fá athygli erlendra
aðila líkt og gerðist í okkar tilfelli og
hjá erlendum rannsóknarstofnun-
um er bæði fjármagn og aðstaða.“
En ferð þú ekki að starfa erlendis
ef nýja árið skilar jákvœðri niður-
stöðu úrþessum rannsóknum?
„Nei ég mun starfa hérna heima
eftir sem áður. Hér er mikilvægt að
byggja upp öfluga rannsóknarmið-
stöð sem undirbýr fólk fýrir nám
erlendis og þjálfar fólk til starfa í at-
vinnulífinu. Nýsköpun er líkleg til
að leiða til árangurs ef hún byggir á
þekkingu á viðfangsefninu," sagði
Jón að lokum.